Leita í fréttum mbl.is

Prófsteinn

-verður lagður á það í kosningunum,  hvort kjósandinn sé vindhani  sem snýst við minnsta andvara.  

-verður lagður á það  hvort íslenzki kjósandinn lætur fremur stjórnast af upphrópunum múgsins  eða hugsun sinni.

-verður lagður á það, hvort meint fjármálamistök  Sjálfstæðisflokksins undir þáverandi stjórn  útiloki flokkinn undir núverandi forystu frá því að hafa ábyrga stefnu í landsmálum ? 

-verður lagður á það hvort íslenzki kjósandinn greinir kjarnann frá hisminu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Komandi kosningar, Halldór, verður prófsteinn á það hvað stór hluti þjóðarinnar er bókstafstrúaðir sjálfstæðismenn.  Menn  sem alltaf koma til með að kjósa "Flokkinn"  þrátt fyrir það,  að í hans löngu stjórnartíð er búið  koma íslenskri þjóð á kaldan klaka. Fyrst með vitlausum ákvörðunum og síðar með meðvirkni og kjarkleysi við að bregðast við afleiðingunum.

Þórir Kjartansson, 12.4.2009 kl. 21:54

2 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Þetta eru erfiðir tímar Halldór. Þú gefur ekki mikið svigrúm: vindhani sem stjórnast af múgnum og getur ekki greint kjarnann frá hisminu - eða staðfastur hugsandi og skarpur kjósandi Sjálfstæðisflokksins.

Ef þú ert í alvörunni að hugsa á þessum nótum þá þekkir þú ekki þjóð þína.

Nú er verið að aka Geir H Haarde á ruslahaug sögunnar - af eigin flokksmönum.

Fyrrv. framkvæmdastjóri flokksins og prókúruhafi þegar milljónatugir streymdu í flokkssjóð kannast ekki við neitt.

Efsti maður í öðru Reykjavíkurkjördæmanna er á aftökulista óvina í innanflokksátökum.

Nýr formaður veit ekki enn hvernig hann ætlar að leiða flokkinn út úr orrahríðinni.

Eigum við ekki að vona að hinn íslenski kjósandi taki ábyrga afstöðu og gefi flokknum frí. Það yrði best fyrir flokk og þjóð.

Hjálmtýr V Heiðdal, 12.4.2009 kl. 22:26

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Þar sem ég sit hér í rigningarsudda suður í Perth í Ástralíu, finnst mér íslensk þjóð vera gersamlega búin að missa fótanna yfir einhverjum 30 milljónum sem nokkrir (skiptir í sjálfu sér engu hvort þeir voru 2 eða fleiri) duglegir fjárölunarmenn náðu að öngla saman fyrir flokkinn sinn.  Frumkvæði Guðlaugs Þórs í málinu sýnir þó að það er einhver dugur í honum, en því miður hefur það lengi verið svo að á Íslandi má enginn skara fram úr því þá skal hann sleginn af með öllum tiltækum ráðum.  Af hverju skildi Obama hafa komist til valda í síðustu kosningum.  Jú, m.a. af því að hann hafði betri menn í fjáröflun en Hilary Clinton.  Og vonandi reynist hann góður forseti.

Pólitíkin á Íslandi þarf að fara að snúast um að leysa aðsteðjandi vandamál og koma okkur inn í framtíðina, en ekki að snúast eingöngu um einhverja fortíðardrauga sem vissulega þarf þó að gera upp.  Við gætum t.d. farið aftur í kosningar s.l. 20 ára eða svo og skoðað hverjir hafa eytt mestu í prófkjörum fyrir sveitarstjórnar- og Alþingigiskosningar og jafnvel vegna kjörs til æðsta embættis landsins.  Þar hafa stundum sést tölur sem erfitt var að sjá að menn leystu nema með aðkomu vina og annarra fjársterkra aðila sem þá væntanlega hafa átt hönk upp í bakið á viðkomandi. 

En ég held að við ættum að sleppa slíkum upprifjunum og halda áfram að reyna að búa okkur viðunandi lífsskilyrði í landinu á ný og reyna að komast upp úr kreppunni á undan þeim sem ekki eru sokknir ofan í öldudalinn enn þá.

Svo er bara mikilvægt í komandi kosningum að allir kjósir "rétt" en hvaða flokkur þar er hlýtur að vera undir hverjum og einum komið.  Ég reikna hins vegar ekki með að finna kosningaskrifstofu í Perth og verð því líklega að standa utan við þessar kosningar....

Ómar Bjarki Smárason, 13.4.2009 kl. 08:18

4 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Ómar, þú skilur ekki þá þrá manna hér að losna við fortíðardraugana með ærlegu uppgjöri.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið leiðandi flokkur og nú stöndum við höllum fæti. Það er eðlilegt að hann sé í skotlínunni. Og þegar talsmenn hans gala á þingi um að fjámálamenn eigi ekki að hafa áhrif á stjórnmálin eru aðrir flokksmenn að vinna í leyni eftir allt öðrum reglum.

Hjálmtýr V Heiðdal, 13.4.2009 kl. 09:16

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta. Ég hef enn von um að fleiri hugsi eins og Ómar en færri eins  og Hjálmtýr.

Halldór Jónsson, 13.4.2009 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418279

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband