Leita í fréttum mbl.is

Ný Marshallaðstoð?

í baráttunni við Kófið virðist vera helsta von mannkynsins. Baráttan er töpuð í mörgum ríkjum.

 

Eina lausnin virðist vera að Bandaríkin komi til bjargar til endurreisnar þar sem hörmungarnar eru mestar eins og þegar Marshallaðstoðin kom til skjalanna efir stríðshörmungarnar.

Indland ræður ekkert við sín vandamál sem stendur. Nú er sagt að Bandaríkin ætli að senda bæði bóluefni og súrefni þangað. Á sama tíma fréttist að indverski herinn eigi fullt af súrefni sem hann hefur haldið fyrir sig meðan almenningur deyr.

Ekkert fréttist frá kínverska kommúnistaflokknum um ástandið í Kína.Kunna þeir eitthvað sem öðrum er hulið?

Það er efnahagsmáttur Bandaríkjanna sem mestu máli skiptir fyrir veröldina eins og oft áður eins og í Marshallaðstoðinni á fyrri tíð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Kristinsson

Sæll Halldór!

Af hverju ekki Kínaaðstoð???

Óskar Kristinsson, 27.4.2021 kl. 14:14

2 Smámynd: Óskar Kristinsson

Sæll Halldór!

Takk fyrir Vinsamlegheitin???

Óskar Kristinsson, 27.4.2021 kl. 14:50

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Lestu nokkur blogg hjá Þórdísi. 

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir - thordisb.blog.is 

Egilsstaðir, 27.04.2021   Jónas Gunnlaugsson 

Seljir þú bankann, þá er einkaaðilinn búinn að fá peningaprentvél, og getur skrifað bókhald og þóttst lána peninga út í þjóðfélagið. Fólkið notar peninga, fjármálabókhald til að halda reglu á viðskiptum í þjóðfélaginu.

27.4.2021 | 03:37 

Auðvitað styðjum við einkarekstur, sem flestir verði með einkarekstur, en venjum okkur af svindli. PUNKTUR 

Jónas Gunnlaugsson, 27.4.2021 kl. 15:19

4 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þú nefnir Kína Halldór.

Þórdís segir:

slóð

Hin árlega flensa er horfin - R.I.P inflúensa 800 BC - 2020 - thordisb.blog.is 29.3.2021 | 13:36   

https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2262900/ 

Flensan virðist þó enn vera til í Kína, en Covid horfið þar:

Skrif Þórdísar eru góð. 

Egilsstaðir, 28.04.2021   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 28.4.2021 kl. 00:13

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Spurningin er kannski sú hver efnahagsmáttur Bandaríkjanna er núna. Þau komu nefnilega eigin efnahagslífi í kalda kol eins og flest önnur ríki.

Ætli eina ríkið sem getur veitt aðstoð núna sé ekki bara Kína? Og eru þeir ekki byrjaðir á þeirri "aðstoð" nú þegar?

Þorsteinn Siglaugsson, 28.4.2021 kl. 09:29

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Þorsetinn, ég trúi varla mínum eigin augam að lesa þennan texta eftir þig.Heldur'ðu virklega að mátturinn sé farinn þaðan?

Er hugtakð náungakærleikur og samúð yfirleitt til hjá kínverka kommúnistaflokknum? Ættirðu ekki að athuga það áður en þú skrifar síðustu línurnar? 

Halldór Jónsson, 28.4.2021 kl. 10:29

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta er bara staðan í Bandaríkjunum Halldór, eftir það sem gengið hefur á síðasta árið.

Aðstoð Kínverja er fólgin í verkefni sem kallast Belti og braut, og snýst fyrst og fremst um að sölsa undir sig eignir og réttindi í löndum sem standa illa efnahagslega. Ég sagði aldrei að þar byggi neinn náungakærleikur að baki.

Þorsteinn Siglaugsson, 28.4.2021 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 66
  • Frá upphafi: 3418343

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband