Leita í fréttum mbl.is

Ó Ó Ó Ó !

Ég datt um afbragđsskrif hjá Agnesi Bragadóttur á Mogganum um mál sem mér er stundum hugstćtt. Hégómagirnd og snobb sem er Íslendingum svo inngróiđ frá ţví ţeir fruktuđu sig sem mest fyrir dönskum búđarlokum. Ţađ er eins og ţjóđin hafi unun af ţví ađ láta berja sig. Einhver Hólmfasts-komplex sem fer ekki burt.

Agnes segir:

"Ţađ hefur ađ mínu mati veriđ ţakkarvert hversu lítiđ Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur látiđ á sér bera í íslensku ţjóđlífi ađ undanförnu. Meira ađ segja á sjálfan fullveldisdaginn, 1. desember sl. var ţađ látiđ nćgja ađ hafa hann í viđtali í Ríkisútvarpinu, eldsnemma um morguninn, en ţar sagđi hann m.a. ađ hann teldi ađ viđ Íslendingar ţyrftum alls ekki á öllum ţeim erlendu lánum ađ halda sem viđ vćrum ađ sćkjast eftir. Svo komu fréttir utan úr heimi, ţar sem hinn mjög svo sjóađi og reyndi forseti var ađ leggja Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, lífsreglurnar, ţví vitanlega kann ábúandinn á Bessastöđum ţetta allt miklu betur en einhver óreyndur Bandaríkjaforseti.

En ţótt ég hafi veriđ ţakklát fyrir hlédrćgni forsetans, ţá er ekki endilega öruggt ađ sama máli gegni um ţá, sem ţurfa ađ heilsa honum og kveđja, ţegar hann ákveđur ađ leggjast í víking til annarra landa, en eins og kunnugt er hefur hann fyrir margt löngu áunniđ sér titilinn „Klappstýra útrásarvíkinganna“. Ađ vísu er ţađ nú svo, eftir bankahrun og gjaldţrot útrásarvíkinganna, ađ forsetinn getur ekki lengur komiđ fram í ţví gervi, en hann er vitanlega ekki af baki dottinn, situr reyndar rammfastur viđ sinn keip og hefur gerst klappstýra sjálfs sín.

Forsetinn hélt síđasta sunnudag til Vínarborgar, sem vćri vart í frásögur fćrandi, nema vegna hégómans og pjattsins, sem fylgdi ţeirri brottför hans af landi, eins og fylgir öllum hans brottförum.

Einum ţriggja handhafa forsetavalds, ţ.e. annađ hvort forseta Alţingis, forsćtisráđherra eđa forseta Hćstaréttar, ber ađ fylgja forsetanum út í flugvél á Keflavíkurflugvelli og kveđja hann og hirđa viđ brottför hans „valdasprotann“. Sama pjatt og fíflagangur fylgir svo vitanlega heimkomu forsetans. Handhafinn ţurfti sem sé ađ rífa sig upp á rassgatinu kl. 5 á sunnudagsmorgun, láta aka sér til Keflavíkur, á kostnađ okkar skattgreiđenda, til ađ kveđja ábúandann, sem kom vitanlega akandi frá Bessastöđum í límósínu forsetaembćttisins á okkar kostnađ, í fylgd sérstakrar bifreiđar sem flutti farangur forsetans á okkar kostnađ, og vitanlega einnig í fylgd lögreglubíls á okkar kostnađ, ţví ekki gengur ađ forsetinn sé óvarinn fyrir skrílnum, ađ ganga sex á sunnudagsmorgni! Vitanlega duga ekki minna en fjórir bílar og bílstjórar viđ ţađ ofurverk ađ koma forsetanum úr landi.

Eftir dćgilegt kaffispjall međ forsetanum í Leifsstöđ, ţar sem ţjóđmál öll eru vitanlega krufin til mergjar og niđurstađa fengin í ţví hvort forsetinn ćtli ađ leyfa ţjóđinni ađ kjósa um ţađ hvort hún greiđir hundruđ milljarđa skuldir, langt inn í ókomna framtíđ, skuldir sem hún ber enga ábyrgđ á, fylgir handhafinn forseta ađ inngangi flugvélarinnar. Allir ađrir farţegar eru ţá komnir í sćti sín og geta ţví einbeitt sér ađ ţví ađ gleđjast yfir inngöngu forsetans, sem flugstjórinn „á“ ađ taka á móti og fylgja til sćtis.

Ef marka má njósnir sem mér hafa borist úr embćttismannakerfinu, ţá ţykir mörgum nóg um, hversu langt forsetinn seilist til ţess ađ ríghalda í eldgamlan og úreltan prótókoll, sem var víst komiđ á fyrir mörgum áratugum, ţegar utanför forseta taldist til tíđinda.

Viđ hvers konar ţjóđfélagsskipan viljum viđ eiginlega búa í ţessu landi? Er ţađ bođlegt og eđlilegt ađ á sama tíma og ţorri launţega hefur ţurft ađ taka á sig umtalsverđar launaskerđingar, mörgţúsund manns ganga um án atvinnu, erlendar skuldir ţjóđarbúsins hrannast upp, nánast á hrađa ljóssins, og stjórnvöld sjá enga ađra leiđ fćra til ađ bćta stöđu galtóms ríkissjóđs en ađ auka skattpíningu borgaranna nánast til ólífis, ađ forseti Íslands kosti okkur skattborgarana stórfé, bara viđ ţađ ađ koma sér frá Bessastöđum til Keflavíkur?

Hér er a.m.k. um útkall ţriggja bílstjóra, á nćturvinnutaxta, ađ rćđa. Ekki veit ég hvort bílstjóri lögreglubifreiđarinnar var í sérstöku útkalli eđa ekki. Ţá er ótalinn eldsneytiskostnađur, ađ ekki sé nú talađ um öll óţćgindin, bćđi fyrir handhafa forsetavalds, bílstjórana og lögreglumennina.

Ef um einhverja höfuđnauđsyn vćri ađ rćđa, vćri ţetta allt rétt og skiljanlegt. En hér er um úrelt, hallćrislegt fyrirkomulag ađ rćđa, ţar sem forsetinn reynir aftur og aftur ađ gera sig gildandi, langt umfram tilefni og hann sjálfur verđur bara hallćrislegastur af öllum, ađ hanga á ósiđnum eins og hundur á rođi. "

Viđ Íslendingar  létum yfir okkur ganga međan venjulegt og grandvart fólk var á Bessatöđum. Ţó flest okkar gćfum ekki túskilding fyrir ţetta embćtti.  Frambođ Ólafs Ragnars breytti hinsvegar miklu međal ţjóđarinnar gagnvart embćttinu og margir hafa aldrei sćtt sig viđ veru hans ţar. Ţessi "alţýđumađur" samdi sig hinsvegar svo fljótt ađ yfirstéttarsiđum ađ undrum hefur sćtt. Svo hefur hann ţjónađ eđli sínu, sem hann lýsti sjálfur eftirminnilega á Alţingi, á ţann veg ađ, ađ Bandaríkin skipa ekki lengur sendiherra hér á landi eftir móđganir Ólafs í ţeirra garđ. 

Vera Ólafs Ragnars á Bessatöđum hefur látiđ ljós renna upp fyrir ţjóđinni hversu gersamlega ţetta prump-embćtti er úr takti viđ allt sem hér er ađ gerast. Lýsing Agnesar fćrir mér sannfćringu fyrir ţví ađ ţetta embćtti á ađ leggja niđur. Mér finnst  Ólafur bćđi Óţarfur, Óhóflegur, Óţolandi.

Burt međ ţetta embćtti.

Ó Ó Ó Ó !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

....spurning hvort öll kurl eru komin til grafar.....?

Ómar Bjarki Smárason, 15.12.2009 kl. 13:53

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418235

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband