Leita í fréttum mbl.is

Dagur blekkir með gróðagrobbi

og breiðir úr sér fyrir methagnað hjá borginni.

En hver er sannleikurinn?

Eyþór Arnalds flettir ofan af Pótemkín tjöldunum með nokkrum orðum:

"Eyþór Arnalds segir þó vekja athygli að skuldir og skuldbindingar skuli vaxa um 15 milljarða á síðasta ári í borgarsjóði.

Sjá einnig: Reykjavíkurborg skilar fimm milljarða króna afgangi

„Af því að við erum að horfa á mesta tekjugóðæri borgarinnar þá vekur þetta fyrst athygli.

Síðan er hitt að uppgefinn hagnaður er tæpir 5 milljarðar en söluhagnaður eigna er 8 milljarðar, ef ekki hefði komið til sölu á þessum eignum – sem er einskiptishagnaður – þá hefði afkoman verið tap.“

Eyþór bendir á að Félagsbústaðir og OR séu að endurmeta eignir sínar og reikna sér marga milljarða í hagnað af endurmatinu.

„Við veltum fyrir okkur hvort það sé líka einskiptishagnaður. Þegar þetta er samandregið þá er ljóst að afkoman er ekki eins góð, þegar það er minna inni á bankabókinni en fyrir ári síðan og skuldir búnar að vaxa þetta mikið í borgarsjóði.

Reikningurinn er í fjarska fagur. En það er sama hvaða heimilisbókhald það væri, ef skuldir vaxa svona mikið og þú selur eignirnar þá ertu náttúrulega ekki í góðum málum.“

Er það svona einfalt að blekkja kjósendur með gróðagrobbi ef enginn skyggnist undir yfirborðið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er ekki mikið mál að skila miklum rekstrarafgangi með því að vanrækja allt viðhald og láta INNVIÐINA drabbast niður eins og göturnar, skólana og aðrar eignir borgarinnar.  En það kemur að "skuldadögunum" og þá verður bara enn kostnaðarsamara að halda hlutunum við vegna fyrri vanrækslu.  En þegar þar að kemur verður Dagur B. farinn frá og aðrir taka við vandamálunum sem hann skapaði.

Jóhann Elíasson, 27.4.2018 kl. 12:50

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Dagur er professional sjónhverfingamaður. 

Og nú lá á að fela þá staðreynd, að skýjaborg hans um 70 milljarða Borgarlínu og 21 milljarðs stokk undir Miklubraut er hrunin og verður aldrei að veruleika á komandi kjörtímabili,

sbr. https://thjodfylking.blog.is/blog/thjodfylking/entry/2215367/

Jón Valur Jensson, 27.4.2018 kl. 13:38

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Skoðanakannanir eru ekki svo vissar um þetta Jón Valur. Það er ótrúlegt hvað maðurinn kemst  upp með í málflutningi.

Þegar hann talar um fjármal fer hann hiklaust með bull  alveg eins og lærimeistarinn gerði hún Ingibjörg Sólrún.

En hún er í mínum huga ósvífnasti stjórnmálamaður sem komið hefur að borginni, laug hiklaust og blákalt í beinni útsendingu og komst upp með það því RÚV efaðist aldrei um neitt sem hún sagði. Utan einu sinni þegar hún sagði að Borgarsjórður væri rekinn hallalaust þegar sannleikurinn var milljarður í mínus.

RUV spurði svona varfærnislega hvernig á þessu stæði. Það var undirliggjandi halli sagði hún hiklaust og þar með var það búið.

Dagur er ekki einu sinni spurður um hvar 3000 íbúðirnar séu, þeir hlífa honum við svoleiðis á RÚV.

Halldór Jónsson, 27.4.2018 kl. 17:36

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Æ, hvað er að þér, maður, þær eru allar fyrirliggjandi á glærum og gott ef ekki íbúarnir líka!

Jón Valur Jensson, 27.4.2018 kl. 18:50

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 500 hundruð krónur á sekúndu, allt árið, uxu skuldbindingar og skuldir Reykjavíkurborgar í fyrra. Það gerir 30.000.- krónur á mínútu, 1.800.000.- krónur á klukkustund, 43.200.000.- á sólarhring, 1.300.000.000.- krónur á mánuði. Árið gerir því u.þ.b. 15.000.000.000.- krónur í mínus, svona "sirkabát" allt heila klabbið.

 "Dagur jarðar" var haldinn hátíðlegur, um daginn og mikið plokkað af rusli. "Dagur jarðar bókhald" er ekkert sem fagna ber eða tilefni til að halda hátíðlegt. Veljist hann og hans slekti til áframhaldandi setu í borgarstjórn Reykjavíkur á næsta kjörtímabili, verður tæpast langt að bíða í að sekúndan fari að nálgast þúsund kallinn í mínus. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 27.4.2018 kl. 19:13

6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Man alltaf þegar Ingibjörg Sólrún fagnaði

því hversu afkoma Reykjavíkurborgar var góð

rétt fyrir kosningar.

Eftir kosningar boðaði hún til neyðarfundar

vegna þess hversu afkoman var léleg.

Holræsagjaldið, tímabunda, var fundið upp og fleiri

endemiskattar sem þessir kratar standa alltaf fyrir.

Á maður að trúa því að Reykvíkingar kjósi

enn og aftur þetta lið yfir sig..??

Allstaðar í HEIMINUM, sem svona sósíalistar

hafa komist til valda, er allt bara rjúkandi rúst.

Og undantekningarlaust, kenna þeir öðrum um.

Gnarr grínið er að kosta Reykvíknga þvílíkt

að það mun taka mörg ár að rétta við bullið.

Ekkert bæjarfélag á Íslandi er með eins mikla

skuldsetningu per íbúa og Reykjavík.

Það þarf ekki mikla greind til þess að sjá að

með áframhaldandi meirihluta, endar Reykjavík

á gjörgæslu ríisstjórnar og allt í boði

Dags læknis.

Pillurnar sem hann gefur Reykvíkingum, eru

ekkert annað en svefnlyf

Sigurður Kristján Hjaltested, 27.4.2018 kl. 21:13

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón Valur

Íbúarnir eru því miður raunverulegir og liggja margir úti í Laugardalnum af því að íbúðirnar eru bara á glærunum eða getur það ekki verið ástæðan fyrir húsnæðisskortinum?

Halldór Jónsson, 28.4.2018 kl. 08:11

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Fallega sagt Jón Valur:

Dagur er professional sjónhverfingamaður. 

Og nú lá á að fela þá staðreynd, að skýjaborg hans um 70 milljarða Borgarlínu og 21 milljarðs stokk undir Miklubraut er hrunin og verður aldrei að veruleika á komandi kjörtímabili

Miklir eru hæfileikar mannsins sem mér finnst líkjast öðrum sjónhverfingamanni,  Guðmundi Steingrímssyni  óþægilega mikið í útliti og innréttingu líka þar sem er blekkingarárátta kratismans em aldrei segir sannleikann.

Hvernig er ástandið á Miklubrautinni? Það er gott þar sem hún er þríbreið.Það er eins og Dagur myndi leggja vatnsleiðslu í átt að kvosinni. Hann hefði hana fyrst 3 tommu en mjókkaði hana svo sífellt og endaði í tommu við áfangastað. Hvað myndi renna mikið í því röri. Setti svo þverunarkrana á pípuna á nokkrum stöðum og lokaði fyrir vatnið í aðalpípunni meðan hann léti heitt vatn renna þevrt á hana til valdra gæðinga sem þar byggju. 

Það er hægt á mikil kostnaðar að gera Miklubrautina þríbreiða alveg að Gamla kirkjugarði.  Það og leggja svo brautina á yfirborði. Svo þarf mislæg gatnamót á Lönguhlíð og Kringlumýrarbraut, segjum 2 milljarða í viðbót og umferðarvandinn að Landspítalanum  er leystur með sjálfbærri Robótaparkeringu þar fyrir og við Háskólann Í Reykjavík líka. Borgarlínuakbraut getur verið með í þessu fyrir lítinn aukakostnað (fleiri en 3 í bílir keyra á henni)

Að sökkva Miklubrautinni og bybgja jarðgöng fyrhana me.ð öllum þeim aukakostnaði í loftræsingu, slysavörnum sem af því leiðir finnst mér hljóti að vera dýrara en að keyra á yfirborðinu

Halldór Jónsson, 28.4.2018 kl. 08:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband