Leita í fréttum mbl.is

Heimasíða RÚV

er undirlögð af máli Muhamed Juhel Miah

Hvað varðar Íslendinga eiginlega um það hversvegna Bandaríkjamenn vilja ekki hleypa honum inn í landið? Höfum við eitthvað með það að gera?

Til hvers erum við að eyða fé Ríkisútvarpsins með þessum hætti? Birta hverja fregnina af annarri um mál þessa manns sem okkur kemur ekki við á heimasíðu RÚV?

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það kemur okkur sem sé ekki við sem breskir fjölmiðlar birta myndir af og fjalla um, og er á leiðinni inn á borð breska utanríkisráðherrans?  

Hvers vegna er BBC að "eyða peningum" í mál manns, sem birtar eru myndir af þegar hann er úrskýringalaust handtekinn í okkar lögsögu og með íslensku valdi að boði erlendra stjórnvalda, sem þó gefa enga ástæðu upp fyrir þessum aðförum? 

Það sem er nýtt telst frétt samkvæmt hljóðan orðanna "news" og "nyheder".  

Ekki hefur áður verið greint frá hliðstæðu atviki hér á landi þar sem bókstaflega engar ástæður eru færðar fyrir handtökunni, leitinni á manninum og brottvísun hans. 

Ómar Ragnarsson, 22.2.2017 kl. 11:27

2 identicon

Dagskipunin hjá RÚV er og hefur verið lengi að varpa rýrð með einhverjum hætti, beint eða óbeint á ríkisstjórnina eins og auðveldlega má sjá í hverjum einasta fréttatíma hvort sem er í sjónvarpinu eða útvarpi í stað þess að koma með uppbyggilega gagnrýni, samskonar taktík notar minnihlutinn á Alþingi sem tekur hlutverk sitt heldur alvarlega svo jaðrar við skemmdarverk á stundum svosem málatilbúningurinn í kringum leiðréttingarferlið fyrir tjón sem lántakendur urðu fyrir vegna bankahrunsins en vinstrimenn virðast ekki skilja það til fulls eða láta kannski eins og þeir skilji ekki.

Kristján Jón Sveinbjörnsson (IP-tala skráð) 22.2.2017 kl. 11:42

3 identicon

Þetta er stórfrétt um eitthvað sem enginn virðist vita um hvað snýst.

 Maðurinn er fjarlægður úr flugvélinni, alsaklaus og að tilefnislausu eftir því sem hann segir og kannski er það rétt.

Það er hins vegar hugsanlegt að bandarísk stjórnvöld hafi ástæðu til að gruna hann um eitthvað misjafnt. 

Forðumst fordóma um það sem við vitum ekkert um.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 22.2.2017 kl. 13:22

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar, þetta er þeirra maður Bretanna.Kemur okkur ekki við.

Sammála Kristján

Máefni Trumps Hörður, ekki okkar.

Halldór Jónsson, 22.2.2017 kl. 13:35

5 Smámynd: Wilhelm Emilsson

"Á ég að gæta bróður míns?" Ertu búinn að gleyma Bíblíusögunum, Halldór? smile

Wilhelm Emilsson, 22.2.2017 kl. 13:58

6 identicon

Samkv. fréttun RÚV, þá gerði breskur maður, Ronald Fiddler, fyrrverandi fangi í Guantanamo, sjálfsmorðsárás á íraska hermenn.

Þegar honum var sleppt úr haldi fékk hann eina milljón punda í skaðabætur frá breska ríkinu.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 22.2.2017 kl. 15:03

7 identicon

Hörður, fullkomlega óskiljanlegt.
Hann ER breskur og heitir Ronald Fiddler,og væntanlega múslimi, en hann sprengir sig í loft upp í Írak, til að drepa aðra múslima.
Bretar greiða honum SKAÐABÆtUR og þá væntanlega af því hann var í amerisku fangelsi, Guantanamo. En var hann ekki að fremja sjálfsmorð ?
Ég botna ekkert í þessu ??!

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 22.2.2017 kl. 15:20

8 identicon

Koma mannréttindamál erlendis þá nokkuð íslendingdum við almennt ef RÚV á/má ekki flytja fréttir af því þegar farþegi á íslenskri grundu er vísað úr íslensku flugvél, einugis vegna trúar sinnar ? Er það svo ?

Höfundur er greinilega einn af þeim fáu sem kýs beinar,daglegar útsendingar úr Valhöll þeim til handa.

Ekki er ég einn af þeim, það er ljóst.

Minni á eina af málsgreinum úr lögum um RÚV, þar segir í 3gr :"Fjölmiðlaþjónusta Ríkisútvarpsins í almannaþágu hefur það markmið að mæta lýðræðislegum, menningarlegum og samfélagslegum þörfum í íslensku samfélagi með miðlun texta, hljóðs og mynda"

Var ekki RÚV einfaldlega að fara eftir þessum lögum ?

Sigfús (IP-tala skráð) 22.2.2017 kl. 16:55

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ómar ég er sammála Halldóri og það er líka satt að RÚV finnur allt til sem nota má gegn Ríkisstjórninni. Ég get ekki beðið eftir þeirri stund að við fáum að ráða hvort við viljum borga fyrir að horfa eða hlusta á þennan miðil. Sjónvarpið er alveg ömurlegt og það að maður leitar upp Utube myndir á netinu.  

Valdimar Samúelsson, 22.2.2017 kl. 17:14

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það kemur væntanlega að því að RÚV verði lagt niður nema sem menningarútvarp og safngripur, með litlum tilkostnaði, 30 starfsmenn duga í stað 300-400.

Styrkja mætti fjölmiðlun með lágmarksskatti á alla skattgreiðendur, t.d. að hámarki 12.000 kr. á ári, en með þeim hætti, að skattgreiðandi ráði sjálfur, hver hljóti hans framlag.

En RÚV kemur upp um sig dag eftir dag með því að jarma endalaust um þetta ómerkilega einstaklingsmál. Og er ekki skólaferðalagið langt komið, sem hann ætlaði í? Margir hafa nú misst af að verða með á íþróttamót eða í vinnuferðir eða með sínum skólafélögum. 

Jón Valur Jensson, 22.2.2017 kl. 18:53

11 identicon

Ég er fylgjandi því að menn geti sent fjölmiðlaskatt RUV í hvaða fjölmiðil sem er, eða í aðra menningarstofnun að egin vali, á sama hátt og það er hægt að ganga í hvaða trúfélag sem er, eða í stað þess láta peninginn renna til HÍ eða sambærilega stofnun. Það má ekki gleyma því að það er trúfrelsi sem ræður því síðarnefnda. En er ekki einmitt prentfrelsi einnig við lýði á Íslandi? Með sömu rökum má réttlæta fyrrnefnda fyrirkomulagið. Þessi tvö frelsi - trúar og prents - fara einmitt oft saman, svo það er eðlilegt að sama prinsipp gildir. Gaman þætti mér að geta takið peninginn sem rennur til RÚV í mínu nafni og sent hann eitthvað annað.

Egill Vondi (IP-tala skráð) 22.2.2017 kl. 19:48

12 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta hefur verið forsíðufrétt á meira og minna öllum fréttamiðlum undanfarna daga. Það einkennilega er hins vegar að enginn þessara miðla virðist gera minnstu gangskör að því að reyna að skoða hvers vegna manninum var ekki hleypt til Amríku.

Þorsteinn Siglaugsson, 22.2.2017 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband