11.9.2020 | 10:25
Framtíðarspá
ætla ég að lofa mér að gefa hér og nú. Ekki af því að ég sé spámannalega vaxinn heldur af því að mér finnst vanta dálítið af hvað ef í umræðuna.
Ef Kínverjar hleypa ekki annarri drepsótt af stað af matarmörkuðunum sínum í á næstu mánuðum þá sé ég ekki annað en að bóluefni við COVID verði á boðstólum í vestrænum ríkjum á fyrstu 3 mánuðum næsta árs. 3 mánuði þar í frá munu flugsamgöngur fara að færast í eðlilegra horf með auknu hjarðónæmi.
Löngu fyrir þann tíma verðum við Íslendingar búnir að ná tökum á nýgenginu hérlendis og farnir að bjóða ferðamönnum áhyggjulaus frí hérlendis eftir inngönguskimun og útgönguskimun sem verður svo sérstætt að ferðamenn munum fara að koma í auknum mæli.
Flugleiðir munu hafa bjargast að hluta um mitt næsta ár og útlitið verður þá mun bjartara.Fáránleiki þess að halda að arftakar WOW muni leysa einhvern vanda liggur æ ljósara fyrir og við verðum því að veðja á Icelandair til næsta árs.
Sjáum við ekki fyrir hvaða breyting verður á heiminum ef vísindunum tekst að sigrast á COVID19 og ekkert nýtt af sömu nál kemur í kjölfarið?
Er ekki auðvelt að gera framtíðarspá við ekki verri væntingar en nú eru uppi?
10.9.2020 | 09:29
Stjórnarskrárumræðan
er fyrir löngu hætt að höfða til mín.
Við höfum haft stjórnarskrá frá 1944 sem hefur akkúrat engu máli hefur skipt utan einu sinni. Það var þegar Ólafur Ragnar nýtti ákvæði hennar um málskotsrétt sem enginn hafði tekið alvarlega til þess dags.
Að öðru leyti hefur Alþingi farið með ákvæði stjórnarskrárinnar eins og því hefur hentað. Kært sig kollótt um jafnan atkvæðisrétt og gefið skít í sameignarákvæði auðlinda og sjálfstæði landsins eftir sínum hentugleikum. Stjórnglæpamenn hafa yfirleitt farið sínu fram alveg óháð einhverri stjórnarskrá og munu gera það áfram.
Sirkusinn sem Jóhönnustjórnin efndi til að búa til nýja Stjórnarskrá endaði út í mýri. Allskyns sérvitringar og ofstækismenn á borð við Þorvald Gylfason komu saman og sömdu hundrað síðna langhund af meira og minna bulli þar sem margt rakst á annars horn. Gersemalega ónothæft plagg í stíl við höfundana sem voru voru vel þekktir að almennri ruglandi. Sem þeir halda áfram að jarma um að þjóðin hafi samþykkt tillö0guna í ómarktækri atkvæðagreiðslu án þess að hafa hinn minnsta árangur til þessa sem betur fer.
Pétur Gunnlaugsson virðist hafa hlotið varanlegt áfall af starfinu í stjórnarskrárnefndinni og þrumar dag hvern í Útvarpi Sögu um kosti þess að leggja af fulltrúalýðræðið og afgreiða allt með einhverju beinu lýðræði sem hann kallar svo. Sem allir sjá að getur ekki leitt til annars en skrílræðis lítilla hópa upphlaupsmanna og ofstækismanna eins og þeirra sem mest hafa verið áberandi í síbyljunni um nauðsyn nýrrar stjórnarskrár. Nægir að þekkja sífellda innhringjendur á Útvarp Péturs til að að sjá afleiðingar slíks beins lýðræðis fyrir.
Stjórnarskrá verður að vera fáorð og gagnorð sem er nokkuð sem fæstir þeirra sem sátu að samningi endemisplaggsins þeirra Þorvaldar á sinni tíð verða nokkru sinni færir um að framkvæma.
Því er betur heima setið en af stað farið í þessu eilífa Stjórnarskrármáli. Auk þess myndi svo þjóðin þurfa að virða sína stjórnarskrá, sem verður erfitt verk hjá því hentistefnu fólki sem til Alþingis er valið að stórum hluta vegna lýðræðisskortsins.
Því komumst við Íslendingar ákaflega vel af með að vera laus við afskipti þessa söfnuðar af stjórnarskrármálum um fyrirsjáanlega framtíð. Við erum nefnilega ófær um það sem þjóð að viðurkenna lýðræði.
Því erum við bara allt í plati fólk þegar kemur að umræðum um nauðsyn á nýrri stjórnarskrá vegna sérhagsmunanna sem við setjum ofar öðru þegar á reynir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.9.2020 | 02:15
Kellingavæðingin
í þjóðfélaginu er að verða alger.
Palli Vil blogggkóngur skrifar:
"Um 90 prósent kennara í grunnskólum eru konur. Drengir fá ekki karlkyns fyrirmyndir þar. Í framhaldsskólum er brottfall drengja um 30 prósent en stúlkna um 20 prósent. Þegar komið er í háskóla er kynjahlutfall nemenda þannig að karlar eru minnihlutahópur: 70 prósent háskólanema eru konur en minna en þriðjungur karlar.
Ísland á heimsmet í lágu hlutfalli karla í háskóla, segir Hermundur Sigmundsson, prófessor í lífeðlislegri sálfræði.
Hvers vegna?
Jú, skólakerfið er gegnsósa af kvenmenningu. Þöggun drengja byrjar strax í leikskóla og heldur áfram upp öll skólastig.
Stúlkum er kennt að vera stoltar en drengjum að skammast sín. Kvenmenningin talar með fyrirlitningu um ,,drengjamenningu" og býr til hugtök eins og ,,eitruð karlmennska."
Yfirtaka kvenna á skólakerfinu getur ekki endað vel."
Ég man glöggt hversu virðulegir karlkennararnir voru í GaggóAust á minni tíð 1950. Stóri Rauður, Litli Rauður, Sveinbjörn Sigurðsson, GUÐMUNDUR ÞORlÁKSSON,ÁRNI MAGISTER ENSKUMAÐUR, HELGI ÞORLÁKSSON, Björgvin Magnússon, GUNNGEIR PÉTURSSON. Ingimar skólastjóri ......,Ástráður Sigursteinsdórsson, og fleiri. Meirihluti kallar og svo kellingarnar færri færri. Ætli nú séu nokkrir kallar eftir?
Í M.R. voru svo mun fleiri kallar. Þóroddur Basi, Jón Júl,Mangi Finnboga,Mangi franski,Magnús eðlisfræði, Hjörtur Hansson, GUÐMUNDUR ARNLAUGSSON, BJÖRN BJARNASON, PÁLMI HANNESSON, GYLFI Þ. GÍSLASON , Guðni kjaftur, EINAR MAGNÚSSON, GUNNAR NORLAND, Kristinn Ármansson, SIGGI Vegamála, Skúli kollega Þórðarson, Halldór hlaupara. Svo man ég Bodil Sahn eina kvenna þar. Ekki veit ég hvernig hlutfallið er þar núna?
Yfir allt finnst mér helst vera viðtöl við kellingar í öllum blöðum og rásum.Þær eru yfirleitt með allar skoðanirnar.
En strákar horfa nú yfirleitt heldur meira á stelpur en stráka af einhverjum ástæðum svo kellingavæðingin hefur kannski líka sína kosti?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.9.2020 | 16:48
Vitleysan veður á súðum
þegar þjóðir heims taka matinn frá sveltandi fólki í Afríku til að búa til úr honum lífdísil til að gera bensínið fyrir einstæðu móðurina uppi á Íslandi sem þarf að keyra krakkann sinn í skólann, bæði verra og dýrara.
Allt eftir forskrift unglingsins með Asberger- Heilkennið sem heldur að hlýnun jarðar geti ekki stafað af sveiflum í útgeislun sólar heldur að útblæstri gróðurhúsalofts af mannavöldum.
Geir Ágústsson skrifar svo:
Í rándýrri viðleitni til að reyna minnka notkun á jarðefnaeldsneyti hafa menn dottið niður á svolitla aðferð: Að brenna matvæli!
Þannig er eldsneyti með mikinn orkuþéttleika tekið úr umferð, a.m.k. að hluta, og eldsneyti með lítinn orkuþéttleika notað í staðinn.
Þetta hefur allskyns afleiðingar. Til að byrja með leiðir þetta til verra eldsneytis og dýrara. Vefþjóðviljinn tók þetta ágætlega fyrir í mörgum pistlum, t.d. með eftirfarandi orðum:
Í tíð vinstri stjórnarinnar voru leiddar í lög kvaðir sem þvinga bensínstöðvar til að blanda dýrum og orkusnauðum jurtaafurðum í bensín og Dieselolíu. ... Vínandinn eða korn-etanólið, sem nú er blandað í bensín, er dýrara í innkaupum en bensín. Etanólið er einnig um þriðjungi orkuminna en óblandað bensín. Íblöndunin leiðir því til aukinnar eyðslu í bílvélum og fleiri ferða á bensínstöðvar og þar með aukins innflutnings eldsneytis.
Enn er þessi kjánalega kvöð í gildi, því miður.
En þar með er ekki öll sagan sögð. Hvaðan eiga öll þessi matvæli að koma? Jú, frá ökrum bænda. Bændur senda uppskeru sína í bílvélarnar og hin aukna eftirspurn eftir afurðum þeirra þrýstir upp verði á mörkuðum, m.a. þeim þar sem fólk er að reyna kaupa sér í matinn. Hið hækkandi verð hvetur svo bændur til að leggja enn meira land undir ræktunina, þá vitaskuld á kostnað náttúrunnar. Lokaniðurstaðan er: Fátækt fólk hefur minna að borða, og náttúran fær skellinn.
Af því við viljum ekki nota jarðefnaeldsneyti sem liggur bara í jörðinni og bíður eftir því að breytast í hagkvæma orku."
Umhverfisfasismi vinstra liðsins sem umhverfisráðherrann okkar sem engin kaus er ötull málsvari fyrir gengur út í þessar öfgar. Gæska þessa liðs í garð lítilmagnans er óendanleg þó það sjái ekki niður á tærnar á sér í rauntímanum.
Það veður á súðum í umhverfisvitleysunni hjá vinstra líðinu og skálknum AlGore um allan heim.
9.9.2020 | 16:35
Viðreisn veður á súðum
þegar Þorgerður Katrín virkjar Borgarlínuna sem sitt baráttumál.
Hún segir:
"Þorgerður Katrín hefur miklar áhyggjur:
Með þessu er ég að segja að ég hef verulegar áhyggjur af því að ríkisstjórnin, fjármálaráðherra og aðrir, eins og Vinstri græn í þessari ríkisstjórn, skynji ekki þann mikla bráðavanda sem íslensk þjóð stendur frammi fyrir.
Vissulega hefur margt verið vel gert en atvinnuleysi er mikið og það mun bara aukast á næstu mánuðum og þá þurfum við aðgerðir strax, ekki eitthvað sem ríkisstjórnin er að boða í fjármálastefnu eftir eitt, tvö eða þrjú ár.
Við þurfum að gera þetta strax því að við þurfum að svara aðkallandi ákalli fólks um allt land, ekki síst af Suðurnesjunum, um að það þurfi vinnu.
Þess vegna vil ég hvetja ríkisstjórnina, fólk í Vinstri grænum sem er haldið ákveðinni vanlíðan innan ríkisstjórnarinnar, til að fara í það að hvetja fjármálaráðherra til að ýta við borgarlínu og fara strax í hana, ekki bíða með hana.
Sem sagt: Gegn atvinnuleysinu á Suðurnesjum vill Þorgerður Katrín vaða í Borgarlínuna í Reykjavík !.
Já mikil er trú þín kona gæti einhverjum dottið í hug.Finnst engum hér vera vaðið á súðum við að klekkja á ríkisstjórninni?
9.9.2020 | 13:09
Af hverju er ekki sópað út úr Útlendingastofnun?
Af hverju er þessari Útlendingastofnun liðinn þetta verkleysi í vinnubrögðum og aðgerðaleysi sem leiðir ítrekað til uppsöfnunar fölskyldna hælisleitenda hérlendis sem enga kröfu eiga á málsmeðferð hérlendis?
Hversvegna er svona greinilega óhæf Útlendingastofnun látin komast upp með svona sleifarskap sem leiðir til alþekktra fjölskylduharmleikja með samúðarleiksýningum , burtséð frá óþarfa milljarðakostnaði við þetta leikhús fáránleikans?
Til hvers er verið að safna saman í svona leiksýningar í mannúð með reglubundnum hætti eins og góðu og Guðhræddu fólki er boðið upp á í RÚV?
Af hverju eru mál ekki afgreiða málin jafnóðum eins og lög mæla fyrir?
Má ekki bjóða svona afgreiðslustarfsemi út? Af hverju er ekki sópað út úr þessu duglausa verkleysisbæli sem Útlendingastofnun greinilega er?
9.9.2020 | 09:20
Samúðarfjölskyldan
egypska er á sjónvarpinu. Konu minni finnst hræðilegt að senda þetta fólk úr landi og hefur ákafa samúð með henni.
Ég reyni að brynja mig upp og heimta þá sem hafa orsakað núverandi ástand með töfum og vífillengjum verði dregnir til ábyrgðar.Staðan er þeim að kenna að þetta fólk sé ekki löngu farið héðan.
Ég segist kannski geta samþykkt að þessi fjölskylda fái að vera áfram á framfærslu okkar af mannúðarástæðum sem hún ber enga ábyrgð á heldur íslenskir lagaskúmar. Langt verður til að þessi strangmúslímska fjölskylda skapi einhver verðmæti fyrir okkar samfélag og verður því áfram byrði á okkur.
En ég heimta garantí fyrir því að ekki sé verið að vinna samskonar mál með einhverri annarri fjölskyldu sem komi til samúðar eftir svona 2 ár á sömu forsendum. Er það í boði eða eru lögfræðingar á fullu með fleiri svona fjölskyldur til traktéra okkar samúðarfullu konur á?
Jón Magnússon lögmaðurinn ljúfi skrifar svo:
Í gær hófst lokaþátturinn í leikritinu um Egypsku fjölskylduna í fréttatíma Stöðvar 2. Áður hafa verið sýndir samskonar lokaþættir leikrita m.a. um albönsku fjölskylduna og afgönsku fjölskylduna o.s.frv. o.s.frv.
Fyrsti þáttur leikritsins: Egypska, albanska eða afganska fjölskyldan kemur til landsins og óskar eftir alþjóðlega vernd, sem hún á engan rétt á. Búinn er til saga, sem stenst ekki þegar betur er að gáð (semsagt lygi). Fjölskyldan nýtur fáránlegra útlendingalaga, fær húsnæði, dagpeninga og læknisaðstoð frá skattgreiðendum. Í ljós kemur að fjölskyldan á ekki rétt á alþjóðlegri vernd og er vísað úr landi.
Annar þáttur leikritsins:
Synjuninni er mótmælt og vísað til úrskurðarnefndar og málið rekið þar á lögfræðilegum forsendum á grundvelli vitlausu útlendingalaganna, á kostnað skattgreiðenda. Niðurstaðan skv. íslenskum lögum og rétti,: Egypska fjölskyldan á ekki rétt á alþjóðlegri vernd á Íslandi.
Þriðji þáttur leikritsins: Lögmaður egypsku fjölskyldunnar kemur í einhliða fréttþátt á Stöð 2 og lýsir fjálglega hvílíkt óréttlæti það sé, að fara skuli eftir íslenskum lögum, sem þó eru hvað vilhöllust hælisleitendum í okkar heimshluta. Vísað er til þess, að á þeim tíma sem honum hefur tekist að tefja málið allt á kostnað íslenskra skattgreiðenda, hafi fjölskyldan myndað tengsl og börnin tali hrafl í íslensku. Börnin fá síðan sinn skerf í þessari einhliða frétt.
Lokaþáttur leikritsins er síðan mótmæli við dómsmálaráðuneytið og þess freistað að fá ráðherra dómsmála til að kikna í hnjáliðunum og víkja til hliðar allri málsmeðferðinni og íslenskum réttarreglum. Geri ráðherra það ekki verður flogið með egypska fjölskyldan til Egyptalands á kostnað íslenskra skattgreiðenda og úti er ævintýri.
Fari hinsvegar svo, að ráðherra dómsmála kikni í hnjáliðunum og ómerki allt það sem undirmenn hennar hafa gert á grundvelli íslenskra laga, þá heldur egypska fjölskyldan áfram að búa á Íslandi á kostnað skattgreiðenda og fer til Egyptalands eftir hentugleikum í fríum og til að rækta fjölskyldutengsl.
Skyldi endalaust vera hægt að blekkja fólk til fylgis við málstað kerfisbundins smygls á ólöglegum innflytjendum til landa Evrópu á þeim grundvelli að um mannúðarmál sé að ræða?
Síðustu 20 mánuði hafa álíka margir hælisleitendur fengið hæli á landinu og íbúar Blönduóss. Munurinn er sá, að íbúar Blönduóss þurfa að vinna fyrir sínu daglega brauði, húsnæði o.s.frv. en skattgreiðendur borga þetta og meira til, að mestu til frambúðar fyrir hælisleitendurna"
Hvað er í gangi á þessari stundu? Hversu margar svona fjölskyldur eru í uppbyggingu á þessari stundu hér í okkar þjóðfélagi sem koma til samúðar hjá konu minni eftir 2 ár?
Hvað er þetta lögfræðingastóð að brugga til að skaða þjóðfélagið með næstu fjölskyldu á grundvelli lagakróka sinna? Sjálfum sér til framdráttar og tekna auðvitað N.B.
Hvað er þetta egypska fólk ekki búið að fá í sinn hlut af okkur? Frían kost og logi í öll þessi ár? Menntun fyrir börnin sín sem hefðu líklega enga fengið annars? Er þetta ekki bara talsvert?
Fjölskyldufaðirinn getur allt eins verið á flótta undan réttvísinni í sínu heimalandi en sé ekki að flýja ofsóknir vegna hugsjóna sem einhver merkismaður? Slíkt hlotnast yfirleitt aðeins þeim sem fram úr skara á pólitísku sviði. Ekki einhverjum venjulegum meðaljónum eða einhverjum venjulegum lýð af götunni. Félagar í múslímska bræðralaginu sem eru nú stundum ekki talin fjarskyldir venjulegum hryðjuverkasamtökum sem starfa í Egyptalandi.
Allir þessir hælisleitendur, jafnmargir og íbúar Blönduóss á ekki tveimur árum, hola íslenska verlferðarkerfið að innan þar sem þeir leggja ekkert til nema vandræði. Svo getum við ekki séð fyrir okkar eigin öryrkjum?
Hversu margar samúðarfjölskyldur getum við flutt inn til að standa í sömu sporum efir 2 ár?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.9.2020 | 12:44
Góð áminning
hjá Geir Ágústssyni:
"
Þriðjudagur, 8. september 2020
Jarðefnaeldsneyti er frábært
Allt tal um að hætta notkun á jarðefnaeldsneyti er tómt tal. Mannkynið hvorki ætti né getur hætt að nota jarðefnaeldsneyti með núverandi tækni, og það eru fá teikn á lofti um að tæknin geti leyst jarðefnaeldsneytið af á næstu áratugum.
Auðvitað geta rík lönd talað á öðrum nótum. Það er alveg hægt að neyða almenning til að taka upp hálfþróaða tækni og niðurgreiða með svimandi fjárhæðum valkosti við jarðefnaeldsneyti. Auðvitað. Og um leið láta börn í Afríku grafa á eftir sjaldgæfu málmunum sem þarf í öll þessi batterí. En fyrir heiminn, heilt á litið, eru það bara heimatilbúnar og svæðisbundnar æfingar sem skipta engu máli fyrir heildarmyndina og mannkynið. Á Ísland að nota jarðefnaeldsneyti eða ekki? Svarið skiptir ekki máli nema fyrir íslenska skattgreiðendur.
Nú fyrir utan að jarðefnaeldsneyti er ekkert vandamál í sjálfu sér. Jú, auðvitað veldur ósíaður kolareykur usla, en hreinn gasbruni eða bruni bensínvélar er engin sérstök óværa. Fyrir milljónir fátækra Jarðarbúa er raunar mikil framför í að komast í kol til brennslu, sem valkost við bruna dýraskíts innandyra með tilheyrandi reykeitrun og jafnvel hættu á dauða.
Hafi menn áhyggjur af styrkleika koltvísýrings í andrúmsloftinu og því að hann hafi meiri áhrif á hitastig lofthjúpsins en sjálf sólin þá er sú goðsögn á góðri leið með að verða afhjúpuð sem ósönnuð tilgáta. Koltvísýringur er ekki mengun. Hann er tiltölulega áhrifalítill fyrir lofthjúpinn, en meiri styrkur um leið frábær áburður fyrir plönturnar. Því meira, því betra (upp að ákveðnu marki, auðvitað).
Svo þurfum við að muna að jarðefnaeldsneyti er ekki bara eldsneyti heldur líka hráefni. Það kæmi mér mjög á óvart ef það væru færri en 50 hlutir í kringum þig, sem þetta les, sem á einn eða annan hátt eru framleiddir með notkun olíu sem hráefnis.
Mörgum er tíðrætt um orkuskipti. Þau eru ekki frá jarðefnaeldsneyti í græna orku (svokallaða), heldur frá skítugri orku til hreinni."
Loftslagsbullið úr hinum fjörtíuþúsund Parísarfíflum AlGore er löngu komið niður fyrir vitrænt stig niður á plan Asbergerheilkennisins. Enginn minnist á það hvort sólin sé áhrifavaldur á hitastig jarðar svo sem var á tímum Risaeðlanna.
Langalangafi minn, hann Eiríkur Björnsson á Karlsskála varð svo ríkur á því að sjá fyrir hversu mögum áratogum hans fiskur var verðmeiri en fiskur innfirðinga, að hann gat gefið þeim heila kirkju þegar fram liðu stundir.
Fái ég mér nýjan bíl þá skal það verða dísill svo ég muni hvað hefur staðið undir framþróun mannkynsins og forfeðra minna.
7.9.2020 | 21:55
Veit hvað hún bað um?
Stjórnmál / Þegar allt kemur til alls er einni spurningu ósvarað. Er Þórdís Lóa í fullkominni flónsku gagnvart fjárhag Reykjavíkurborgar? Eða fer hún vísvitandi með ósannindi? Ekki veit ég, hvort mér þykir verra.
Það er Hildur Björnsdóttir, varaoddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem sendir formanni borgarráðs, Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, þessa sneið í Moggagrein í dag.
Tilefnið er neyðarkalli borgarinnar.
Starfshópur sem; sem skipaður var af borgarstjóra, hvar sátu margir helstu stjórnendur Reykjavíkurborgar, hafði skilað af sér:
Þar sagði meðal annars að viðbótarfjármögnunarþörf borgarsjóðs umfram forsendur fjárhagsáætlunar fyrir 2020-21 myndi nema 39 milljörðum króna. Þá væru ótaldir 36,5 milljarðar sem myndu falla til næstu árin. Jafnframt sagði í niðurstöðunum:
Vandinn snýst hins vegar ekki aðeins um skammtíma fjármögnunarvanda heldur stefnir í algerlega ósjálfbæran rekstur til margra ára. Þessa ósjálfbærni er ekki hægt að leysa með hækkun leyfilegrar skattlagningar eða þjónustugjalda eða með stórfelldum niðurskurði í útgjöldum borgarinnar. Hefðbundnar aðferðir eru ekki í boði.
Hildur heldur áfram:
Skógarbóndinn, Þórdís Lóa,
virtist alls ómeðvituð um neyðarkall borgarinnar til ríkissjóðs jafnvel þótt hún hefði á vordögum sett erindið sjálf á dagskrá borgarráðs.
Sá kann ekki að segja af súru sem aldrei sýpur nema sætt. Meirihlutaflokkarnir hafa meiri áhuga á eigin innantóma loforðahjómi, en úrlausn flókinna viðfangsefna. Þórdís Lóa ræktar garðinn sinn, en sýnir fjármálum borgarinnar fullkomið hirðuleysi."
Getur verið að þessi meirihluti verði virkilega endurkjörinn eftir allt sem á undan er gengið? Skoðanakannanir útiloka það ekki. Bragginn, skólarnir, skuldasöfnunin sem er nærri 400 millljarðar meðan öll önnur sveitarfélög greiddu skuldir niður. Formaður Borgarráðs man ekki milli mánaða að hún var búin að senda út neyðarkall til alríkisins þegar hún skrifar um góða stöðu Borgarinnar í Mogga.
Ég hald að aðeins Dagur Bé. sjálfur geti nálgast Þórdísi Lóu í algjöru meðvitundarleysi um umhverfi sitt.
Því miður er Borgarstjórnarflokkur íhaldsins svo daufgerður að meirihlutinn virðist komast upp með hvað sem er. Alveg eins og á tíma Ingibjargar Sólrúnar þegar hún bara gargaði niður mótmæli andstæðinganna þegar engin rök fundust. Sagði hiklaust svart hvítt og að Borgarsjóður væri rekinn hallalaust þegar milljarður í mínus væri bara "undirliggjandi halli" sem væri algerlega hættulaus.
Hefur fjármálalæsi yfirleitt þekkst í Borgarstjórn Reykjavíkur síðan á þeim dögum Ingibjargar Sólrúnar? Þeir eru til sem finnst hún hafa verið ósvífnasti lygalaupur sem nokkru sinni hefur verið uppi í íslenskri pólitík. En Þórdís Lóa virðist vera frekar í ætt við gömlu konuna sem lagði sprekið í bálköst Brunós sem sagði aðeins við það tækifæri : "Ó þú heilaga einfeldni".
Þórdís Lóa virðist ei vita hvers hún biðja ber til lausnar fjárhag Reykjavíkurborgar.
7.9.2020 | 12:58
Innilegar samúðarkveðjur
vil ég senda skólasystkinum mínum Jóni Baldvin og Bryndísi Schram í þeirri fjölskylduógæfu sem á þeim dynur þessa daga.Þau hafa ævilangt aldrei sýnt mér nema góðan vinskap. Þó að þau vissulega geti verið glettin og fyrirferðarmikil á góðum stundum , þá fullyrði ég að ekkert illt býr í þessum ágætu hjónum.
Henry Ford lýsti þessu svo: Never complain, never explain ("Aldrei að kvarta, aldrei að útskýra") Ford vissi greinilega hversu erfitt er að verjast áburði. Ekki síst um löngu liðin atvik. Þó að enginn eigi að vera sekur fyrr en sök er ótvírætt sönnuð þá loðir leðjan oft við og einhverjir vilja trúa hinu versta.
En ég stend með þeim hjónum og sendi þeim mínar innilegar samúðarkveðjur.
7.9.2020 | 12:40
Keisarans skegg?
finnst mér vera undir í deilu þar sem við etjum saman tveimur af okkar góðu vísindamönnum um það hvort við eigum að hafa heimkomusmitgát eða sóttkví á erlendum ferðamönnum á landamærum.
Skiptir þetta virkilega máli um afkomu ferðamannaiðnaðarins?
Kári Stefánsson sagði í Silfrinu að það væri svo erfitt að fylgja heimkomusmitgát eftir frekar en sóttkví. Sem sagt tæknilegs eðlis. Jón Ívar taldi heimkomusmitgát vera framkvæmanlega og minna íþyngjandi. Þessir góðu menn voru sammála um að smitleiðirnar væru mjög viðkvæmar og Kári benti á að sýkingarnar næstliðnu stöfuðu allar frá einum aðila sem komist hefði í gegn um netið.
Tekur það því að vera að deila um framkvæmd landamæraskimunar sem vísindamennirnir eru sammála um að nauðsynleg sé? Er þetta ekki nefnilega bara spurning um skamman tíma þar til að þetta má endurskoða?
Er þörf á að láta þessa dýrmætu vísindamenn deila svona um keisarans skegg þegar bóndavitið segir okkur einfaldlega, "Play it safe"?
6.9.2020 | 12:07
Næstu bólfélagar í ríkisstjórn Íslands

Gunnar Smári skrifar:
"Tek ofan fyrr Pírötum. Það er komið nóg af meðvirkni stjórnarandstöðunnar með aðgerðum ríkisstjórnarinnar, þegar hún lætur narra sig til að samþykkja vond mál (annað hvort beint eða með þögninni) gegn smávægilegum fegrunaraðgerðum. Stjórnarandstaðan á að standa föst á móti misnotkun almannasjóða og -eigna fyrir ríkustu fjármagnseigendurna og allra stærstu eigendur allra stærstu fyrirtækjanna; hafna þessar stefnu og bjóða upp á betri valkost."
Þetta er glæsilegur framtíðarhópur í næstu ríkisstjórn
Íslands. Þarna skortir ekki forvitnina eða hugsjónirnar um jafnrétti og bræðralag hjá næstu bólfélögum í ríkisstjórn Íslands.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.7.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 3421028
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko