Leita í fréttum mbl.is

"Brotnir naglar

og brenndar sálir" er yfirskrift átakanlegrar greinar eftir Bjarna Ólaf Magnússon, lögreglumann til þrjátíu ára, sem hann skrifar í sunnudagsblað Morgunblaðsins. 

Þar lýsir hann starfsumhverfi lögreglunnar í dag og þegar hann byrjaði. Maður spyr sig hvort að það hafi verið svona mikil yfirmönnun í lögreglunni þegar hann byrjaði? Lögreglumönnum á vakt hefur nefnilega verið fækkað um helming jafnframt því að fólki hefur fjölgað um helming og umferð tvöfaldast.

Hann lýsir líka bágum kjörum lögreglumanna sem rétt skrimta á sínum launum. Ég man nú þá tíma fyrir þrjátíu árum að lögreglumenn sem ég þekkti talsvert vel voru sívinnandi við mótarifrildi á frívöktum eða hvaðeina til að komast af. Þetta virðist ekkert hafa breyst nema starfið orðið bæði hættulegra og erfiðara.

Bjarni Ólafur lýsir því hvernig starfið fer með þá sem gegna því með því að vitna í "BlackElkSpeaks".." í hjartanu er steinn með hvassar eggjar og við hverja sorg og við hverja erfiða reynslu þá snýst hann einn hring og særir hjartað að innan. Þetta er svolítið þannig.Erfitt að tala um hræðsluna..." 

Þegar maður hugsar til þess hvað á þessa menn var lagt í búsáhaldabyltingu kommúnistaskrílsins sem nær hafði lagt lýðveldið okkar að velli, þá hefur maður meiri samúð með bágum launakjörum þessara manna heldur en margra annarra opinberra starfsmanna.  Skyldi annars ekkert hafa verið hugað að varalögreglu og hríðskotabyssukaupum eftir þá reynslu? Mér verða hetjurnar nafnlausu ógleymanlegar sem gengu fram fyrir örþreytta lögreglumennina þá þeim til varnar við stjórnarráðið og störðu ofbeldisskrílinn niður.

Lögreglumenn eru líklega of fáir og líklega of illa launaðir. En hverjir eru það ekki? Allir kveina og kvarta. Aldraðir lifa ekki nema  ef eignatekjur komi til. Bendir það til annars en að tekjur ríkisins séu of litlar? Munu þær aukast við að fjölga viðteknum flóttamönnum og hælisleitendum? "Góða fólkið" gerir aldrei grein fyrir því hverjir eigi að borga góðverkin þegar upp er staðið.

"Upp með hendur, niður með brækur, peningana eða ég slæ þig í rot" Það er sú röksemdafærsla sem virðist duga best í hinni heilögu kjarabaráttu. Lögreglumenn virðast ekki upp yfir þetta hafnir frekar en aðrir ef marka má fréttir. Ekki hef ég lausnir á því frekar en aðrir. En maður gæti spurt sig hvort aukinn hluti í fasteignagjöldum, áfengisgjöldum og bifreiðagjöldum ætti ekki renna til aukinnar löggæslu í landinu? 

Allavega vil ég hvetja fólk til að lesa þessa grein Bjarna til að fá innsýn í þennan harða heim sem við lifum í. Þar geta margir naglar bognað og margar sálir brennst illa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í hvern ætlar þú að hringja?

Þegar slys verða, ofbeldi, þjófnaður, sjálfsmorð og allt sem getur farið úrskeiðis.

Þá hringir þú í lögegluna sem er fyrst á staðinn.

Hugsum um það.

sigurður bjarklind (IP-tala skráð) 10.10.2015 kl. 17:56

2 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Þetta er mjög átakanleg grein, skilmerkileg og vel skrifuð. Mér finnst hún lýsa vel hugarheimi lögreglumanns í hringiðunni og hvernig þessi innantök geta náð yfirhöndinni, ef ekkert er að gert.

Við vitum alveg hvert á að hringja, ef svo ber undir, og hvað gerist síðan í framhaldinu. Þessi grein breytir engu um það að ef við þurfum að hringja þá verður svarað.

Sindri Karl Sigurðsson, 11.10.2015 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband