Leita í fréttum mbl.is

Ný brú á Ölfusá

stóð mér fyrir haugsskotssjónum þegar ég var boðinn í dýrðlega fermingarveislu Evu Guðrúnar Jónsdóttur og Margrétar í Tryggvaskála á sunnudaginn var.

Ég sá fyrir mér nýja brú til viðbótar þeirri sem nú er austan megin við hana í einhverjum boga yfir á bakkann vestan Tryggvaskála og tveggja akreina veg frá henni upp bakka Ölfusár með afreinum  og undirgöngum inn í bæ.

Eftir þessu mannvirki kæmi öll umferð að austan og yrði svo að hluta fjögurra akreina bílabrautarinnar(Autobahn, Turnpike) suður til Reykjavíkur. En núverandi vegur og brú  yrði fyrir umferðina  austur um Selfoss.

Þannig héldist vægi Selfoss sem umferðarpunktur é kerfinu og verslun og viðskipti færu þar um í stað þess að fara framhjá eins og nú er áætlað með hugarflugsbrú langt þaðan í frá. Allt fjármagnað af veggjöldum og jafnvel í einkaframkvæmd. Áreiðanlega ódýrari kostur í einfaldleika við betra brúarstæði.

Fermingarveislan var frábær og ánægjuleg fyrir okkur frændfólkið sem þökkum fyrir okkur og óskum fermingarbarninu gæfuríkrar framtíðar við nýa brú yfir Ölfusá við Tryggvaskála. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Skoðaðu Hellu. Þar ætlaði allt vitlaust að verða upp úr 1960 af því að brúin var færð út úr þrengslunum í þorpinu og suður fyrir það. 

Og hvað gerðist? Þjónustubyggðin færðist að nýju brúnni og eldri byggðin fékk að losna við umferðarþrengsli og hnút. 

Ómar Ragnarsson, 29.4.2018 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418333

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband