Leita í fréttum mbl.is

Hættan af sérfræðingum

sérstaklega handvöldum hefur stundum leitað á mann þegar stjórnvaldsaðgerðir sem manni finnast ekki réttar eru sagðar byggjast á áliti sérfræðinga í viðkomandi máli.

 Skemmst er að minnast síðustu ríkisstjórnar sem sífellt var með álit frá Háskólasamfélaginu til að réttlæta fyrir sig óskynsamlegar ákvarðanir sínar.Haft var þá við orð að hægt væri að kaupa sérfræðiálit í hverju sem væri til að styrkja sinn málstað þó að við blasti að verið væri að veifa röngu tré frekar en öngu.

Hinn mikli baráttumaður fyrir Reykjavíkurflugvöll Friðrik Pálsson ritar opið bréf til Isavia í í Mbl.í dag:

"Sæll vert þú. Isavia var falið í árslok 2013 að meta áhrif lokunar neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli að teknu tilliti til flugöryggislegra þátta.

 

Isavia setti saman áhættumatshóp, sem í áttu m.a. sæti flugöryggisfulltrúar flugrekstraraðila, allt flugmenn, sumir með áratuga reynslu sem flugstjórar í áætlunar- og sjúkraflugi.

 

Þessi hópur vann samkvæmt viðurkenndu greiningarferli og komst að sameiginlegri, rökstuddri niðurstöðu um að áhættan af lokun neyðarbrautarinnar fyrir flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli væri óásættanleg. Sú niðurstaða var Isavia ekki þóknanleg og var þessi nefnd því bara leyst frá störfum.

 Þá handvölduð þið hjá Isavia ráðgjafa til verksins, verkfræðistofuna Eflu, og þeir reiknuðu út forsendur sem reyndust vera Isavia þóknanlegar, enda hefðu þeir annars væntanlega líka verið leystir frá störfum.

 Út frá því og án þess að þurfa að þiggja ráð frá þessum fagmönnum í flugi og flugöryggi varð niðurstaða Isavia svo sú að áhrifin af lokun neyðarbrautarinnar séu óveruleg.

 Þessi vinnubrögð eru vitanlega ekki sæmandi stjórnsýslu landsins, en erindi bréfs míns er hins vegar þessi spurning: Hvað er óverulegt að mati Isavia þegar fjallað er um flugöryggi?"

Fyllsta ástæða er til að spyrja sig hvort handvalin verkfræðistofa á landi  hafi meiri þekkingu á öryggisþáttum í flugi en nefndin sem leyst var frá störfum hjá Isavia?

Er úr vegi að spyrja sína heilbrigðu skynsemi fyrst áður en maður kingir keyptum álitsgerðum sérfræðinga? Eru sérfræðingar svo óskeikulir?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já Halldór, sérfróður maður að sunnan var af okkur þorpurum á austurlandi síldaráranna og reyndar nokkru lengur, talin sendur okkur strákunnum til skemmtunar en stelpunum til snúnings væri ball. 

Þessir sérfróðu menn og við als ófróðir  skiptumst á skoðunum og vorum sáttir að mestu.  En svo kom svona fyrirbæri eins og Óli svarti. 

Hann sagði mér á balli að hann væri ekki vondur maður, en þetta væri vinnan hans.  Já sagði gamli vélvirkin við hliðina á mér, þitt verk er að telja útgerðarmönum trú um að vélar sem gerðar eru fyrir velhreinsað eldsneyti geti gengið á kolum.  Óli svarti varð svo hneykslaður að hann hvarf án reyks.          

Hrólfur Þ Hraundal, 25.1.2015 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband