Leita í fréttum mbl.is

"Úr Schengen strax"

er fyrirsögn á grein heillakarlsins Baldurs Ágústssonar " fyrrum Forsetaframbjóðanda". Hann mælir þar hvert orð sannara öðru að margra mati.

Hanns skrifar svo:

"Árum saman hefur fólk mótmælt aðild okkar að Schengen-»landamæraklúbbnum« með blaðaskrifum, bloggi o.fl. Sjálfur skrifaði ég grein í Morgunblaðið 24. september, 1999 - sem sagt áður en við hófum virka þátttöku í Schengen-samstarfinu. Margir aðrir hafa mómælt síðan eins of oft má sjá í blöðunum.

 

Schengen mært við Íslendinga

 

Þegar verið var að segja almenningi frá ágæti Shengen voru settar fram nokkrar fullyrðingar sem vert er að rifja upp.

 

Í fyrsta lagi: Íslendingar munu ekki þurfa að bera vegabréf á ferðum innan Evrópu - hvers virði sem það átti nú að vera!

 

Í öðru lagi: Ferðafrelsi« átti að vera milli Schengen-landanna en hver þjóð átti, á sinn kostnað, að annast landamæragæslu á þeim hluta ytri landamæra Shengen-svæðisins að henni snéri. Þannig áttu Spánverjar t.d. að annast gæslu á »Schengen-landamærunum« á suðurströnd sinni og Frakkar á sama hátt á vesturströnd sinni. Milli þessar tveggja landa átti ekki að þurfa gæslu - þau eru bæði innan Schengen-svæðisins. Sama gildir um mestalla Evrópu. Ísland gætir þannig norðvestur-landamæra Schengen.

 

Í þriðja lagi: Aðild að Schengen átti að veita okkur aðgang að gagnagrunni sem innihélt upplýsingar um þekkta glæpamenn um alla Evrópu svo við ættum auðveldara með að þekkja þá og hindra komu þeirra til Íslands.

 

Í fjórða lagi: Ráðamenn þjóðarinnar sögðu nauðsynlegt að tilheyra Schengen því annars gætum við og aðrir íbúar Norðurlanda ekki ferðast án vegabréfs milli Íslands og hinna Norðurlandanna en um það hafði verið samið einhverjum árum áður.

 

Hvernig tókst svo til?

 

Í einu orði sagt: ömurlega! Tilkynning frá dómsmálaráðuneytinu - strax í upphafi - sagði fólki til að taka vegabréfið með. Og núna? Við innritun í Leifsstöð erum við beðin að sýna vegabréf - jafnvel þó að ákvörðunarstaður okkar sé annað Schengenland !

 

Aðgangur að gagnagrunni um afbrotamenn er e.t.v. til aðstoðar við löggæslu hér á landi. Hann er hinsvegar of dýru verði keyptur með aðild að Schengen. Við höfum t.d. lengi átt ágætt samstarf við alþjóðalögregluna Interpol.

 

Athyglisvert er að Bretland - sem er ekki er aðili að samningnum fékk og hefur full afnot af gagnagrunninum.

 

Maður hlýtur að spyrja: Var aðild kannski aldrei nauðsynleg?

 

Einhvernveginn finnst manni sjálfsagt að ríki skiptist á upplýsingum um hættulega glæpamenn án þess að aðild að frjálsu ferðasambandi sé gerð að skilyrði. Einhvern veginn finnst manni að stjórnvöld fari stundum frjálslega með staðreyndir þegar upplýsingar eru veittar okkur landsmönnum.

 

Fyrir u.þ.b. tveim árum fór fólk að flykkjast frá Afríku til Spánar. Fljótlega fóru Spánverjar fram á að ESB styddi þá og styrkti við landamæragæsluna - þrátt fyrir fyrrnefnd ákvæði Schengen-samningsins. Sama sagan endurtók sig svo með Ítalíu og Grikkland. Af þessu getum við séð hvernig þátttökuríkin standa við samninga og ekki síður hvernig ESB fer með framlög þátttökuríkjanna - og vill síðan fá aukin framlög frá ríkjum sínum, m.a. til að kosta gæsluna sem þessi lönd áttu sjálf að bera.

 

Trygg landamæri - öruggt land

 

Ferðafrelsi milli Norðurlanda hefur sjálfsagt þótt eðlilegt á þeim tíma sem um það var samið, þjóðirnar af sama meiði og með sameiginlega sögu, menningu og lífsmat. Nú eru hinsvegar breyttir tímar: Stór hluti þeirra sem þar búa eru hvorki innfæddir Svíar, Norðmenn né Danir, heldur Austurlandabúar eins og t.d. Íranir og Sýrlendingar. Þetta fólk hefur alist upp við önnur trúarbrögð, menningu og þjóðfélagsleg gildi og uppbyggingu. Það stenst því ekki lengur að hafa frjálst flæði ferðamanna og fólks í leit að atvinnu og betri búsetu frá þessum löndum. Að vitna í sameiginlega fortíð Norðurlandanna, menningu og tungumál er ekki aðeins rangt heldur beinlínis villandi og hættulegt.

 

Frá náttúrunnar hendi höfum við einhver bestu landamæri í heimi. Notum þau og gætum þeirra sjálf. Þau eru skurnin utan um fjöregg okkar; landrými, auðlindir, lága glæpatíðni og heiðarlegt samfélag við bestu skilyrði.

 

Schengen-samningurinn gerir Íslendingum illt eitt eins og reyndar margt annað sem undan ESB kemur. Þegar við lítum til annarra Schengen-landa og frétta frá t.d. Miðjarðarhafsströndum þeirra, er ljóst að engir gæta Íslands betur en íslensk lögregla, útlendingaeftirlit og - þar sem það á við - Landhelgisgæslan.

 

Við eigum tafarlaust að segja okkur frá Schengen, taka upp eigin landamæragæslu og hætta þessari sífelldu þjónkun við ESB, erlend þjóðríki og stofnanir sem er til hreinnar skammar og niðurlægingar."

Ég tek undir þessi orð Baldurs. Það er ólíðandi að sjónarmíð þeirra Björns Bjarnasonar og Halldórs Ásgrímssonar séu höfð að slíkum lögum að ekki megi ræða eða draga í efa þessa gjörð sem þeir áttu mestan þátt í að koma á.

Bretar eru eyþjóð eins og við og sáu strax að þetta hentaði þeim engan veginn að verða ytri landamæri. Þeir ýttu með því kaleiknum til Íslands og við drukkum í þýlindisbotn að vanda með ómældum erfiðleikum og böli sem yfir okkur hefur hellst.

Fram kemur hjá Baldri að Bretar njóta ókeypis alls þess sem okkur var talin trú um að við fengjum afhent í staðinn. Enda hindrun glæpa sjálfsögð samvinna milli þjóða. Við getum svo þakkað Schengen straum hælisleitendanna, glæpammanna og annars óþjóðalýðs til landsins sem viðbót við allt meint hagræði.

Úrsögn úr Schengen mætti verða tillaga á Landsfundi Sjálfstæðismanna. Og Vinstri Grænna að auki þar sem þeir hafa líklega fátt vinsælt til að álykta um eftir ESB þjónkun sína og svik. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta er vel sett upp hjá Baldri og vona að hann sendi þetta á alla Alþingismenn. Það eru bara allir sammála þessu nema svona flokkar eins og Samfylking ofl sem vilja vera ósammála til þess eins að vera á mót öllu skynsömu.   

Valdimar Samúelsson, 14.10.2015 kl. 10:29

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei Valdiomar, mér hefur fundist það vera tabú í sjálfstæðisflokknum að ræða þetta , Björn virðist bara ráða þessu.

Halldór Jónsson, 14.10.2015 kl. 11:51

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Er Björn ennþá að agetera fyrir þessari vitleysu. Það hljóta að vera einhverjir með viti þarna í flokkum sem ég hef alltaf kosið. Það verður að hrinda einhverju af stað í þessum málim. Ég sendi Alþingismönnum bréf strax og flóttamannastraumurinn fór að vera áberandi.

Valdimar Samúelsson, 14.10.2015 kl. 12:57

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir, mjög þörf þessi grein Baldurs og velgert að vekja umræðu um hanna Halldór. 

Þó að flestir mínu nær umhverfi hafi skömm á þessu Schengen fyrirbæri þá er það svo skrítið að svo virðist vera sem þingmenn og ráðherrar hafi einhverja sér hagsmuni af því að viðhalda þeim rottugangi sem þetta fyrirbæri veldur.  Að minnsta kosti þá skiptir engu máli hvað sagt er í þessu sambandi, þeir þegja bara allir .  

Hrólfur Þ Hraundal, 14.10.2015 kl. 13:02

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Tek undir með ykkur og þakka fyrir grein Baldurs.

Ekkert skil ég í Birni Bjarnasyni!

Látið hann ekki ráða þessu í flokknum!

Jón Valur Jensson, 14.10.2015 kl. 13:34

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það þarf ekkert endilega  að skilja í Birni Bjarnarsyni í öllum málum ,  hann er ekkert  fullkomnari en við hin sem allt eigum að éta og helst ekkert að skilja. 

Hann á þó margt gott skilið en svei honum ef hann ætlar að halda áfram að styðja þetta Schengen rugl.     

Hrólfur Þ Hraundal, 14.10.2015 kl. 19:26

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Fyrir gefðu Halldór, sé að ég gleymdi að segja, það sem á að segja þegar vel er gert, og þar með tökum við undir orð Baldurs og segum fullum hálsi, úr Schengen strax og notum til þess allar rekur jafnt  brotnar sem heilar að grafa þetta andskotans  rusl sem dýpst.  

Hrólfur Þ Hraundal, 14.10.2015 kl. 20:18

8 identicon

Við innritun í Leifsstöð erum við beðin að sýna vegabréf - Það eru alþjóðlegar reglur sem koma Schengen ekkert við. Schengen aftur á móti er ástæða þess að við þurfum ekki að fylla út ferðapappíra, sækja um inngöngu og framvísa vegabréfi þegar við lendum í Kaupmannahöfn eins og gera þarf fari maður til USA.

Bretland - sem er ekki er aðili að samningnum hefur aðeins aðgang að hluta gagnagrunns Schengen. Til dæmis voru hér stöðvaðir nokkrir mótorhjólakappar oftar en einu sinni fyrir nokkrum árum og mikið gert úr. Menn sem ekki voru dæmdir glæpamenn og því ekki í þeim hluta gagnagrunnsins sem Bretar hafa aðgang að. Og ekki á listum Interpol. Þeir eiga ekki í neinum erfiðleikum með að komast til Bretlands en Schengen gerði okkur kleift að stöðva þá og senda til baka. Svona skeður á hverjum degi og stundum oft á dag. Óæskilegir sem sendir eru til baka og hefðu betur skipulagt ferð til London.

Bretland er ekki aðili að Schengen. Því sem samveldisland þá eru tugir milljóna Asíubúa, Indverja, Ástrala o.s.frv. sem hafa ígildi Bresks vegabréfs en eru ekki í ESB. Bretar hefðu þurft að slíta Samveldinu til að geta orðið gjaldgengir í Schengen.

Þessi fávísu rök Baldurs ganga vel í suma, enda skipta þau ekki máli og engin hugsun lyggur að baki. Lygi á lygi ofan er bara skrautið á kökuna. Kakan sjálf, það sem skiptir máli, er einbeittur vilji til að loka landamærunum fyrir öllum sem ekki hafa rétta trú og húðlit. Þar nær hann í fylgi við þvæluna, lof og hrós. Sem betur fer er þetta svo augljóst og heimskulegt að ekki er nokkur hætta á að nokkur með viti taki undir.

Davíð12 (IP-tala skráð) 14.10.2015 kl. 22:02

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Davíð 12

Hvernig má það vera að þú skrifar eins og vitiborinn maður með rökfestu þar til kemur að síðustu máksgrein. Þá kemur kommúnistinn upp í þér og þú byrjar að bölva og ragna eins og naut í flagi. Svei þér fyrir kjaftinn um þann fróma mann Baldur. Reyndu að vera kurteis og málefnalegur eins og þú byrjar vel

Halldór Jónsson, 14.10.2015 kl. 22:36

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég stend með Hrólfi og segi Úr Schengen strax!

Halldór Jónsson, 14.10.2015 kl. 22:37

11 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Hr. Davíð 12.  Þú ætir að gæta þín sleipunni eins og innfæddir á norðanverðu Snæfellsnesi gera.  En þau orð þín sem hefjast á „Þessi fávísu rök Baldurs ganga vel í suma“   Eru án raka af þinni hálfu og dæma sig þar með  sjálf til dauða.

Allt lífið þurfum við að upp fylla skilyrði og mig hefur ekkert  munað um það og ég vil fá að gera það áfram, svo þeir sem til mín vilja  koma þurfi að gera það sama, en ekki vaða inná mig á skítugum skónum með drasl að selja þá ég vil hafa næði heima hjá mér.  

 

Hrólfur Þ Hraundal, 14.10.2015 kl. 23:24

12 Smámynd: Benedikt V. Warén

Ein smá leiðrétting.  Það voru Þeir kratarnir Jón Baldvin Hannibalsson og Þorsteinn Pálsson sem voru upphafsmenn að koma okkur inn í Schengen.  Það gerðu þeir í glasi þegar skálað var í kampavíni fyrir loforðum þeirra að koma okkur inn fyrir "Gullna ESB hliðið".

Það kom síðan í hlut Björns og Halldórs að koma í veg fyrir það þessir tveir "heiðurs menn" væru gerðir að ómerkingum í alþjóðlegu samstarfi og því var skrifað undir það sem áður var búið að handsala. Nú sér maður að þeir hefðu betur látið það ógert.

Benedikt V. Warén, 15.10.2015 kl. 23:24

13 Smámynd: Jóhann Kristinsson

OOps, sorrý guys, það er of seint að byrgja bruninn, þið eruð dottinn í bruninn.

Hver var aðal ástæðan að ganga i þétt Schengen, við þurfum ekki að sýna vegabréf þegar við ferðumst til Evrópu, vááá Jón Baldvin plataði landsmenn að samþykkja þetta.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 16.10.2015 kl. 03:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418235

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband