Leita í fréttum mbl.is

Framtíð BYR.

Ég gerði mér ferð upp í BYR í Kópavogi til þess að sjá hvort forsíðufréttin í Baugstíðindunum á mánudaginn var hefðu komið af stað áhlaupi á sparisjóðinn. Ég gat ekki séð annað en allt væri með kyrrum kjörum enda yfirlýsing íslenska ríkisins í tíð Geirs Haarde um innistæðitryggingar í gildi ennþá. En ekki lengi, því Steingrímur J. ætlar að vinna skemmdarverk á því trausti almennings sem öðru með því að afnema hana. Þess vegna hafði þessi vaxtalækkun Seðlabanka lítil áhrif þegar hún er samfösuð stórhækkuðum fjármagnstekjuskatti sama manns. En þessi atlaga Baugsveldisins tókst ekki sem betur fer og allt var með kyrrum kjörum. En eitthvað þarf að gera varðandi framtíðina.

Skemmdarverk Steingríms J. og VG  mun lengi sjá stað í efnahagslífi þjóðarinnar. Brjálaðar skattahugmyndir, skemmdarverk á hagsmunum Íslands í Kaupmannahöfn, skemmdarverk á orkufrekum framkvæmdum, ríkisvæðing atvinnulífsins, allt eru þetta miklir viðsnúningar frá öllu sem við áður þekktum. Og til viðbótar er Steingrímur höfuðgerandi, með Jóhönnu auðvitað,  í því að hneppa þjóðina í óbærilegan skuldavanda með heimskulegum samningnum um Icesave, sem hann og Svavar Gestsson gerðu og ríkisstjórnin undirritaði sem er bindandi og gerður hlutur, hvað svo sem fjasað er um á Alþingi um ríkisábyrgð eða ekki. Skaðinn af Icesave er skeður, við erum komnir í þrældóminn Íslendingar, búnir að vera hvað sem forsetinn eða Indefence fólkið gerir. Það er aðeins hægt að taka Icesave málið upp á pólitískum grundvelli  með nýjum samningum. Það verður ekki gert með þeim samningamönnum sem síðast komu að málinu hvað þá núverandi ríkisstjórnarflokkum. Þess eina jákvæða við þeirra stjórnarsetu er það að því lengur sem þeir sitja við völd, þeim mun lengra tímabil mun líða þar til að fólkið kýs aftur yfir sig vinstri stjórn. Síðast höfðum við átján ára hlé frá Steingrími J, næsta verður vonandi ekki styttra. Að því leyti er Steingrímur besti maður Sjálfstæðisflokksins að hann gerir  allt sem hann getur til þess að lengja þetta tímabil.

En ég ætlaði að tala um BYR. Vitað er að fyrirtækið er í tröllahöndum. Þar situr stjórn sem að meirihluta tengist fjármálgerningum sem eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. En í þeim seldu stjórnarmenn verðlausa stofnfjárpappíra til pappírsfélags fyrir fúlgur sem þeir tóku beint úr sjóðum bankans sem þeir áttu að gæta. Litlir bankamenn voru nýlega dæmdir í tukthús fyrir að vinna vinnuna sína og reyna að fegra stöðu bankans sem þeir unnu hjá án þess að taka neitt fyrir það sjálfir. Stórlaxarnir úr bankahruninu og stjórnarmennirnir úr BYR valsa allir keikir um. Einn þeirra ósvífnustu, Bjarni Ármannsson,  gerir meira að segja milljarða kröfur í þrotabú gamla Glitnis sem líkindi eru þó meiri fyrir að hann hafi stórskaðað í sinni þýlyndistíð við Jón Ásgeir og þá fósa alla.

 Endurskoðandi BYR  situr sem fastast eftir að hafa orðið uppvís að gerð ársreiknings fyrir BYR sem stórkostlega hlýtur að hafa fegrað niðurstöðurnar fyrir síðasta aðalfund og þagað um önnur atriði því bankinn var umsvifalaust kominn á hausinn skömmu síðar. Sparisjóðsstjórinn, steig til hliðar svona til að fegra útlitið, en situr bara bakatil og stjórnar í gegnum lögfræðing bankans Jón Finnbogason, þess sama sem úrskurðaði umboð Karenar Millen gilt á síðasta aðalfundi BYR  og hélt þar með gömlu klíkunni í stjórnarmeirihluta. Þeim stjórnarmeirihluta treysta fáir almennir stofnfjáreigendur og greinilega ekki Steingrímur J. heldur þar sem ekkert hefur bólað á áhuga á að moka 10 milljörðum inní þennan sjóð þar sem gamla gengið situr þarna allt inni, hvað sem sérstökum saksóknara og rannsóknum hans á viðskiptunum við Exeter líður. Flestir stofnfjáreigendur sem ég hef hitt telja að Það verði að hreins út úr stjórninni í BYR og endurreisa trú og traust á stjórnendum bankans ef sparisjóðahugsjónin á að eiga möguleika á að lifa.

Ég hef reynt að fá undirtektir við það að almennum stofnfjáreigendum í BYR verði veitt lán til að kaupa aukið stofnfé í BYR á sömu kjörum og VBS og Saga Capital fengu til að redda sér. Þá gætu stofnfjáreigendur hugsanlega safnað liði til að styrkja BYR án aðkomu ríkisins. En auðvitað eru þeir hremmdir eftir síðustu orrustur og ófúsir til nýrra átaka eins og sveitungar Þórðar  kakala urðu. Vandamálið í BYR er hinsvegar hvernig stórir óprúttnir aðilar hafa traðkað á sparisjóðahugsjóninni og notað illa fengin völd sín til að ræna BYR og rupla með þeim afleiðingum að hann situr stórskaddaður eftir. Og það sem verra er að þeir krókarnir fá að valsa ennþá með völdin þrátt fyrir tengsli sín við fjársvik af miklu umfangi. Ætli ríkissjóður hugsi sér að þeim verði afhentir 11 milljarðar og þeir fái bara áfram að leika lausum hala, sparisjóðsstjórinn, endurskoðandinn og allt það? Af hverju ekki að setja þarna inn alvöru bankamann sem fólk getur treyst ?

 Þó að ríkisbankarnir séu löngu búnir að hirða stofnfjárbréfin í BYR af stórlöxunum í veðköllum þá halda þeir áfram með atkvæðisrétti sína eins og ekkert hafi í skorist og greiða sjálfsagt atkvæði á næsta fundi samkvæmt því. Litlu mennirnir eru að verða uppgefnir á þessu ástandi þó að þeir hafi haldið áfram að veita viðnám í Exeter málinu og jafnvel uppskorið hótanir um lögreglukærur frá lögfræðingi gangsteranna fyrir.

Stofnfjáreigendur eiga sér sparisjóðahugsjónina fyrir draum. Þeir vilja að BYR lifi. En þeir vilja tryggja að krókarnir yfirgefi musterið svo að fyrirtækið verði hafið upp yfir allan vafa og verði heiðarlegt og trúverðugt fyrirtæki aftur. En það er eins og að Steingrímur J. hafi ekki neinn áhuga á öðru en ríkisvæðingu eða lokun. Annað skilur hann auðvitað ekki. Því er ekki mikil von til þess að BYR verði endurreistur til þess hlutverks sem hann átti að vera, banki og vinur fólksins sem átti hann, ekki spilaborð víxlaranna í musterinu. Það þarf að stinga út. 

Þá getur BYR átt framtíð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Það er með hreinum ólíkindum, miðað við lög landsins, að þessir sem gerðu árásirnar á Sparisjóðina sem nú heita Byr, gangi enn lausir OG GETI JAFNVEL RIFIÐ KJAFT.

Í alvöru þjóðfélögum væru þeir allir með tölu komnir í grjótið og búið að taka af þeim þýfið (fyrirfram greiddan arð) með rentu.

En hér eru bara lyddur við völd, sama úr hvaða flokki þeir koma.

Svo eru LÍjúgararnir, sem hafa ,,hagrætt" svo mikið í ,,greininni" að allt er í bólakafi í skuldum en þeir með tölu ríkir menn. 

Sömu LÍjúgarar eru að bjóða gjaldeyri í brask og svikamyllur, svo mjög, að talið er nema um það bil virði als Þorsks sem veiddur er við landið.  Sömu þjófarnir halda innblásnar ræður á Landsfundum um, hvað þeir eru önnum kafnir við vinnu --allt í þágu þjóðarinnar.

Manni fer að flökra enn meir af þessu liði öllu saman.

Ef þetta eru vinir þjóðarinnar, þurfum við ekki óvini.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 11.12.2009 kl. 08:39

2 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Úrræðaleysi og hægagangur í íslensku réttarkerfi er náttúrulega alveg óþolandi og að þessir fjárglæframenn skuli allir ganga lausir, vafalaust haldandi leik sínum áfram eins og ekkert hafi í skorist og það þarf ekki að koma á óvart þó þeir verið séu orðnir eða á leiðinni að verða stærstu eigendur bankanna aftur með dyggri aðstoð ríksstjórnarflokka og skilanefnda. Markmið og tilgangur "skilanefndanna" var kannski alltaf að skila þjófunum þýfinu aftur....?

Ómar Bjarki Smárason, 12.12.2009 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418235

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband