Leita í fréttum mbl.is

Af hverju að fella niður gjaldið?

í Hvalfjarðargöngin?

Hvaða rétt á unglingur sem aldrei hefur borgað veggjald í þau tuttugu ár sem ég hef borgað á því að fá frítt í göngin núna og hugsanlega næstu tuttugu ár?  Ég á kannski eftir að keyra örfá ár í viðbót eða bara engin? Skiptir þetta sköpum fyrir mig?

Er þetta allt saman eitthvað réttlætismál?  Af hverju eru þarna göng sem ungir menn geta notað frítt í næstu tvo áratugi af því að ég er búinn að borga þau á síðustu tuttugu árum? Af hverju á unglingurinn ekki að borga neitt í næstu tuttugu ár? Er það vegna þess að ég þarf að fá frítt það sem eftir er?  Svo líka einhverjir bændahöfðingjar og samflokksmenn þessa eða hins ráðherrans? Ég sé bara ekki tenginguna.

Norðmenn leggja hiklaust á brúargjöld á gamlar brýr af því að þarf að byggja nýjar. Hversvegna má ekki innheimta gjald á listaverkinu Hvítárbrúnni í Borgarfirði? Er ekki tími til kominn að gera við hana á þeim bráðum hundrað árum sem liðin eru frá því að pabbi minn var með fleirum að smíða hana eftir teikningum Árna Pálssonar? Af hverju er ekki borgað í Héðinsfjarðargöngin?  Af hverju keyra þúsund bílar með jafnvel mest útlendinga frítt í gegn um þessi göng? Eða Vestfjarðagöngin? Vantar ekki peninga?

Ég veit að það er fullt af fólki sem segir það er búið að láta okkur borga nóg og stela því líka í annað en umferðina. Samt viðurkenna þeir sömu þegar þeir hugsa málið að það vanti strax hundrað milljarða í samgöngukerfið. Og líklega líka bara  á hverju ári ef út í það er farið.

Hver er hann þá þessi sem er búinn að borga nóg? Þeir sem bara hvorki hjóla í Borgarstjórn Reykjavíkur og búa í 101?  Hafa þeir borgað sinn skerf í samgöngurnar úti á landi? 

Eigum við ekki að hætta þessu pexi og taka upp afnotagjöld á sem flestum sviðum. Það á enginn neinn rétt á ókeypis þjónustu nema kannski opinbera björgun úr lífsháska. Máið er það að smávegis gjald sem fæstir taka eftir er það sem safnast saman í stórfé sem vantar núna.

Af hverju á að fella niður gjaldið í Hvalfjarðargöng hjá þeim framtíðarökumönnum sem aldrei hafa borgað neitt til þeirra?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og hvers vegna á unglingur sem þekkir þig ekkert að þurfa að borga þér ellilífeyri og læknisþjónustu fyrir þig núna og hugsanlega næstu fjörtíu ár með hærri sköttum?

Eigum við ekki að hætta þessu pexi og taka upp afnotagjöld á sem flestum sviðum? Hætta lífeyrisgreiðslum og hver borgi sína læknisþjónustu. Hver sér um sig og borgi sjálfur fyrir alla þjónustu.

Vagn (IP-tala skráð) 18.8.2017 kl. 14:43

2 identicon

"Báknið burt"

Kvað við hvarvetna á velmektardögum hjá Sjálfstæðismönnum.  Það var á þei árum sem flokkurinn var og hét.  Nú eru þessar raddir sjálfstæðismanna þagnaðar.  Aftur á móti má heyra fra vinstaliðinu. Við viljum stærra bákn og hærri skatta.  En nú eru nýjar milliraddir farnar að heyrast og nú ekki frá vinstri mönnum heldur,  nýforrituðum Skattmanni Jóni Gunnarssyni. Hann vill stækka báknið hann má ekki heyra það að endurgreiða eigendum ökutækja sé skilað til baka því  sem ríkið hefur oftekið af bifreiðaeigendum. Þessum skattmanni berst stuðningur fárra, en þó má heyra eina og eina  rödd sem áður hrópaði Báknið burt, hefur gleynt upphafinu og hrópar nú stærra bákn.

Aðeins þeir sem hafa gleymt upphafi stefnu Sjálfstæðisflokksins taka nú undir með vinstri liðum. Meiri skatta og Stórt bákn. 

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 18.8.2017 kl. 15:39

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Eddi vinur

Af því að þú ert búinn að borga of mikið þá er ekki ástæða til að sleppa öllum nýjum notendum frítt. Þessvegan veggjöld. Við fáum ekki til baka því sem bíð er að stela. Við bara sitjum uppi með það.

Ég er að hgsa um að svara aldrei nafnleysingjum sem eru að henda skít úr launsátrum IP-talna sem eru órekjanlegar í raun.

Halldór Jónsson, 20.8.2017 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3417881

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband