Leita í fréttum mbl.is

Athafnamaðurinn

Dagbésjenkó var eitt sinn borgarstjóri í Reykjograd. Svo var hann kosinn frá við lítinn orðstír. En þá kom Thordislova með nýjan flokk og setti hann aftur inn þannig að atkvæðatalningin varð aftur hagstæð.

Nú sá Dagbésjenkó að hann yrði að vinna eitthvað til frægðar ´ser  sem myndi halda uppi nafni hans til framtíðar.Hann festi augun við ruslatunnurnar í Reykjograd. Þær voru alltaf að fyllast og hann þurfti að leggja sífellt fleiri hektara undir sorpurðun.

Honum datt það snjallræði i hug að stofna gas og jarðgerðarstöð  þannig að eitthvað hægði á urðuninni þó hún yrði áfram hundraðþúsund tonn. Það yrði hægt að keyra moltunni á hæstu fjöll og sá í hana grasfræi og þá myndi jörð grænka í fyllingu tímans.Dagbésjenkó yfirsást að með því að strá lúpínufræi á sprengda klöpp varð hún líka græn með litlum tilkostnaði.

Gasið myndi maður nota á bíla sem brenna metan.En þar sem Dagbésjenkó er mikill aðdáandi rafmagnsbíla ákvað hann að Reykjograd myndi hér eftir aðeins kaupa slíka bíla. Metanið yrði því að brenna út í loftið þar sem það yrði til án þess að talið væri hagstætt að nýta hitann.

Gas og Jarðgerðarstöðin  fór tvöfalt framúr stofnkostnaðaráætlun Dagbésjenkó og reksturinn sömuleiðis.Sem betur fer gat hann dregið marga til ábyrgðar fyrir þetta allt, meira að segja áhrifamenn úr öðrum sovétum og stórkostlegasta öflug einkaskrifstofa hans sá um að svipta alla aðra ærunni fyrir þessar gerðir allar.

Allar skoðanakannanir sýna að Dagbésjenkó hefur aldrei notið meira trausts kjósenda og núna og endurkjör hans viðist því borðleggjandi.Hinn mikli athafnamaður mun því sitja á valdastóli einhverja áratugi til viðbótar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ætli vísindamaðurinn Dagbésjenkó sé ekki litli frændi Lýsenkós sem afrekaði hungursneyðina í Úkraínu á sínum tíma?

Þorsteinn Siglaugsson, 29.8.2020 kl. 14:55

2 identicon

Þessar línur hljóma, eins og ævintýrin um "Reykjavíkurborg", sem skrifað er af "hælisleitenda", um "AFREKSMANNINN dagbé-sjenkó" og auman meirihluta, sem líkist rekstri borga í AMERIKU þessa dagana, sem reknar eru alfarið af getulausum Demokrötum, sem hrópa eftir fjárhagsaðstoð, áfallahjálp og óeyrða innan sömu ríkja.

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 29.8.2020 kl. 21:26

3 identicon

Ósköp eru þessar uppnefningar kjánalegar.  Hvað varð um uppeldið?

Hilmar Bjarnason (IP-tala skráð) 29.8.2020 kl. 21:42

4 identicon

en fylgið eykst alltaf við þessa anarkista,flugvöllur burt,bílastæði burt,laugavegur allir burt, fyrirtæki burt,þetta vill fólkið í reykjavík og múslimavæða ísland.

leifur bjarnason (IP-tala skráð) 30.8.2020 kl. 01:12

5 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Það er ekki eins gaman þegar rennur af mönnum. Það virðist vera hægt að telja fólki í trú um hvað sem er nú á dögum. Skuldasöfnun er bara allt í lagi. Borgin er komin á hausinn. Ríkissjóður verður fljótur að tæmast ef hann ætlar að hlaupa undir bagga því hann hefur nóg með sig. Ég minni aftur á að það hefur orðið 30% fjölgun á stöðugildum hjá hinu opinbera á meðan einkageirinn hefur dregist saman um 7%. Allir skattar upp í rjáfri og nokkrir nýir og einhverjir halda að lausnin sé að bæta þar í.

Hvaða heilvita manni dettur í hug að þetta gangi svona áfram.

Það virðist bara vera hægt að fylgjast með öllu sigla að feigðarósi.

Kristinn Bjarnason, 30.8.2020 kl. 07:24

6 Smámynd: Halldór Jónsson

soorí Hilmar ef þú vilt ekki leyfa mér að grínast

Halldór Jónsson, 30.8.2020 kl. 11:23

7 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Ég skil ekki þessi vandræði með gasið. 

Það er vesen að vera með gasbíla, ég er ekki sérfræðingur.

Þú færð þér gastúrbínu, gashverfil, öxul tengir rafal við hann og selur rafmagn út á raf dreifikerfið.

Þú skoðar aðrar vélagerðir og sérð hvað er hagkvæmast.

Þá kemur sú orka sem frádráttur á þá orku, sem Reykjavíkurborg kaupir af raforku.

Borgar þetta sig? Ég hef ekki hugmynd um það. 

Auðvitað er rétt að reikna út kostnaðinn og tekjurnar.

Svo má búa til veglegt skírteini um að Reykjavíkurborg noti orkuna frá sorpinu.

Það væri þó satt.

Egilsstaðir, 30.08.2020   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 30.8.2020 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband