Leita í fréttum mbl.is

Greining Jóns Magnússonar

hæstaréttarlögmanns á atburðarás stjórnarslitanna er skarpleg sem hans er von og vísa. Og líklega líka sönn.

Jón segir svo:

"

Óttar Proppé og þingflokkur hans sleit stjórnarsamstarfi vegna þess að faðir forsætisráðherra mælti með að afbrotamaður sem hafði afplánað refsingu fengi uppreisn æru.

Í öllu því argafasi sem er í dag vegna þeirra sem fengið hafa uppreisn æru þá virðist sem fjölmiðlafólki og ýmsum hefðbundnum álitsgjöfum sjáist yfir þær grundvallarstaðreyndir að þeir sem skrifa upp á meðmæli með því að einstaklingar fái uppreisn æru eru hvorki að samþykkja né leggja blessun á eða samsama sig með þeim glæp sem viðkomandi framdi. Alls ekki.

Hvað eru þeir sem skrifa á bréf eins og þessi að gera. Þeir eru að votta samkvæmt þeirra bestu vitund þá hafi viðkomandi hagað sér vel eftir afplánun refsingar. Meðmælandinn í þessu tilviki Benedikt Sveinsson er ekki að samþykkja eða lýsa yfir velþóknun á afbrotinu fjarri því.

Meðmælabréf föður forsætisráðherra um uppreisn æru hefur ekkert með starf ríkisstjórnar að gera og er syni hans forsætisráðherra óviðkomandi enda vissi hann ekki af bréfi föður síns fyrr en dómsmálaráðherra upplýsti hann um það í júlí. 

Sú málsvörn Óttars Proppé fyrir þeirri glórulausu ákvörðun að slíta stjórnarsamstarfi vegna greiðasemi föður forsætisráðherra og hann hafi ekki verið upplýstur um bréfið í rúman mánuð girði fyrir traust í ríkisstjónarsamstarfi er vægast sagt harla aumleg og hefur ekkert með landsstjórnina að gera. 

Vænn maður og greiðvikinn eins og Benedikt Sveinsson skrifar bréf, sem lýsir hegðun manns eftir að hann afplánar refsingu. Hann ber ekki brigður á að viðkomandi hafi gerst sekur um alvarlegan glæp eða reynir að afsaka glæpinn. Hann segir einungis að hegðun hans hafi verið með ákveðnum hætti eftir að afplánun lauk. Eru íslensk stjórnmál virkilega kominn í svo galna pópúlíska umgjörð að það geti talist tæk skýring á því að stjórnmálaflokkur slíti stjórnarsamstarfi.

Braut Benedikt Sveinsson af sér með þessu? Telji einhver svo vera í hverju var þá afbrot hans fólgið? Mátti hann ekki segja frá því hver viðkynning hans var af manninum. Já og jafnvel þó fólk segi að það hafi verið ótækt hvernig í ósköpunum fá menn sem þykjast ábyrgir, þá orsakasamband milli landsstjórnarinnar og greiðasemi föður forsætisráðherra. 

Málið kemur forsætisráðherra og landsstjórninni ekki við og það að reyna að tengja það og búa til dramaleikrit vegna þess er óheiðarlegt og rangt. Það mun á endanum hitta þá fyrst fyrir sem því beita. 

Skipti ekki meira máli að forða þjóðinni frá hugsanlegri óðaverðbólgu sem verður óhjákvæmilega staðreynd ef pólitísk upplausn verður næsta skref óábyrgra stjórnmálamanna."

Þessi grein segir allt sem segja þarf um afleiðingar þess að reynslulaust fólk velst í auknum mæli tikl starfa á Alþingi. Algert reynsluleysi í pólitík er talin til höfuðdyggða á fésbók sem er orðin að þjóðarviljanum ásamt með þjóðarsálinni í Einari, Ásgeiri, Guðmundi og Guðjóni hjá Pétri á Útvarpi Sögu.

Viðbrögð formanns Pírata við tíðindum  eru dæmigerð. Hún krefst aukins skrílræðis með þvi að kalla saman nýjan þjóðfund til að búa til stjórnarskrá.Flestir muna hvernig sú tilraun fór síðast og hefur þjóðin búið við það síðan að láta Þorvald Gylfason hella úr skálum vonbrigða sinna með beinum og óbeinum lygum sínum um niðurstöðuna nær vikulega í Fréttablaðinu. Þetta eru bjargráð Pírataflokksins í uppkominni stjórnarkreppu. En margir eru að sjá að sá flokkur er samnefnari mestu furðufugla í pólitik sem hægt er að ná saman á hundrað manna fund nokkurs staðar að jafnvel V.G. frátöldum. B.F. myndi skera sig frá þessu mað það að sá flokkar gæti varla náð saman hundrað manns í einu á fund og spurning er hvort Viðreisn gæti slíkt lengur. Væntanlega átta kjósendur sig á þessum staðreyndum og reyna að kjósa af ábyrgð.

Það er erfitt að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að koma saman framboðslistum svo öllum líki á svo stuttum tíma sem um er talað.En vilji er allt sem þarf sagði vís maður forðum.  

Sýnishorn af innréttingu sumra hæstvirtra kjósenda læt ég fylgja hér með:

starétarlögmanns á atburðarás stjórnarslitanna er skarpleg sem hans er von og vísa. Og líklega líka sönn.

Hagsmunum þjóðarinnar yrði auðvitað best borgið með því að halda sjálstæðisflokknum, þessum stærstu skipulögðu glæpasamtökum landsins, frá völdum í stjórn landsins. Einnig væri þjóðinni mikill greiði gerður ef stuðningsfólk þessara glæpasamtaka, þ.e. kjósendur sjálfstæðsflokksins, fengi viðeigandi meðferð við þessum Stokkhólmsheikennaveikindum sem hrjá það, helst sjáfviljugt.

Karvel (IP-tala skráð) 15.9.2017 kl. 15:50

identicon

Vel mælt Karvel, eins og talað frá mínu hjarta. það er nefnilega nákvæmlega það sem þjóðin þarf núna, langa hvíld frá gerspilltasta flokki landsins, SjálfstæðisFLokknum.

Það virðist vera sem sjálfstæðis dindlar geri sér ekki grein fyrir því, að þeirra tími er liðin og öll þeirra spilling, og vonandi verða kosningar og við taki tær félagshyggju stjórn með Samfylkinguna innanborðs að sjálfsögðu.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 15.9.2017 kl. 16:18"

Að eru akkúrat svona kjósendur sem ferðinni ráða í íslenskri pólitík dagsins. Varla von að vel fari.

Að velja poppara og plötslagara á Alþingi í of miklum mæli  hefur afleiðingar. Greining Jóns Magnússonar er því að öllum líkindum hárrétt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband