Leita í fréttum mbl.is

Frjálshyggan.

Það er í tízku hjá kommunum að tala um að Sjálfstæðisflokkurinn og frjálshyggjan, ef ekki nýfrjálshyggjan, sem enginn skilur hvað þýðir, hafi sett landið á hausinn.

Mér finnst að margir alhæfi með þessu um eitthvað sem þeir skilja ekki sjálfir. Það er einfalt í hugum margra að setja samasemmerki milli þessara þriggja hugtaka og svo hreinnar glæpastarfsemi.

En þetta er auðvitað ekki sæmandi hugsandi mönnum. Þetta eru gersamlega óskyld hugtök.

Megum við kalla það frjálshyggju, þegar Seðlabankinn lánar Kaupþingi 550 milljarða með veði í bankahlutabréfum og þeir lána þá umsvifalaust án teljandi trygginga til sjálfra sín og viðskiptafélaga sinna, Roberts Tenghuiz eða hvað hann heitir einn kumpán þeirra.  Ég held að þetta sé ekki frjálshyggja í Kaupþingi. Þetta er hrein glæpastarfsemi . Og veðtökuval  Seðlabankans  heldur ekki frjálshyggja heldur skortur á almennu viðskiptaviti.

Já, Davíð sagði að íslenzka réttarkerfið réði ekki við stærri mál en innbrot í sjoppur. Enda varð lítið úr því gagnvart óvígum her  lögfræðinga Jóns Ásgeirs,  þar sem varnarkostnaður skipti ekki máli. Eftir þann dóm sem fann ekkert athugavert við það að  Jón Ásgeir keypti Baug handa sér og pabba sínum með peningum almenningshlutafélagsins Baugs,  missti ég algerlega trúna á getu íslensks  réttarfars.  Það er bara allt í lagi allstaðar. En þetta er ekki frjálshyggja heldur allt annað.

Viðskiptahöftin núverandi urðu vissulega til undir stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Þau eru enn við líði og verða líklega lengi.  Þau eru hinsvegar ekki frjálshyggja. Og líka fráleitt samrímanleg sjálfstæðisstefnunni. Þessvegna eru SJálfstæðisflokknum flestar bjargir bannaðar í hugsjónabaráttunni meðan þetta ástand varir.   Bankarekstur ríkisins núna er heldur ekki frjálshyggja heldur ómengaður ríkisrekstur, sem SJálfstæðisflokkurinn getur ekki þolað mikið lengur.

Mér finnst almennt að fólk verði að greina á milli frjálshyggju og hreinnar glæpastarfsemi á fjármálasviði.  Glæpamenn eru ekki frjálshyggjumenn heldur glæpamenn, sem svífast einskis fyrir sig og sína hagsmuni. Hverskyns mismunun þegnanna, eins og misvægi atkvæða í kjördæmunum  er ekki frjálshyggja. Kvótakerfið verður aldrei frjálshyggja þó Hannes Hólmsteinn hafi reynt að gera það þannig í sínum málflutningi.

Það var heldur ekki frjálshyggja sem birtist í  vaxtastefnu Seðlabankans hvorki þá né núna. Hún  keyrði þá upp þensluna og hágengið með innstreymi  jöklabréfanna. Nú kyrkir hún það litla sem eftir er af atvinnulífinu enda erum við smáð þjóð í hafti, kreppu og eymd.  Margt sem Seðlabankinn gerði reyndist bara vera  vitleysa og hellti olíu á eldinn. Seðlabankinn  gerði hinsvegar ekkert til að hafa hemil á skuldasöfnun bankanna, sem enduðu með því að setja okkur á hausinn.  Hann gat það  en gerði ekki. Núna er eiginlega sama hvað hann gerir. Hann er fangi IMF eða AGS.

Svo hvað er frjálshyggja ?  Er það frjálshyggja að leyfa okkur að hegða okkur að vild í góðærum ? Ef verðbólga er lág og atvinnustig hátt, þá förum við í verkfall og keyrum verðbólguna á stað með kjarasamningum sem kerfið ber ekki. Þá höfum við hafst krónuna sem við getum fellt að vild.   Ef við verðum komnir með Evru eða dollar, þá verður svona hegðun  erfiðari. En verður það betri frjálshyggja eða verri að taka þjóðfélagið í gíslingu bara af því að maður kemst upp með það ?

 Frelsi eins má ekki ganga útyfir frelsi annars. Það er frjálshyggja John Stuart Mills. Frjálshyggja er einn maður eitt atkvæði. Frjálshyggja er frelsi einstaklingsins til orðs og æðis. Ekkert af þessu er uppfyllt á Íslandi í dag.

Við skulum ekki láta andstæðinga frelsins komast upp með að afflytja frjálshyggjuna. Því þá erum við farin að gera málamiðlanir með frelsið sjálft.

Frjálshyggjan er samstofna frelsinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Halldór, æfinlega !

Við þjóðernissinnar; kunnum nú alveg, að punda á þennan sóðaskap miðju moðsins, sem frjálshyggju Kapítalisminn, svo sannarlega er.

Hygg; að Kommúnizku andskotarnir, hafi engan einka rétt á, að hnýta í þennan ófögnuð; sem jarðneskar leifar Sjálfstæðisflokksins (vonandi), nærast á - verkfræðingur góður.

Hví; endurreisið þið ekki, gamla Íhaldsflokkinn, og svælið þar með, spillingar hyskið, kringum Bjarna Benediktsson yngra, úr ykkar umhverfi, endanlega ?

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 22:16

2 Smámynd: corvus corax

Það má einu gilda hvað menn vilja kalla glæpastarfsemina, frjálshyggju, nýfrjálshyggju eða hvað annað sem vera vill. Staðreyndin er hins vegar sú að þessi glæpastarfsemi sem enginn veit víst hvað á að kalla er skilgetið afkvæmi efnahagsstjórnar sjálfstæðisflokksins og spillingarforkólfa hans undanfarna áratugi. Má þar helst nefna Davíð Oddsson, Björn Bjarnason, fávitann Árna Mathiesen og svo í réttri stafrófsröð alla hina sjálfstæðismennina í ríkisstjórnum, á alþingi, í dómskerfinu, lögreglustjórasætum og stöðum embættismanna út um allan opinbera geirann. Þetta er glæpahyskið sem komið hefur öllu á kaldan klaka hér á landi með dyggum stuðningi valda- og bitlingafíkla framsóknarflokksins gegnum tíðina. Þar fór fremstur glæpaforinginn Halldór Ásgrímsson og síðan Valgerður undirlægjan hans Sverrisdóttir, Finnur Ingólfsson og svo allt framsóknarhyskið í röð.

corvus corax, 21.4.2009 kl. 14:28

3 Smámynd: Gísli Ingvarsson

,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,x!,,,,,,,,,,, = ógeðslega margir ógeðslegir kommar að ógeðast á aumingja frjálshyggunni.

Gísli Ingvarsson, 21.4.2009 kl. 14:55

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Steingrímur 

Flestir telja að það ætti að vera ólöglegt að taka peninga úr almenningshlutafélagi og nota þá peninga til að sölsa undir sig sama almenningsfélag. Eða taka nýfenginn ríkisstyrk og lána hann strax sjálfum sér og vini sínum án trygginga. Og fleira og fleira. Þetta er ekki Sjálfstæðisflokknum að kenna frekar en Benjamín Franklín gat borið ábyrgð á störfum Al Capone. 

Berð þú ábyrgð á að Ólafur Ragnar stöðvaði fjölmiðlalögin ? 

Halldór Jónsson, 23.4.2009 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418280

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband