Leita í fréttum mbl.is

Ekkert frítekjumark

finnst mér eigi að vera fyrir lífeyrisþega.

Ég spurði Bjarna Benediktsson út í þetta á fundinum í Kópavogi. Hversvegna við gætum ekki boðið eldri borgurum að manna eitthvað af þeim þúsund stöðum sem vantar í Keflavík núna án þess að kaupið skerði lífeyrinn þeirra. Bjarni sagði að Almannatryggingakerfið væri tryggingakerfi en ekki lífeyrisskerfi.Það ætti að grípa utan um þá sem ekkert hafa en á kostnað hinna sem meira hafa. 

En hversvegna þarf þetta að hugsast svona? Af hverju má ekki borga fullan skatt af launum sem ellibelgir vinna sér inn og láta hitt kerfið afskiptalaust?

Ellert Schram krati er orðinn formaður í Samtökum aldraðra. Hann segir:

„Við höfum náttúrulega varið miklum tíma í að koma á framfæri röksemdum og sjónarmiðum sem varða fjárhag eldra fólks. Það hefur verið misjafnlega tekið undir það og stundum blöskrar manni hversu kaldrifjuð pólitíkin getur verið þegar kemur að málefnum eldra fólks“, segir Ellert.

Hann segist til dæmis þeirrar skoðunar að það eigi ekki að gilda neinar takmarkanir á því hversu mikla peninga eldri borgarar sem eru á vinnumarkaði vinni sér inn. „Það á ekki að vera neitt frítekjumark og þeir sem hafa lægstu eftirlaunin frá Tryggingastofnun eiga ekki að borga af þeim skatt“, segir hann.“Þetta er svo lág upphæð“. Varðandi viðbótartekjur sem eldri borgarar vinna sér inn, telur Ellert eðlilegt að þeir greiði af þeim skatt, á sama hátt og aðrir sem vinna fyrir viðbótartekjum.

Mér finnst þetta líka þó ég sé ekki krati eins og Ellert.Við þurfum að finna leið til að við getum nýtt allar vinnufúsar hendur án þess að þær hindrist af tæknilegum fyrirstöðum eins og þessu frítekjumarki.

Burt með frítekjumarkið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"En hversvegna þarf þetta að hugsast svona? Af hverju má ekki borga fullan skatt af launum sem ellibelgir vinna sér inn og láta hitt kerfið afskiptalaust?"

Af sömu ástæðu og venjulegir launamenn fá ekki atvinnuleysisbætur þegar þeir eru í fullri vinnu. Heilbrigðir fá ekki sjúkradagpeninga. Skuldlausir engar vaxtabætur. Og barnlausir hvorki fæðingarorlof né barnabætur.

Espolin (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 18:01

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Espolin, mér líkar ekki illa það sem þú segir núna. Mér finnstþetta svo sjálfsagt og ekki koma almannatryggingum beinlínis við. Af hverju má maður ekki bjarga sér frá hungri ef hann getur? Hvað er svona rangt við það?

Halldór Jónsson, 19.2.2017 kl. 19:36

3 identicon

Eins og Bjarni bendir á þá eru þetta bætur en hvorki lífeyrir né laun. Og eins og allir aðrir þá missa aldraðir þessar atvinnuleysisbætur fari þeir að vinna. Það er enginn að banna neinum að vinna, við bara borgum helst ekki atvinnuleysisbætur fólki sem vinnur - hvorki gömlum né ungum.

Espolin (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 20:55

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll frændi

Bjarni Benediktsson skrifaði fyrir nokkru grein í Morgunblaðið sem hefst svona:

"Réttlætismál aldraðra

Um daginn hitti ég mann sem er kominn yfir sjötugt. Hann sagði mér að hann væri hættur að vinna – aftur. Hann hafði hætt þegar hann komst á aldur en síðustu ár hefur orðið heldur þrengra í búi hjá honum og konu hans og þess vegna tók hann því feginshendi þegar honum bauðst vinna hjá sama vinnuveitanda og áður. Vinnan var ekki mikil og launin þannig séð ekki heldur, en hann hugsaði sem svo að það munaði um allt og svo var líka ánægjulegt að fara reglulega út úr húsi, starfið var skemmtilegt og vinnufélagarnir líka.

 

Hver var ávinningurinn?

Ekki leið á löngu þar til hann áttaði sig á því að þrátt fyrir að launin næmu 80.000 krónum á mánuði, jukust ráðstöfunartekjurnar ekki um nema rúmar 4.000 krónur á viku. Að hans sögn skilaði vinnan vegna skerðinga innan við 20.000 krónum betri stöðu í lok mánaðar. Þrátt fyrir að þessi maður hefði ánægju af starfinu og fengi þó meira en ella í vasann, sagði hann upp. Hann sagði að það hefði verið hæpið að það svaraði kostnaði fyrir hann að sækja vinnu enda fylgja því alltaf einhver útgjöld, ekki síst þegar aka þarf talsverða vegalengd, eins og í þessu tilviki, með bensínverðið eins og það er..."

Sjá alla greinina:

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1461472/


Ágúst H Bjarnason, 19.2.2017 kl. 21:24

5 identicon

Margir launamenn eru þvingaðir til að vinna þó á lámarkslaunum sé og kaupið lítið hærra en atvinnuleysisbætur. Það að vinnandi fái ekki atvinnuleysisbætur til viðbótar er ekki skerðing eins og aldraðir virðast halda.

Aldraðir hafa val um hvort þeir vinna eða ekki. En kjósi þeir að vinna þá fá þeir ekki bætur sem ætlaðar eru hinum rétt eins og hinir fá ekki laun. Það er eins rangt að launþegi heimti bætur eins og að bótaþegi heimti laun.

Espolin (IP-tala skráð) 20.2.2017 kl. 01:08

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir ábendinguna frændi.

Espólín,ekki sé ég lógíkína hjá þér með atvinnuleysisbætur ekki ofan á kaupið.Mín tillaga er að gamlingjar vinni og borgi bara fullan skatt án persónufrádráttar jafnvel, en haldi þeim greiðslum sem þeir höfðu áður en þeir fóru að vinna. Er ekki hugsanlegt að ríkið græði á þessu?

Halldór Jónsson, 20.2.2017 kl. 10:21

7 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Lang auðveldast væri að allir með tekjur undir 300 þúsund á mánuði borgi engan tekjuskatt. Undir þessu kerfi þá er hugsað til aldraðara sem vilja vinna og lálauna yngra fólks.

Í viðbjóðslega landinu USA (að áliti flestra Íslendinga), þá er 4 manna fjölskylda ekki að greiða tekjuskatt á launum undir 36,000 dollurum á ári, síðast þegar ég skoðaði þetta fyrir nokkrum árum síðan, sem reiknast 342 þúsund á mánuði.

Ég trúi því ekki að íslensk stjórnvöld fari verr með sýna lag launuðu en viðbjóðsleg stjórnvöld í USA.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 20.2.2017 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 3418233

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband