Leita í fréttum mbl.is

"Á hverju ætlum við að lifa“

 sagði formaður Samtaka iðnaðarins á fundi fyrir nokkru. Tilefni þess var spurningin um hvert við erum að stefna í ríkisfjármálum og starfsumhverfi fyrirtækja. Það er með ólíkindum að upplifa á samdráttartímum að störfum hjá hinu opinbera er að fjölga verulega á meðan fyrirtæki eru draga saman seglin til þess að mæta háum álögum og kjarasamningum.

Flestir vita að raunveruleg verðmætasköpun getur bara átt sér stað hjá fyrirtækjum með auknum útflutningi, iðnaði og þjónustu. Stefnan sem hefur verið tekin undanfarin ár hjá ýmsum ráðuneytum ber því ekki vitni.

Hjá heilbrigðisráðuneyti eru skilaboðin skýr. Hið opinbera á að reka meira og minna alla þjónustu við sjúklinga. Einkaframtakinu er markvisst hafnað. Það er skortur á heilbrigðisstarfsfólki en skilaboðin til þeirra sem treysta sér í slíkt nám eru að það verði bara einn vinnustaður í boði að námi loknu, Landspítalinn, eða flytja til útlanda.

Sjúklingar eru fluttir utan í aðgerðir þrátt fyrir að kostnaður og umstang við slíkt sé mun meiri heldur en ef slíku væri úthlutað til einkarekinnar læknisþjónustu hér á landi. Fjármunum er hreinlega sóað og störfum og tækifærum innanlands fækkar með þessari stefnu.

Umhverfisráðherra leggur til hálendisþjóðgarð þvert á vilja sveitafélaga sem óttast um skipulagsvald sitt og aðgengi. Garðurinn á að fjölga opinberum störfum enn frekar og reksturinn á slíkum hálendisgarði er algerlega óræddur en mun líklega kosta milljarða. Ofan í þetta kemur fátt annað frá þessu ráðuneyti en auknir skattar, í skjóli umhverfisverndar, sem draga enn frekar úr mætti atvinnulífsins og auka samhliða álögur á fjölskyldur.

Gagnrýni á skiptingu ráðuneyta í þessari ríkisstjórn hefur verið á þann veg að hver flokkur rekur sitt ráðuneyti í nokkrum friði frá stefnu hinna flokkanna.

Sjálfstæðisflokkurinn er með dómsmálaráðuneytið sem líklega er einn snúnasti málaflokkurinn og hefur verið rekið skörulega af tveimur konum sem hafa tekið að sér mál sem fáir treysta sér í. Niðurstaða eins slíks máls ætti að vekja þingmenn úr dvala um að ræða réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Dýrir starfslokasamningar sem fáir geta tekið undir að séu réttlætanlegir ættu að verða til þess að fyrrgreind lög verði endurskoðuð með það að markmiði að hægt sé að víkja fólki úr starfi líkt og gerist hjá einkafyrirtækjum.

Sjávarútvegsráðuneytið er sagt reka stefnu stórútgerða en ég er nokkuð viss um að ef hinn almenni sjálfstæðismaður væri spurður myndi hann vilja sjá skref í þá átt að fjölga tækifærum nýrra og smærri útgerða með endurskoðun á kvótakerfinu.

Ég vil hvetja alla til þess að íhuga vel orð formanns samtaka iðnaðarins hér í upphafi.

Á hverju ætlum við að lifa?

Jafnvægi verður að ríkja á milli starfa í einkageiranum og hjá hinu opinbera. Til þess að slíkt sé mögulegt verður að huga að rekstri og verðmætasköpun fyrirtækja og þeim gert gerlegt að starfa í öruggu umhverfi þar sem sköttum og álögum er haldið í lágmarki svo hægt sé að halda fólki í starfi frekar en að segja því upp í samdrætti.

Menntun verður að taka mið af þörfum atvinnulífsins og verður menntakerfið að taka tillögur þess efnis mjög alvarlega. Allir virðast vera sammála um að gera verði iðn- og verknámi hærra undir höfði, samt sem áður vilja of fáir grunnskólanemendur velja þá leið að loknu námi.

Brottfall nemenda úr framhaldsskólanámi er vísbending um að gera þurfi betur. Það er vitað að fjármunir skapast ekki í skúffum embættismanna og ákvarðanir teknar gegn frjálsu atvinnulífi verða ekki til þess að auknir fjármunir geti verið veittir í þágu velferðar og innviða. Kakan einfaldlega minnkar og báknið stækkar eins og staðan er í dag. Á hverju ætlum við að lifa?

Á hverju ætlum við að lifa?"

Þessi grein er eftir dóttur mína Karen Elísabetu og birtist í Morgunblaðinu í dag.

Hún Karen fæddist inní Sjálfstæðisflokkinn og byrjaði að sækja þar fundi með móður sinni þegar hún byrjaði að ganga og hefur ekki hætt í flokknum síðan. Hún gekk á Ísaksskóla eins og faðir hennar og er því Cand-Ís eins og hann og Mannsi í Pfaff og svo er hún með hákólapróf í sálfræði og mannauðsstjórnun.

Á seinasta fjórðungi síðustu aldar voru ekki leikskólar fyrir hvern sem var og konu minni var sagt eitt sinn þar að passa krakkann sinn barasta sjálf.Ég hef oft hugleitt af hverju tillaga Davíðs um að greiða mæðrum fyrir að vera heima með börnum sínum hafi ekki fengið frekari umfjöllun. Flestir viðurkenna að mæður ali betur upp börnin sín en stofnanir og leikskólagjöld foreldra eru bara brot af kostnaðinum við þá. Og samkvæmt Degi B. er vistin álag á börnin og ber að minnka og samkvæmt Sólveigu Önnu  er starfið vanþakkaður þrældómur. Af hverju ekki að leita fleiri leiða?

En svona í framhaldi þurfum við ekki að fara að hugleiða á hverju við ætlum að lifa á þessu landi fleiru en opinberum störfum sem fjölgar meðan öðrum fækkar?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Á hverju ættum við að lifa". Þökkum SJÁLFSTÆÐI OKKAR. Þökkum LANGLÍFI og HEILSUFAR. Þökkum SAMEIGINLEG auðæfi í RAFORKUNNI. HEITT og KALT BLÁVATNIÐ. Þökkum SJÁVARÚTVEGI og BÆNDUM, sem bera af á heimsvísu af ÓMENGUÐU landinu OKKAR. GRÓÐURHÚSIN gera það sama á heimsvísu, HREINT og ÓMENGAÐ. ÍSLAND ber af við golfstrauminn norður í höfum.

HÆTTUM að selja LANDIÐ OKKAR og sameiginleg AUÐÆFI. STÖÐVUM allan innflutning frá VANDAMÁLUM ESB landa. Styðjum við dugnað einstaklinga í viðskiptum. Við gerðum "SaMnInGa" og netviðskipti við heimsveldið KÍNA. FLOTT fyrir litla ÍSLAND?. Hér fækkar mönnum í einka viðskiptum og þeir FÁU verða enn stærri. 

Við fundum LANDIÐ OKKAR og funndum AMERIKU. Skrifuðum SÖGUNA og fórum milli LANDA og RÖTUÐUM heim aftur. Við erum hið HELGA LAND eins og Dr.Adam Rutherford sagði um ÍSLAND. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 26.1.2020 kl. 01:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband