Leita í fréttum mbl.is

Að skipta um hlutverk

hvarflar að manni við allt þetta tal um kynferðislega áreitni.

Í gamla daga hélt maður að stelpur vildu láta reyna við sig. Jafnvel yrðu föj ef enginn yrði til þess. Nú er þetta allt lagt út sem kynferðisleg áreitni og fíbjakk.

Maður er á þessum aldri, sem er orðinn svo órafjarlægur hinum gömlu dögum, orðinn hugsi um framtíðina. Það er eitthvað að breytast enda er víst barnsfæðingum að fækka mikið meðal Íslendinga. En innflutningur fólks hinsvegar að stóraukast þannig að það er að breytast þjóðin í landinu. 8.hver framteljandi er útlendingur til dæmis.Hvernig líta þeir annars á viðreyningar? Telja þeir þetta samstofna við áreitni eins og manni sýnist að sé að verða normið á Íslandi?

Manni skilst að innfluttir múslímar í Þýskalandi til dæmis telji það sjálfsagðan hlut að þreifa freklega til kvenna á gamlárskvöldum sem öðrum. En Íslendingar verða að passa á sér puttana bæði þar og hér? ég veit ekki hvernig það er á börunum hér þegar Bakkus tekur völdin. En mér skilst að þangað komi nú bæði strákar og stelpur eins og í gamla daga.

Hvað mátti í gamla daga og hvað má ekki lengur? Ég man nú ekki eftir því að það hafi verið mikið um kvartanir þó að stöku sinnum hafi menn fengið á snúðinn fyrir frekjugang. En mig minnir að mest hafi þetta farið friðsamlega fram. En kannski misminnir mann bara?

Verðum við kannski að fara að breyta uppeldisvenjum íslenskra kvenna? Kenna þeim að þær eigi að hafa frumkvæði af samskiptum kynjanna en kenna strákum að hemja sig og bíða?  Hafa dömufrí sem venju en ekki undantekningu eins og var í Iðnó í gamla daga? Þar minnir mig nú að strákar hafi almennt veri kurteisir við stelpurnar en síður hvor við annan frammi á klósetti. Sem er líka breytt frá því sem var held ég, er ekki bara minna um pústra eftir að bjórinn kom og svartidauðinn minnkaði? Það var dansað og duflað úti á gólfi í þá daga og strákarnir buðu upp þegar ekki var dömufrí. En kannski eru nýjir tímar að renna upp.

Komið að því að skipta um þessi hefðbundnu kynjahlutverk?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agla

Búin að hlægja mikið að færslunni. Kærar þakkir!

Agla, 19.10.2017 kl. 15:34

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Viðreyningar eins og blikk er fyrir löngu orðið ómark og myndi skoðast sem kækur yrði ungkarli á að reyna slíkt. M Kv.

Helga Kristjánsdóttir, 19.10.2017 kl. 16:16

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Held að þarna skipti máli hvort áreitið á sér stað á vinnustað, hjá sérfræðingum í kerfinu eða á skemmtistöðum þar sem fólk beinlínis kemur saman til þess að kynnast hvert öðru.

Kolbrún Hilmars, 19.10.2017 kl. 16:53

4 identicon

Þetta er misskilningur hjá evrópskum körlum ... þeir skilja ekki konur, þess vegna hafa konur um víða Evrópu orðið aðdáendur Islam og margar hverjar hörfað til þeirrar trúar.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 19.10.2017 kl. 18:51

5 identicon

Þetta eru tveir gjörólýkir menningarheimar, sem eiga enga samleið, hafa aldrei gert, og munu aldrei gera. Nærtækast að líta til þýskalands og Svíþjóðar.                             Islam með sín shari-lög, uppfylir ekki þau skilyrði, sem Stjórnarskráin gerir til trúfrelsis og trúarbragða á Íslandi,  td. jafnrétti kynjanna og margt fl. Í Islam vingengst umfangsmikið og kerfisbundin kúgun kvenna, í sumum þessara landa. Þess vegna kemur það verulega á óvart, að VG elítan segir tökum á móti fleiri flóttamönnum, að lágmarki 500 á ári, og gerum hælisleitendur hvaðan svo sem þeir koma af heimsbygðinni, jafn rétháa kvótaflóttamönnum á Íslandi.   Þannig að VG elítan vill að íslenskir skattgreiðendur taki á sig offjölgunarvanda Afríku. Trúir svo einhver því að VG muni ekki hækka skatta á allan almenning á Íslandi.                             

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 19.10.2017 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband