Leita í fréttum mbl.is

Við viljum blóð!

en ekki fyrirgefningu. 

Barnaperra ber ekki að refsa með fangelsi. Það er ekki nóg. Hann er réttdræpur hvað sem Góða Fólkið segir að það sé gott.

Í Sturlungu er sagt að Þorgeirr prestur, er skrifta skyldi dauðamönnum  í Fagurey, gekk til Þórðar Sturlusonar ok segir honum að Þorkell bar þá hluti á sik "at mér þykkir hann eigi dræpr."

En aðeins heiðursmenn máttu vera vegnir með vopni að aldarhættinum.

Hvað skyldi Þorkell hafa haft á samviskunni? Viðurstyggilegan Perraskap eða hvað?

"Þórður svarar: "Þá er honum eigi líft, ok skal dæma hann at því ok hengja hann síðan" Ok svá var gert."

Er það ekki í eðli Íslendingsins alveg eins og á Sturlungaöld að hann vill blóð en ekki aðra refsingu svo sem fangelsi eða fjárútlát,því  æran krefst þess.

Verður nokkur friður um suma menn fyrr en þeir liggja dauðir? Góða Fólkið vill blóð en engar refjar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað er eiginlega með ykkur sjálfstæðismennina og bananíðinga? Ef þið eruð ekki í vörn fyrir þá eða uppteknir við að gera lítið úr glæpum þeirra og kenna frekar fórnarlömbunum um ..... þá eruð þíð að ráðast á og reyna að gera lítið úr fjöskyldum fórnarlambanna eins og þú hér núna.

Hvað leynist hér að baki eiginlega? Hverja eruð þið í raun að vernda?

Karvel (IP-tala skráð) 16.9.2017 kl. 13:01

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Farvel Karvel

Halldór Jónsson, 16.9.2017 kl. 13:45

3 identicon

Það getur ekki vderið tilviljun að það skuli einungis vera sjálfstæðisfólk sem ver barnaníðingana og brot þeirra, og eingöngu sjálfstæðisfólk sem ræðst á þá sem vilja fá sannleikann upp á yfirborðið. Það getur ekki verið tilviljun að barnaníðingarnir tengjast sjálfstæðisflokknum sterkum böndum og leita til sjálfstæðismanna til að fá pappírana fyrir uppreist æru skrifaða - og fá þá auðveldlega. Það getur ekki verið tilviljun að það er sjálfstæðisflokkurinn og sjálfstæðisfólk berst hvað harðast fyrir því að málin skuli ekki upplýst. Þetta eru allt augljós reykmerki.

Þetta hefur gerst áður, þ.e. þegar kaþólska kirkjan reyndi allt hvað hún gat til að hylma yfir með barnaníðingunum sínum. Ég ætla að spá því að rétt eins og í máli kirkjunnar eru öll þessi augljósu tengsl sjálfstæðisflokksins við barnaníðinga sem við höfum séð á undanförnum mánuðum bara toppurinn á ísjakanum.

Karvel (IP-tala skráð) 16.9.2017 kl. 15:37

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Verður kerfið ekki að framfylgja gildandi lögum, líkt og almúginn, þangað til lögunum hefur verið breytt?  Hafði  fráfarandi dómsmálaráðherra ekki falið ráðuneyti sínu að vinna að þeirri breytingu?  Væri mönnum ekki nær að deila á þá sem upphaflega samþykktu lögin um uppreist æru en þá sem þó hafa nú sýnt viðleitni til þess að breyta þeim?

Kolbrún Hilmars, 16.9.2017 kl. 16:14

5 identicon

Mér skilst að hér sé verið að blanda tveimur málum saman.

Í öðru málinu fékk dæmdur lögmaður aftur lögmannsréttindi sín.

Í hinu málinu fékk dæmdur rútubílstjóri aftur réttindi sín. Hann fór aftur að keyra og velti ekki rútu heldur ríkisstjórn.undecided 

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 16.9.2017 kl. 16:56

6 identicon

Uppreist æra er ekki fyrirgefning. Uppreist æra er útþurrkun á brotinu. Það er ekki lengur til. Og barnaperri sem fær uppreista æru getur fengið starf á leikskóla. Brotið er ekki lengur á sakaskrá.

En ást þín og umhyggja fyrir dæmdum barnaperrum kemur einhvernvegin ekki á óvart. Svo oft hefur þú sýnt þitt rétta innræti, siðferði og umhyggju fyrir öðrum.

Gústi (IP-tala skráð) 16.9.2017 kl. 17:00

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Kolbrún,

Sigríður Andersen neitaði að skrifa undir ærubréfin þegar hún kom í ráðuneytið.

Hún neitaði líka  að leggja fram upplýsingar vegna lagafyrirmæla um að úrskurðarnefnd upplýsingamála yrði að vera búin að fjalla um einstök mál þar sem lög mæltu svo fyrir um að ráðherra mætti ekki sjálf  birta persónugreinanlegar upplýsingar.

Ráðherra er hinsvegar bundin trúnaði við forsætisráðherra sinn hverju sinni þó venjulegur þingmaður úr BF skilji ekki slíkt vegna reynslusleysis og er skylt að halda forsætisráðherra upplýstum. Bjarni lýsti því að það hefði verið honum áfall að fá vitneskju um að faðir hans hafði skrifað undir fyrir Hjalta. Hann varð hinsvegar að byrgja þá vitneskju inni vegna áðurnefndra lagafyrirmæla.

Forsætisráðherra gat ekki skýrt öðrum ráðherrum frá þeim upplýsingum vegna sömu lagafyrirmæla þar sem úrskurðarnefnd hafði ekki afgreitt málið.. Kommatittar og venjuleg illgjörn skítseiði sem hata Sjálfstæðisflokkinn án rökstuðnings  neita auðvitað að skilja þetta og mikið er mörgum sama.

Hörður Þormar, þetta er rétt hjá þér. Menn vilja hinsvegar ekki að hægt sé að afplána þessi brot með fangelsi, menn vilja frekar blóð.

Gústi og Karvel, Farvel. Ómerkingum og fábjánum er ekki svarað hér og í raun þætti mér vænt um að þið séuð ekki að bía út þessa síðu með ykkar heimsku.

Halldór Jónsson, 16.9.2017 kl. 17:50

8 identicon

Merkilegt að maður sem er í stöðugri vörn fyrir barnaníðinga og glæpi þeirra á bloggsíðunni sinni og heldur því fram að barnaníð sé bara viðskipti skuli kalla aðra bjána og ómerkinga.

Karvel (IP-tala skráð) 16.9.2017 kl. 19:44

9 identicon

En svona er nú sjálfstæðisflokkurinn og stuðningsfólk hans orðið: Sómalaust með öllu.

Karvel (IP-tala skráð) 16.9.2017 kl. 19:47

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Það getur ekki vderið tilviljun að það skuli einungis vera sjálfstæðisfólk sem ver barnaníðingana og brot þeirra, og eingöngu sjálfstæðisfólk sem ræðst á þá sem vilja fá sannleikann upp á yfirborðið. Það getur ekki verið tilviljun að barnaníðingarnir tengjast sjálfstæðisflokknum sterkum böndum og leita til sjálfstæðismanna til að fá pappírana fyrir uppreist æru skrifaða - og fá þá auðveldlega. Það getur ekki verið tilviljun að það er sjálfstæðisflokkurinn og sjálfstæðisfólk berst hvað harðast fyrir því að málin skuli ekki upplýst. Þetta eru allt augljós reykmerki.

Þetta hefur gerst áður, þ.e. þegar kaþólska kirkjan reyndi allt hvað hún gat til að hylma yfir með barnaníðingunum sínum. Ég ætla að spá því að rétt eins og í máli kirkjunnar eru öll þessi augljósu tengsl sjálfstæðisflokksins við barnaníðinga sem við höfum séð á undanförnum mánuðum bara toppurinn á ísjakanum.

Karvel (IP-tala skráð) 16.9.2017 kl. 15:37

Líklega  er þessi Karvel alvarlega geðsjúkur. Ég held að menn eigi ekki að svara honum.

Halldór Jónsson, 16.9.2017 kl. 21:10

11 identicon

Halldór, áður en þú dæmir aðra geðveika þá ættir þú og aðrir sem styðja sjálfstæðisflokksmafíuna að íhuga ykkar eigin gang og hvers vegna þið fallið sjálfviljugir trekk í trekk ofan í drullupollinn með ykkar fólki. Nú er t.d. komið í ljós að barnaníðingurinn Hjalti Sigurjón Hauksson leitaði til Bjarna Benediktssonar þegar svívirðileg, margra ára nauðgunarbrot hans gegn fósturdóttur hans voru fyrir dómi. Það er því augljóst að Bjarni er að ljúga því að hann hefði ekki þekkt málið því hann þekkti það vel ásamt Brynjari Níelssyni og mörgum öðrum fleiri sjálfstæðismönnum. Það er stutt í að það afhjúpist að Bjarni er líka að ljúga því að hafa ekki vitað af uppáskrift pabba síns og hvers vegna þessum barnaníðingum var veitt undanþága frá lögum svo þeir gætu fengið brot sín afmáð.

Eins og ég sagi hér fyrir ofan, og þú varst svo vænn að endurbirta, þá er það sem þegar hefur komið fram í málinu alveg örugglega bara toppurinn á ísjakanum. Það er ekki eðlilegt hvað barnaníðingar njóta mikils velvilja innan sjálfstæðisflokksins og hjá ykkur þessum velunnurum þessa skítaklúbbs, það sér allt hugsandi fólk. Hér býr eitthvað stórt undir, það er alveg pottþétt.

Karvel (IP-tala skráð) 17.9.2017 kl. 07:19

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Ekki breytist skoðun mín á þér Karvel við þetta.

Halldór Jónsson, 17.9.2017 kl. 10:37

13 identicon

Nei, nei, það er allt í lagi enda gef ég ekkert fyrir þínar siðspilltu skoðanir. En varðandi staðreyndir málsins þá hefur núna einnig komið í ljós að Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Ben, skrifaði undir fölsuð meðmæli með barnaníðingnum Hjalta sem hann þó vissi að send yrðu til dómsmálaráðuneytisins til að afla níðingnum uppreist æru. Þetta er ekki einleikið. Faðir forsætisráðherrans viðurkennir sem sagt lygar og skjalafals til að aðstoða barnaníðing að afmá sakaskrá sína.

Það er ekkert skrítið að Bjarni, Sigríður, Brynjar og annað sjálfstæðisfólk hafi viljað halda þessu leyndu. Það mun sjást meira í ísjakann á næstu vikum.

Karvel (IP-tala skráð) 17.9.2017 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband