Leita í fréttum mbl.is

Hreint út sagt

kveður Björn Bjarnason upp úr með sannleikann um fáráðinn Gunnar Smára Egilsson sem ætlar nú að láta auðtrúa kjósendur sjá sér fyrir lifibrauði næstu árin. 

Auðvaldslindir þessa hentistefnumanns eru þornaðar með brottfalli Baugs og gjaldþrotaraða blaðaáutgáfanna sem hann fór fyrir á árum áður. Þá ferðaðist hann um á einkaþotum, bjó í Arnarnesi og hélt sig ekki beinlínis alþýðlega.

Björn hefur þetta að segja um þennan sérstaka mann:

"Þessi gasprari býður sig nú fram til þings þótt fyrir fáeinum árum segði hann slíkt ekki koma til álita enda hefði hann helst hæfileika til að leggja línur, semja boðskap og kynna hann.

Enn eitt fátæktarríki kommúnisma og sósíalisma er við það að gefa upp öndina, Kúba. Það gerist þó ekki friðsamlega eins og þegar höfuðvígið, Sovétríkin, hvarf úr sögunni. Almenningur efnir til mótmæla gegn harðstjórninni á Kúbu vegna skorts á nauðþurftum og lyfjum. Undanfarin ár hafa sósíalísk stjórnvöld í nágrannaríkinu Venezúela stutt við bakið á skoðanabræðrunum á Kúbu. Sá stuðningur er að engu orðinn vegna fátæktar og upplausnar í Venezúela. Þar eru mestu olíulindir heims sem nýtast þó ekki vegna niðurníðslu, framtaks- og stjórnleysis. Íranir smygla nú olíu til Venezúela!

Þegar þessar fréttir berast frá þjáðum þjóðum undir stjórn sósíalista kemur fram á völlinn umskiptingur til sósíalisma hér á landi, Gunnar Smári Egilsson, sem fram að hruni gekk erinda auðmanna, og boðar nú sósíalisma með þessum orðum:

„Fátækt er nokkuð sem stjórnvöld þröngva upp á tugir þúsunda fjölskyldna. Það er minnsta mál að hætta því. Lausnirnar hafa verið ljósar lengi, verið reyndar og sannað sig. Það eina sem vantar er meirihluti á Alþingi fyrir þeim. Kjósið rétt í haust. Ekki kjósa flokka sem vilja viðhalda fátækt.“

Þessi gasprari býður sig nú fram til þings þótt fyrir fáeinum árum segði hann slíkt ekki koma til álita enda hefði hann helst hæfileika til að leggja línur, semja boðskap og kynna hann.

Socialist-flagAf mörgu sem Gunnar Smári hefur tekið sér fyrir hendur er fátt vonlausara en að ná því í nafni sósíalisma sem Castro-bræðrum mistókst á Kúbu, að útrýma fátækt. Þetta mistókst á Kúbu þrátt fyrir dyggan stuðning frá Sovétríkjunum og Venezúela. Héðan voru meira að segja skipulagðar sósíalískar samstöðuferðir til að létta undir með kúbverskum bændum. Allt kom fyrir ekki. Í rúm 60 ár hafa Kúbverjar búið við skert frelsi og lífskjör til að hugsjónir sósíalista njóti sín í framkvæmd.

Það sem Gunnar Smári segir að „viðhaldi fátækt“ hér á landi yrði talið himnasending á Kúbu og í Venezúela. Ofríkisstjórnum er viðhaldið með lögregluvaldi og fangelsunum til að hindra að flokkar á borð við þá sem Gunnar Smári hefur í heitingum við hér á landi fái þrifist.

Til að fela raunverulegan tilgang stefnunnar sem Gunnar Smári boðar skreytir hann sig og hana með alls kyns gylliboðum eins og að 30.000 félagslegar íbúðir verði byggðar á næstu tíu árum.

Þarna gerir sósíalíski hugmyndafræðingurinn og frambjóðandinn ráð fyrir að hann geti látið reisa 3.000 félagslegar íbúðir ár hvert næstu 10 ár.

Í skýrslu sem íbúðalánasjóður sendi frá sér í janúar 2019 sagði að í „grunnsviðsmynd íbúðaþarfagreiningarinnar [væri] þörf á fjölgun íbúða metin um 1.830 íbúðir á hverju ári á tímabilinu 2019-2040 til að vinna upp óuppfyllta íbúðaþörf og mæta undirliggjandi fjölgun heimila á tímabilinu“.

Allt annað sem frá Gunnari Smára kemur er þessu dæmalausa yfirboðamarki brennt. Vafasamari pappír hefur varla verið borin fyrir íslenska kjósendur en stefna sósíalíska hugmyndafræðingsins.

Tímabært er að endurtaka gamla slagorðið: Varizt vinstri slysin!"

Það þarf meiriháttar trúgirni til að gleypa boðskap þessa hentistefnumanns sem vill endurreisa fátæktarboðskap Castrobræðra á Kúbu. Það er hinsvegar raunveruleg hætta á því að einhverjir sjái ekki í gegn um þokuna sem hann þyrlar upp.Býður að " binda í sveitum sóslkinið, sérhvert loforð stend ég við", eins og Örn Arnarson lýsti framboðsræðu Odds Sterka af Skaganum sem ég man eftir.

Ég heimsótti Kúbu fyrir nokkrum áratugum þegar Raul var að taka við og horfði á tvöfalda hagskerfið með sérmynt fyrir útlendinga og hvernig neðanjarðarhagkerfið hélt lífinu í fólkinu. Hvarvetna svindl og svíanarí hjá bláfátæku fólkinu og var þó ástandið að lagast þar mikið þá frá því sem verið hafði á Sovéttímanum.

En þar fékkst ekkert, skortur á öllu og allt á hverfanda hveli.Tómar bílabrautir og umferðarbrýr. Allt í hönk sem hugsast gat.En öllu haldið í járngreipum lögreglu og hers.

Ég veit varla hvort ég á að hlæja eða gráta þegar ég horfi á þetta fyrirbrigði Gunnar Smára Egilsson prédika pólitík?  Á þjóðin virkilega að framfæra þennan mann næstu ár og láta hann eyða tíma Alþingis með bulli sínu?

Það er hreint út sagt hálf skelfileg tilhugsun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Their sem kjosa thetta fyrirbaeri, hljota ad vera illa vid land og thjod og jafnframt ad hata ad bua i thjodfelagi thar sem folk hefur sjalfsagdan adgang ad lyfjum, mat og odrum naudsynjum.

Aetti ad nafnabirta tha sem kjosa svona andskotans vitleysu. 

Sigurður Kristján Hjaltested, 16.7.2021 kl. 07:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3418447

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband