Leita í fréttum mbl.is

Að gera út í pólitík !

er ekkert áhlaupaverk. Það þarf kássu af peningum til að borga útgáfustarfsemi, auglýsingar, bíla,síma, húsaleigu, mat handa sjálfboðaliðum. Allt kostar ógrynni fjár. Þrátt fyrir styrkjasöfnun, sem allir flokkar reka í sínum fjármálaráðum, þá skulda flokkarnir hálfan milljarð. Hvernig í veröldinni ætla þeir að borga það ? Hvernig ætlar frjálslyndi flokkurinn að borga sínar skuldir eftir að hann er dauður ? Eða Íslandshreyfingin ? Samfylkingin hlýtur að geta hrifsað til sín hundraðmilljónir með stjórnarsetu þó að íhaldið hafi ekki getað það.

Sjálfstæðisflokkurinn er á hausnum. Hvernig ætlar hann að endurgreiða eitruðu peningana frá glæpamönnunum í FL Group og Landsbankanum ? Ekkert annað en landssöfnun meðal flokksmanna getur bjargað flokknum frá gjaldþroti.

Mér fannst eitt það vitlausasta, sem nokkurntíman hefur verið gert í pólitík að skylda stjórnmálaflokka til að leggja fram bókhald. Rekstur þeirra á að lúta sömu lögmálum og saumaklúbba. Þetta eru frjáls félagasamtök sem starfa í trúnaði við félagsmenn sína og styrktaraðila. Það var fáránlegt að láta undan öfundarkommunum, sem fengu glýju í augun yfir velgengni Sjálfstæðisflokksins.

Það er hinsvegar dómgreindarleysi hjá hvaða stjórnmálaflokki sem er,  að þiggja peninga frá glæpamönnum. Hvort sem það væru eiturlyfjabarónar eða skipulögð þjófasamfélög eins og Mafían eða íslenzkir bankaræningjar. Það eru til eitruð peð sem stjórnmálamaður getur ekki þegið. Drullusokkar sem enginn heiðvirður maður getur komið nálægt.

Dómgreindarleysi í fjárhagslegri neyð getur þó auðveldlega villt mönnum sýn. Þessir menn gera mistök,  þó þeim gangi ekkert annað til en að hjálpa flokki sínum. En þá rísa kommarnir upp og heimta blóð þessara manna. Drepum Guðlaug Þór af því að hann hafði milligöngu. Hengjum Geir Hilmar fyrir að hafa borið ábyrgð. Axlið ábyrgð, axlið ábyrgð. Allir hinir en ekki ég.

Ekki áfellast glæpamennina sem reyndu að kaupa sér velvild ? Eða þá bara voru að leggja gildrur fyrir sakleysingjana til að klekkja á þeim síðar ? Ef þú þiggur eitthvað hjá Guðföðurnum ertu háður honum uppfrá því. Það ætti öllum að vera ljóst.  Máltækið segir : Segðu mér hverja þú umgengst og ég skal segja þér hver þú ert. Allar gjafir þiggja laun er líka sagt.

Nú er kosningar. Allt hýenugengið í fjölmiðlunum, neðan frá Reyni Traustasyni og uppúr, argar og gargar á blóð. Málefnaumræðan er dauð. Það liggur við að fólk krefjist þess að Sjálfstæðisflokkurinn dragi framboðslista sína til baka af því að einhverjir menn hafa sýnt dómgreindarleysi.

Sá yðar sem syndlaus er.....

En hvernig á að gera út í pólitík ? Án peninga ? Hvernig færu þá fram kosningar ? Auglýstir listar af nöfnum frá kjörstjórn, sem enginn vissi hvað táknuðu ? Engar auglýsingar, engar kynningar, engin starfsemi ? Hvað rugl er þetta allt saman. Af hverju ekki frjáls félagasamtök ?

Ekki veit ég hvað ég á að kjósa sagði ein hefðarfrú í Sundlaugunum við mig. Þetta er allt svo rotið.

Ef þú vilt borga 2 % eignaskatt af íbúðinni þinni sagði ég, þá skaltu kjósa VG. VG ? Hvað er það sagði hún blessuð,

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: GH

Ef stjórnmálaflokkar hefðu sömu áhrif í samfélaginu og saumaklúbbar, þá væri sjálfsagt að hafa fjármál þeirra lokuð. En stjórnmálaflokkar höndla með völd, og rekstur þeirra kostar peninga, og því koma fjármál þeirra öllum kjósendum við. Þetta er einmitt það sem við lærum af fjármálasukki Sjálfstæðisflokksins, því að ef fjármál hans hefðu verið opin þá hefður þeir sjálfstagt ekki lent í þeim vandræðum sem þeir eru í nú. Þar þýðir lítið að nota regluna að taka aðeins pening af "heiðarlegum" bissnissmönnum en ekki "drullusokkum", því að ég man ekki betur en Landsbankamenn hafi þótt hinn fínasti pappír um árið þótt þeir séu úthrópaðir nú sem landráðamenn.

GH, 11.4.2009 kl. 14:23

2 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Skemmtilegur pistill hjá þér Halldór og endirinn eftir því:

Ekki veit ég hvað ég á að kjósa sagði ein hefðarfrú í Sundlaugunum við mig. Þetta er allt svo rotið. Ef þú vilt borga 2 % eignaskatt af íbúðinni þinni sagði ég, þá skaltu kjósa VG. VG ? Hvað er það sagði hún blessuð,

Ef pólitíkin væri nú bara svona einföld.

Sjálfstæðisflokkurinn sýndist mér eini flokkurinn sem var með jákvætt eigið fé sem að vísu er bundið í fasteign. Hann er þess vegna ekki á hausnum en skortir lausafé eins og allur heimurinn. 

Jón Baldur Lorange, 11.4.2009 kl. 16:29

3 Smámynd: Tónlistarframleiðsla

Halldór, afneitunin ykkar ennverandi íhaldsmanna er með ólíkindum. Hvað er 2% eignaskattur samanborinn við algjört efnahagshrun í boði íhaldsins? Þessi gamli skætingur um að vinstri menn geti ekki stjórnað fjármálum er steindauð gömul kosningalygi úr íhaldinu. Vinstri menn munu aldrei klúðra fjármálum jafn kyrfilega og íhaldið hefur gert nú.

Þeir sem ennþá kjósa Sjálfstæðisflokkinn eftir þetta eru því miður ekki með betri siðferðisvitund en raun ber vitni.

Tónlistarframleiðsla, 11.4.2009 kl. 21:42

4 Smámynd: Haukur Nikulásson

Halldór, afneitunin ykkar íhaldsmanna er með ólíkindum. Hvað er 2% eignaskattur samanborinn við algjört efnahagshrun í boði íhaldsins? Þessi gamli skætingur um að vinstri menn geti ekki stjórnað fjármálum er steindauð gömul kosningalygi úr íhaldinu. Vinstri menn munu aldrei klúðra fjármálum jafn kyrfilega og íhaldið hefur gert nú.

Þeir sem ennþá kjósa Sjálfstæðisflokkinn eftir þetta eru því miður ekki með betri siðferðisvitund en raun ber vitni.

(Halldór, vinsamlegast eyddu færslunni á undan, ég má bara tala fyrir mig )

Haukur Nikulásson, 11.4.2009 kl. 21:45

5 Smámynd: Sigurður Hrellir

Halldór, ætlar þú að verða síðasti stuðningsmaður SjáLfstæðisFLokksins? Heiðvirt fólk leggur ekki nafn sitt við glæpasamlega starfsemi. Köllum hlutina réttum nöfnum; hér er talað um mútur. Hér er líka talað um að selja aðgang að OR og auðlindum í sameign þjóðarinnar fyrir aumar 60 milljónir. Það hafa margir kjósendur FL-okksins kíkt við á Laugavegi 40 í gær og síðustu daga því að fólk einfaldlega vill ekki láta bendla sig lengur við svona lagað.

Við lestur þessa pistils liggur við að maður fái samúð með stjórnmálaflokkunum sem þiggja hundruði milljóna af opinberu fé árlega auk fjölda styrkja frá einstklingum og lögaðilum. Það er rétt að peninga þarf til að gera út í pólitík en auðvitað verða þessir flokkar bara að sníða sér stakk eftir vexti. Það hlýtur að teljast fullkomlega óábyrgt að eyða svo fullkomlega um efni fram að kasta þurfi siðgæði og heiðarleika til þess að bjarga fjárhag félagsins.

Borgarahreyfingin X-O fær ekki eina krónu úr ríkissjóði til að koma stefnumálum sínum á framfæri. Það kemur þó ekki í veg fyrir að raddir okkar heyrist því að við höfum réttlætissjónarmið að leiðarljósi og erum ekki málssvarar ákveðinna hagsmunahópa eða fjármagnseigenda.

Það er líka stórundarlegt að fólk sem tekið hefur þátt í að koma heillri þjóð á kaldan klaka skuli enn tala um andstæðinga í pólitík sem öfundarkomma. Ég er hvorki kommi né öfundssjúkur og þið eruð hreint ekki öfundsverð.

Sigurður Hrellir, 12.4.2009 kl. 11:23

6 Smámynd: Haukur Nikulásson

Halldór, vinsamlegast felldu niður færslu nr. 3. Næsta færsla ætti að duga, enda í mínu nafni og alveg samhljóða.

Haukur Nikulásson, 13.4.2009 kl. 08:09

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Það væri sjálfsagt Haukur en ég kann ekki hvernig. Geturðu leiðbeint mér ?

Halldór Jónsson, 13.4.2009 kl. 08:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418280

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband