Leita í fréttum mbl.is

"Hið heimska fjármagn"

-hjarðhegðun og skammtímahyggja.

Var fyrirsögn á athyglisverðu erindi sem Róbert Guðfinnsson hélt á Akureyri á föstudaginn.

 „Á þess­um árum gerðum við ótrú­lega lít­il verðmæti úr því sem við vor­um að veiða,“ sagði Róbert.

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn sner­ist mikið um að veiða sem mest, en menn gleymdu að tala um hvað yrði um hrá­efnið eft­ir að það kom í land. Íslend­ing­ar veiddu svo mikið að fiski­stofn­an­ir voru „keyrðir niður“. 

 „Við sem vor­um þátt­tak­end­ur í sjáv­ar­út­vegi mun­um þegar magnið skipti öllu máli,“ sagði Ró­bert og sagði mjög mikla pen­inga hafa tap­ast á því hve mikið var veitt. „Hér voru sí­felld­ar geng­is­fell­ing­ar vegna þess að sjáv­ar­út­veg­ur­inn var alltaf á hausn­um þó að það veidd­ist svona mikið!

Það var af því við bjugg­um til allt of lít­il verðmæti úr því sem við veidd­um.

 Þegar kvóta­kerfið var búið að tak­marka veiðarn­ar fóru menn að hugsa um hvern ein­asta fisk; hvernig væri hægt að búa til mest úr afl­an­um sem veidd­ist.“

Hann seg­ist stolt­ur af því að hafa tekið þátt í breyt­ing­um á ís­lensk­um sjáv­ar­út­vegi.

„Við fór­um að aug­lýsa okk­ur um all­an heim á for­send­um nátt­úr­unn­ar.“ 

Ró­bert kallaði fjár­magn skrýtið fyr­ir­bæri. Hjarðhegðunin væri alls staðar eins. Pen­ing­ar eltu pen­inga og óþol­in­mæði að fá fjár­fest­ing­una borgaða til baka væri mik­il.

 „Á meðan við sjá­um ann­ars staðar, í Evr­ópu, Banda­ríkj­un­um og Jap­an, að menn eru að fá 1, 2, 3% ávöxt­un á pen­ing­ana, höld­um við að hér geti ávöxt­un­in verið uppi í skýj­un­um.  Þetta er mis­skiln­ing­ur. Við erum í alþjóðlegri sam­keppni og verðum að hugsa raun­hæft og af skyn­semi. Og það verður að hugsa til langs tíma.“

Hann bend­ir á að lík­lega megi segja að í ferðaþjón­ustu hagi Íslend­ing­ar sér nú eins og í sjáv­ar­út­vegi áður en kvóta­kerfið kom til sög­unn­ar. „Við vöðum áfram. Veiðum og veiðum og veiðum. Ef út­gerðar­menn myndu hegða sér eins og ferðaþjón­ust­an í dag væru nán­ast all­ir tog­ar­arn­ir við suður­strönd­ina og skröpuðu þar botn­inn.

 

 Ró­bert sagði enga til­vilj­un að flest­ir ferðamenn segðust koma til Íslands til að skoða nátt­úr­una „en nátt­úra Íslands er ekki bara gullni hring­ur­inn, Suður­land og Esj­an“.

Aðal­málið sé sem sagt ekki hve marg­ir ferðamenn komi til lands­ins, held­ur að landið allt sé nýtt og að sem mest fá­ist út úr hverj­um og ein­um.

 „Þið trúið því ekki hvað fer í taug­arn­ar á mér þegar menn ríf­ast um það hvor flyt­ur fleiri farþega, Icelanda­ir eða WOW! Þetta minn­ir á skip­stjór­ana á bryggj­unni í gamla daga þegar talað var um hver hefði veitt mest.“

Þarna kemur Róbert inn þá kerfisvillu sem er á fjármálamarkaði. Honum stjórna lífeyrissjóðir landsmanna sem byggja allir á tveimur  kerfisvillum.

Sú fyrri er að í árdaga voru lífeyrissjóðunum sett sú regla að þeir skyldu skila 3.5 % raunávöxtun. Þetta hefur keyrt upp vaxtastigið í landinu svo að óbærilegt er og gersamlega úr takti við markaðsaðstæður í heiminum um leið og lántökur eru bannaðar í erlendri mynt, væntanlega til að vernda heimska Íslendinga fyrir eigin verðbólgu-og verkfallaheimsku sem þeir trúa á sem stórasannleika.

Önnur var að í stjórnir lífeyrisjóða voru aðeins settir pólitískir dillettantar sem höfðu litla þekkingu á fjármálum öðru vísi en að taka næg veð og eins háa vexti og hægt er, auk eigin vegtyllna og vina. Afleiðingin er sú að lífeyrissjóðir er blindir á samfélagsleg verkefni eins og byggingu hjúkrunarheimila fyrir sjóðsfélaga sína.

Þessir sjóðir ætla nú brátt að taka til sín meira en 15 % af allri launaveltu í landinu. Þeir eru áður búnir að sýna fjármálaspeki sína með stórkostlegum töpum í útlöndum sem innanlands án þess að nokkur geri athugasemdir við nema gamlingjarnir sem fengu bara lækkun lífeyrissins í staðinn.

Hjarðhegðun fjármagnsins sem Róbert lýsir er svo bein afleiðing á lágu þekkingarstigi  lífeyrissjóðafurstanna og hræðslu við að ná ekki hámarksávöxtun. Peningarnir fara skiljanlega bara þangað sem boðnir eru hæstu vextir. Og þegar hver ryðst um annan þveran þá verður samfélagsvandinn útundan eins og Helgi Vilhjálmsson í GÓU hefur talað um fyrir daufum eyrum.  

Heimska og hjarðhegðun íslenska fjármagnsins er borðliggjandi staðreynd eins og Róbert Guðfinnsson bendir á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3418363

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband