Leita í fréttum mbl.is

Að hugsa sér?

að maður sem svona skrifar sé þingmaður á Alþingi Íslendinga:

"

200 daga vinátta Guðlaugs Þórs og Trumps

Smári McCarthy skrifar 19.8.2017 07:00

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra má eiga það, hann passar upp á vini sína. En hvort hann vandi valið á þeim, það er önnur spurning. Ég óttast að vanvilji Guðlaugs Þórs til að fordæma Donald Trump Bandaríkjaforseta á grundvelli þess sem hefur átt sér stað undanfarna 200 daga byggist á einhverskonar kjánalegri trú um að hægt sé að vera vinur svona manna. Hversu lengi þessi vinátta endist er önnur spurning. Þjóðernisofstæki mun seint vera launað yfir landamæri, og eftir því sem ofstækið eykst eru birtingarmyndir þess líklegari til að valda öllum skaða, hvort sem það er í formi gælna við nýnasista, niðurbrots dómskerfisins, misbeitingar á valdi, eða tortímingu á viðskiptasamböndum á grundvelli einangrunarhyggju.

Mikið hefur verið rætt um það undanfarna daga að Trump virðist furðu tregur til að lýsa andstyggð sinni á nýnasistum og öðrum sem bera hugmyndafræði sem gengur gegn góðu siðferði og nútíma mannréttindum.

Fantur og hrotti

Í Helgarútgáfunni á Rás 2 sl. sunnudag hélt Guðlaugur Þór því fram að ekki væri hægt, eftir aðeins 200 daga forsetatíð Donalds Trump í Bandaríkjunum, að meta það hverskonar forseti hann yrði.

Á sínum 200 dögum sem forseti hefur Donald Trump margsinnis reynt að svipta tugum milljóna manna heilbrigðistryggingu, ítrekað hótað kjarnorkustyrjöld á Kóreuskaga, sett diplómatísk- og viðskiptaleg sambönd Bandaríkjanna við fjölmargar aðrar þjóðir í uppnám, hvatt til ofbeldisglæpa að hálfu lögreglu og haldið skjólshendi yfir KKK, nýnasista og ýmsa aðra öfgahópa. Á meðan hefur starfsmannahald Hvíta Hússins verið í stöðugum sviptingum og sífellt fleiri vísbendingar koma í ljós um ólöglegt athæfi forsetans og nánustu fylgismanna hans í aðdraganda kosninganna.

Það er algjörlega augljóst hverskonar forseti Donald Trump er. Hann er fantur, hann er hrotti og hrokagikkur. Hann er allskostar vanhæfur í starfi, enda virðist hann hafa afar takmarkaðan skilning á því hvað starfið raunverulega er. Ekkert af þessu er einstakt: ýmsir sem hafa fengið stór embætti í gegnum tiðina hafa verið kjaftstórir vanvitar með lítt duldar fasískar hneigðir.

Vinur er sá er til vamms segir

En við þurfum samt sem áður að meta stöðuna út frá því að hér er um að ræða forseta vinaþjóðar okkar, sem er kjarnorkuveldi og efnahagslegt stórveldi; land sem hefur gríðarleg áhrif á heimsbyggðina. Það er ótrúlega mikilvægt fyrir Ísland að halda góðum samskiptum við Bandaríkin, en það gengur einnig beinlínis gegn hagsmunum Íslands að láta eins og hegðun Trumps sé í góðu lagi, og það er skammarlegt að hafa utanríkisráðherra sem skilur þetta ekki. Vinur er sá er til vamms segir.

Rétt er að athuga að ríkisstjórn Íslands hefur verið við völd skemur en Trump. Ef ekki er hægt að dæma Trump út frá þessum 200 dögum, eins og Guðlaugur Þór heldur fram, þá er sömuleiðis ekki hægt dæma ríkisstjórn Íslands. Út frá þessum rökum vænti ég að Guðlaugur Þór hyggist ekki hreykja sér af neinu sem ríkisstjórn Íslands gerir fyrr en hann hefur gefið til kynna hverskonar forseti hann telji Trump vera. En ríkisstjórn Íslands hefur nú svo lítið til að hreykja sér af hingað til, að þetta er kannski ágæt leið fyrir Guðlaug Þór að kaupa sér tíma.

Hann hefur nefnilega lítið gert. Í ræðu og riti hefur hann lýst meiri áhyggjum af hagsmunum Bretlands en Íslands í sambandi við Brexit og þannig grafið undan samningsstöðu okkar gagnvart Bretlandi. Það hlýtur að þykja skrýtið að á meðan öll Evrópa er að reyna að vinna saman úr þeim skaða sem Brexit mun valda sé utanríkisráðherra Íslands einn valsandi um algjörlega sannfærður um að þetta sé einhverskonar tækifæri. Þetta lýsir einhverskonar trygglyndi fyrrum varaformanns Evrópusamtaka íhaldsmanna og umbótasinna (ACRE) við Breska Íhaldsflokkinn, sem verður seint launað.

Niðurbrot mannréttinda

Það er hugsanlegt að Guðlaugur Þór þjáist sjálfur af ákveðinni tregðu til að lýsa andstyggð sinni á þeim hugmyndafræðilegum félögum sínum í ACRE hvers hugmyndir engu skárri en hugmyndir nýnasistanna sem Trump heldur verndarhendi yfir. Meðan Guðlaugur Þór vitnaði ítrekað í viðtalinu í Norður-Kóreiska flóttamanninn Park Yeon-mi til vitnisburðar um hrikalegar aðstæður í Norður Kóreu, þar sem fólk er fangelsað af handahófi fyrir minnstu mótlæti gegn ríkisvaldinu og fólk drepið fyrir minniháttar glæpi, þá hefur hann sem utanríkisráðherra ekkert sagt við því að Recep Tayyip Erdogan, leiðtogi AKP, systurflokks Sjálfstæðisflokksins í Tyrklandi, hafi staðið fyrir fjöldafangelsun tugþúsunda manna án dóms og laga, gríðarlegum mannhvörfum og almennu niðurbroti á mannréttindum innan Tyrklands undanfarin ár.

Hann hefur heldur ekkert sagt við niðurbroti mannréttinda innan Evrópu, þrátt fyrir að vera mikill andstæðingur Evrópusambandsins sem vissulega liggur vel við höggi um þessar mundir. Það kann að vera vegna þess að það eru einkum systurflokkar Sjálfstæðisflokksins í ACRE sem standa fyrir slíku niðurbroti. PIS í Póllandi hefur til að mynda gengið hart fram við að grafa undan trúverðugleika dómskerfisins í Póllandi undanfarna mánuði, með raunar nánast sömu aðferðum og Sjálfstæðismenn notuðu til að eignast Landsrétt í vor. Obbosí.

NIÐURBROT mannréttinda á heimsvísu er staðreynd í dag og við þurfum að taka afstöðu.. Ísland þarf utanríkisráðherra sem er tilbúinn til að standa gegn þessum hneigðum, frekar en að humma þær fram af sér meðan alþjóð horfir gapandi á.

Höfundur er þingmaður Pírata"
 
Það er ætlast til að aðrir þingmenn hlusti á það sem þessi maður er að segjast vita og jafnvel marki það eitthvað? Er ekki sagt að þessi maður segist vera stærðfræðingur frá Háskóla Íslands án þess að slíkt sé rekjanlegt? Hver er hann til að vita allt betur en bandarískir kjósendur? Hvaðan kemur honum öll þessi vizka?
 
Hvernig eigum við að hugsa okkur framtíð Íslands og traust á Alþingi eiginlega? 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yfir hverju er síðueigandi eiginlega að hneykslast? Er hann að hneyklast á því að fanturinn, hrottinn og geðsjúklingurinn Donald Trump sé af Smára kallaður það sem hann er? Eða er hann svona móðgaður fyrir hönd Guðlaugs? Hvað er málið?

Karvel (IP-tala skráð) 19.8.2017 kl. 14:46

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hvað á þessi pírati við með þeirri aðdróttun að Trump hafi "haldið skjólshendi yfir KKK, nýnasista og ýmsa aðra öfgahópa"? Ruglari er þetta!

Jón Valur Jensson, 19.8.2017 kl. 16:28

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Farvel Karvel, þú ert jafnvel enn gáfaðri en Smári.

Jón Valur, það er ekki hægt að ætlast til þess að heilbrigt fólk skilji svona lið.

Halldór Jónsson, 19.8.2017 kl. 18:13

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Eitt athuga þessir gáfuðu kommatittir þegar þeir spá í Trump:

Donald Trump fékk 45 prósent atkvæða og vann með þeim 41 fylki. Sá næsti, Ted Cruz, fékk 25 prósent atkvæðanna og vann með þeim 11 fylki.

Ted Cruz mælti svo með Trump er hann dró sig til baka. Restin dreifðist á fimm aðra frambjóðendur flokksins sem unnu samanlagt með henni þrjú fylki og þrír þeirra mæltu með Trump.

Enginn frambjóðandi lýðveldisflokksins frá því að prófkjör hófust, hefur tærnar þar sem Trump hefur hælana í almennum stuðningi til forsetaframboðs á vegum lýðveldisflokksins. Enginn!

Hvernig stendur á því að íslenskir píratar ná ekki í gegn þarna vestanhafs í því að afhjúpa mistök kjósenda í USA? Svona gáfað fólk er þess umkomið að hafa vit fyrir milljón sinnum fleira fólki.

Halldór Jónsson, 19.8.2017 kl. 20:39

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mjög gott innlegg og upplýsingar, Halldór!

Jón Valur Jensson, 20.8.2017 kl. 09:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband