Leita í fréttum mbl.is

Borgarvirkið

hið síðara virðist vera óvinnandi ef marka má skoðanakannanir.

Og þvert á hið fyrra þá virðast mörsiður Dags.B.Eggertssonar þó gert sé úr glærum og góðum áformum þegar hið hið fyrra var raunverulegt sem gekk fram af umsátursliðinu, duga til árangurs.

Kjósendur í Reykjavík sjá ekki muninn og trúa því sem virkisstjórinn segir.Foringi umsátursliðsins virðist ekki ná að sannfæra virkisbúa um að það sé rétt að gefast upp þar sem lítinn kraftmikinn sé að finna í glærum virkisstjórans heldur framtíðarmör sem þeir fái einungis innan eins og hálfs kjörtímabils.Næstu fjögur ár geti því alveg verið  verið virkisvetur þar sem fullnaðarsigurinn vinnist þá örugglega innan sex ára.

Það verður því væntanlega áframhald á þrengingu gatna og byggingu fuglahúsa fremur en fjölgun akreina eða leiguhúsnæðis.Enda hver þorir að treysta á íhaldið sem engu hefur komið til leiðar í svo ótalmörg ár?

Borgarvirkið virðist til bardaga búið og ósigrandi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir Reykvíkingar sem eru í áskrift hjá skoðunarfyrirtækjunum virðast elska sínar holur, hraðahindranir og þrengingar https://www.mbl.is/folk/frettir/2013/08/24/stokkholms_heilkennid_40_ara/

Borgari (IP-tala skráð) 29.3.2018 kl. 21:09

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

 samfylkingin tapar þessum kosningum.Fulltrúum samfylkingar hefur nú fækkað um fimm frá síðustu skoðanakönnun en sjálfstæðismanna staðið í stað. Eftir er að sjá hvort glænýtt framboð breyti einhverju. Framboð sem kratar vilja meina að sé hægra framboð. Annað mál er að vinstrimenn mælast alltaf miklu hærri í akoðanakönnunum en raun verpur. Kannski að hluta vegna þess að það renna tvær grímur á kjósendur þegar þeir eygja sigur vinstriaflanna.

Ég er nokkuð viss um að samfylkingin tapar þessum kosningum. Hljóti afhroð í rauninni. Sjáum bara til.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2018 kl. 22:11

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Á mesta uppgangstíma í sögu borgarinnar hafa skuldir vaxið upp í nær ókleyfan haug. Innfrastrúktúr er í molum og embættismenn á kafi í nepótisma og sjálftöku. Ef borgarbúar vilja meira af því sama þá eiga þeir það væntanlega skilið.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2018 kl. 22:15

4 identicon

Fer ekki að koma að því að ráðherra sveitastjórnarmála skipi borginni fjárhaldsmann, til að koma böndum á sukkið og skuldasöfnunina.  Það verður nú stuð að vera Dagur B. Eggertson og taka við fyrirskipunum frá Fjárhaldsmanni, skipuðum af Sigurði Inga, sem bannar öll óþarfa útgjöld.

Guru (IP-tala skráð) 29.3.2018 kl. 23:02

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Þeim sem styðja núverandi meirihluta, til áframhaldandi setu, geta trauðla haft mikið fjármálavit. Svo mikið er víst. Miðað við skuldir Reykjavíkurborgar pr. íbúa, rambar þetta stærsta sveitarfélag landsins, sem jafnframt er höfuðborgin sjálf, á barmi þess að verða svipt sjálfræði í meðferð þeirra fjármuna sem frá skattborgurunum koma. 

 Skattborgara sem dag hvern aka um ónýtar eða eyðilagðar götur, eru sviknir í húsnæðismálum, eru sviknir í leikskólamálum, skítamálumm og ég veit ekki hvað. Sviknir um heiðarleg vinnubrögð? Tja, ekki gott að segja. 

 Það eina sem stendur upp úr, eftir valdatíð núverandi meirihluta, eru svikin loforð og eyðslusemi í rugl, vitleysu og hreinan fíflagang, sem á sér engin fordæmi í rekstri höfuðborgar Íslands.

 Ef draga ætti valdatímann saman í sem fæst orð, sem lýst gætu núverandi meirihluta sem best, væri það sennilega " Glærufyllt Egóflipp".

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 30.3.2018 kl. 01:03

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Nafni minn að sunnan

hvernig kemurðu þessum orðum þínum saman við mælt 30 % fylgi Samfykjingarinnar?

Halldór Jónsson, 30.3.2018 kl. 14:24

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón Steinar, sama spurning til þín.

Halldór Jónsson, 30.3.2018 kl. 14:25

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Kæri nafni, fyrir norðan.: Ég get ekkert gert að því þó 30% borgarbúa kunni ekki að reikna og þyki allt í lagi að láta svína á sér, árum saman og spreða fjármunum í þvílíka andskotans dellu sumthvert, að leitun er að öðrum eins fíflagangi í opinberum rekstri.

 Þannig kem ég orðum mínum saman við 30% fylgið, sem mælt var í skoðanakönnunarfjanda. Einhverju hvimleiðasta andskotans fyrirbæri sem hugsast getur. Málefni stjórnmálaaflanna komast minnst til skila fyrir allar kosningar vegna þessa fjanda, sem skoðanakanninir eru. Aulaháttur fjölmiðlafólks á þar sennilega stærstan þáttinn. Held ég tuði nú ekkert meira um þetta í bili, en bestu kveðjur að sunnan, sem fyrr.

Halldór Egill Guðnason, 30.3.2018 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418337

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband