Leita í fréttum mbl.is

Liggur eitthvað á?

að leysa sjómannaverkfallið?

Er ekki verkfall aðgerð til að valda tjóni? Skaða einhvern nógu mikið svo hann gefist upp? Kagoda sagði Tarsan apabróðir þegar hann var að hengja apann þangað til að hann gafst upp.

Eru Íslendingar ekki orðnir jafn verkfallaglaðir og Bretar voru fyrir tíma Möggu Thatcher. Erum við ekki með lög frá því fyrir stríð um fyrirkomulag verkalýðsmála? Þó við leysum sjómannaverkfallið núna, þá koma bara kannski flugumferðarstjórar og stoppa túrismann.

Svo einhverjir aðrir hópar opinberra starfsmanna og svo annarra láglaunastétta.

Kagoda!  

Er ekki fyrirmyndin komin hjá Alþingi og Kjararáði? Allir miða sig við þann næsta.

Þarf ekki frekar að huga að leikreglunum í þjóðfélaginu en að vera að þvæla þetta um hvernig eigi að leysa sjómannaverkfallið? Þarf það ekki að standa lengi enn til að hlífa loðnunni svo þorskurinn fái eitthvað að éta? Fiskinn má geyma í sjónum segir Hafró.

Það var einu sinni langt verkfall í Svíþjóð um aldamótin þar áður og svo ekki mjög lengi síðan.

Liggur eitthvað á?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Er ekki sjálfsagt að taka kvótan af sægreifunum og leifa öðrum að nýta eign þjóðarinnar meðan á verkfallinu stendur, hvort sem það eru íslenskir eða erlendir útgerðarmenn og leifa þeim að bjóða í kvótan á mánaðar fresti þangað til að sjómannaverkfallið leysist.

Ef þetta væri gert, þá mundi enginn skaðast af sjómannaverkfalli nema þeir sem að koma beint að verkfallinu, sægreifarnir og sjómenn.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 15.2.2017 kl. 15:53

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Athyglisverð hugmynd Jóhann, en þeir og landsbankinn eiga allan óveiddan fisk í sjónum. Þá myndi veðið rýrna.

Halldór Jónsson, 15.2.2017 kl. 19:52

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Nú er öfgva hægri stjórn við völd þannig að ekki við því að búast að laga og reglugerðum um kvóta verði breitt í þeirra Ríkistjórn, en kanski að vinstraliðið ætti að setja í lög eftirfarandi þegar þeir fá að ráðskast um kvótan.

1. Ef sægreifar og sjómenn fara í verkfall, þá skal kvóti allra sægreifa lagðir saman til að fá eina tölu. 

2. Siðan skal deila 12 í töluna sem kemur út í firstu málsgrein.

3. Siðan skal setja á frjálst uppboð kvótasöluna sem kemur út í málsgrein 2 

4. Veiðar þeirra sem vinna sér kvótaveitingu mega hefja veiðar eftir greiðslu á uppboðsverði, sem skal greitt innan 72 tima.

5. Ef sá sem hefur ekki greitt fyrir kvótan innan þess tíma sem er tiltekinn í málsgrein 4, þá fer sá kvóti aftur á uppboð.

6. Kvóta veitingar sem eru veittar eftir uppboð til hæstbjóðenda skulu vera í einn mánuð í senn.

7. Ef verfall sægreifa og sjómanna leisist, þá skulu veiðar þeirra ekki hefjast fyrr en allir mánaðarkvótar innlendra og erlendra útgerðamanna eru út runninir.

En ég geng út frá því að fiskur innan landhelgi Íslands sé eign landsmanna, en ekki sægreifanna, annars gengur þessi hugmynd ekki upp.

Það má auðvitað fínpússa orðalag reglugerðarinnar, en setti þetta á blað í flýti.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 15.2.2017 kl. 20:41

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Sá sem fer í verkfall, gerir það á eigin ábyrgð. 

Við lifum í landi þar sem jafnvel hinir „arðrændu sjómenn“ geta farið og unnið önnur störf ef þeir kynnu það, en þeir kunna það ekki, og nenna því en síður. 

En að stela af okkur auðlindum okkar, það finnst þeim gaman.

Hrólfur Þ Hraundal, 15.2.2017 kl. 21:29

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Þeir eru nú alveg án ábyrgðartilfinnaingar gagnvart öllum öðrum sýmist mér

Halldór Jónsson, 15.2.2017 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418441

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband