Leita í fréttum mbl.is

Hærri skatta !

Hagfræðingur frá Bandaríkjunum kom fram í sjónvarpinu okkar  í kvöld  og ásakaði stjórnvöld þar í landi  um að bregðast rangt við kreppunni með því að hafa ekki lækkað skatta. Ekki er líklegt að þessi kenning veki mikla athygli í ríkisstjórn Íslands eða hjá hennar hagfræðingum. Þeir voru aldeilis glaðklakkalegir saman þeir Indriði Þorláksson og Stefán Ólafsson þegar þeir lýstu því  í blaðaviðtali nýlega, að hér yrði að stórhækka skatta.    Katrín Júlíusdóttir segir í útvarpi í dag að  150 milljarða halli sé á ríkissjóði og því verði að hækka skatta duglega.

Eru þarna ekki komnir snertifletirnir í komandi kosningum ?

Vinstriflokkarnir vilja allir hækka hér skatta sem allra mest. Þeir reyna að telja fólki trú um að breiðu bökin verði látin borga, ekki almenningur.  Allir vita að það getur ekki gengið upp. Þeir munu leggja byrðarnar  á allan almenning. Hinir eru bara ekki nógu margir til að borga. Vinstri menn hafa aldrei þekkt aðrar leiðir en hækka skatta sem mest til að geta úthlutað til sérþarfahópa.  

 Eina stjórnmálaaflið sem vill fara sem hægast í auknar álögur á almenning er Sjálfstæðisflokkurinn.  Valið er því skýrt þegar til kosninga kemur.  Kjóstu Sjálfstæðisflokkinn ef þú vilt hófstillingu í skattamálum.  Kjóstu aðra flokka ef þú trúir því að hærri skattar séu það sem þjóðin þarfnast til að komast uppúr öldudalnum. Kjóstu þá  ef þú vilt borga hærri skatta !

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já kysstu vöndinn og biddu um meira af efnahagslegu hruni. Þú veist það sjálfur að það er AGS sem setur stefnuna í þessum málum og það lá fyrir í fyrrverandi ríkisstjórn að það þyrfti að hækka skatta. Þú veist líka að það er verið að lækka vexti allsstaðar nema hér á landi. Hvers vegna lækkuðu Sjálfstæðismenn ekki vextina þegar þeir voru í stjórn. Það er af nákvæmlega sönu ástæðu sem það þarf að hækka skatta, það er út af 18 ára óstjórn Sjálfstæðisflokksins.Það er ógeðfelt hvernig þú ætlar að nota óheiðarlegu smjörklýpu aðferðina við að klína því að vinstri menn að það þurfi að hækka skatta, það hefur alltaf legið fyrir.

Kunnið þið enga aðra leið en óheiðarleika? Þið voruð svo stoltir af Davíð þegar hann sagði frá því glaðbeittur að engin önnur en amma hans hefði kennt honum þessa óheiðarlegu aðferð, að klína óhróðri á aðra til að losna undan gagnrýni. Ég ætla rétt að vona að það séu ekki gildin sem þið hægrimenn kennið börnunum ykkar. Annars veit ég að þið kennið þeim ég um mig frá mér til mín og skítt með alla aðra hugmyndafræðina, og það er sorglegt. En verði þér að góðu með að kjósa flokkinn sem kom landinu á hausinn. Ég kaus þennan flokk einu sinni þegar hann var flokkur sem byggði á því að stétt væri með stétt, en það er liðin tíð.

Valsól (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 06:53

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur á enga sök á hruninu. Flokkur er ekki ábyrgur fyrir framferði einstakra manna, hvað þá glæpamanna. Sem mergir hafa aldrei einu sinni verið í Sjálfstæðisflokknum.

Þú gekkst fram undir kjörorðinu Stétt með Stétt.  Hefur sjálfstæðisstefnan eitthvað breyst ?  Hvernig getur þú sett samasem merki milli hennar og framferðis einstakra manna ?

Innan flokka hafa menn ólíkar skoðanir bæði á mönnum og málefnum. Mér finnst það einföldun að fordæma skóg útrá einstökum laufblöðum. 

Halldór Jónsson, 10.3.2009 kl. 12:05

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Draumur vinstrimanna er sá að öll laun allra manna gangi beint til ríkisins og þeir síðan [þ.e. vinstrimennirnir] vilja úthluta aftur til fólksins eftir eigin geðþótta.  Þetta köllum við kommúnisma.

Bestu kveðjur,

Tómas Ibsen Halldórsson, 10.3.2009 kl. 12:50

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Nákvæmlega Tómas

Halldór Jónsson, 10.3.2009 kl. 13:31

5 Smámynd: Héðinn Björnsson

Það er efnahagsstefna Sjálfstæðisflokksins sem gerði það að verkum að stóreignamenn fengu helstu framleiðslutæki landsins og þar með möguleika að veðsetja þau upp í topp. Það þarf að stöðva þessa stefnu og flokkinn sem ber hana fram ef koma á í veg fyrir að sömu auðmenn eða nýjar útgáfur af þeim fái aftur að ráðstafa stórbönkum og öðrum grunnstoðum samfélagsins sér til arðs en samfélagi til endanlegs hruns. Hvað við stefnu Sjálfstæðisflokksins gerir það að verkum að nákvæmlega sama staða komi ekki upp að nokkrum árum liðnum? Er ekki stefnan að endureinkavæða bankana með lítið breyttum reglum og eftirliti? Halda áfram einkavæðingu í orku, heilbrigðis og menntamálum eins og hingað til? Hvað er breytt í stefnu ykkar? Ekki neitt! Að búast við annarri niðurstöðu þrátt fyrir að maður geri allt eins og áður er barasta rugl.

Héðinn Björnsson, 10.3.2009 kl. 17:19

6 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Annar hagfræðingur héðan frá Bandaríkjunum, nánar tiltekið frá Chicago, eins og Al Capone, hefur verið aðal upphrópunarmaðurinn að þessu skattalækkunarblaðri. Hann er síður sen svo upphafsmaður að þessu áhugamáli ákveðins hóps.

Rockefeller sagði einu sinni að kjánarnir héldu að skattalækkun skilaði betra lífi. En að þeir betur gefnu í viðskiptabransanum föttuðu fyrir löngu að málið væri að komast á spenann.

Með þeim orðum vil ég benda á að ekki er spurningin um að lækka skatta heldur skoða hvernig opinberu innheimtu skattfé er eytt.

Ólafur Þórðarson, 10.3.2009 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418271

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband