Bloggfærslur mánaðarins, september 2007
20.9.2007 | 21:39
Bravó fyrir Gulla !
Loksins gerði Gulli heilbrigðisráðherra það sem menn biðu eftir. Lagði niður framkvæmdanefndina um þetta Hátæknisjúkrahús sem Davíð Oddsson tók skyndilega að tíðræða. Mikið húsnæði er sagt hafa losnað fyrir starfsemi Blóðbankans við þessa aðgerð, en þar er sagt að nefndin hafi sest að og haldið sig ríkmannlega.
Vonandi finna Alþingismenn sér eitthvað þarfara að gera í heilbrigðismálum en að byggja nýjan steinkassa utanum málaflokk sem Alþingi hefur ekki til þessa ráðið við að reka. Þingmennirnir bjóða sífellt meiri og betri þjónustu við borgarana, sérdeilis fyrir kosningar. En þykjast svo ekkert skilja í því í fjárlaganefnd, að þjónustan kostar verulega meiri peninga en þeir eru að slemba í hana, hvað svo sem rekstrarreynsla síðustu ára segir. Svo horfa þessir sömu menn aðgerðalausir ár eftir ár á lyfjaeinokunina og samkeppnisleysið í læknastétt.
Apropos Davíð Oddsson. Af hverju er hann sífellt að senda pólitískar yfirlýsingar úr Seðlabankanum sem hljóta koma Geir Haarde illa og draga úr trúverðugleika stjórnarinnar ? Ef hann sem embættismaður getur ekki haldið sig á mottunni hvað þetta varðar og áttað sig á því, að hann er ekki lengur formaður flokksins né forsætisráðherra, heldur bara venjulegur blýantanagari á framfæri ríkisins, þá finnst mér að eigi að fjarlægja hann úr bankanum svona rétt eins og gert var með Alfreð Þorsteinsson úr framkvæmdanefndinni. Og hugsanlega væri líka alveg nóg að hafa þar einn bankastjóra og spara eitthvað uppí skúringakostnað á spítölunum.
Skipstjóri verður að fá frið til að stýra skipi sínu án þess að hásetarnir séu sífellt að skipta sér af því.
16.9.2007 | 22:01
Grein í Þjóðmál
Þessi grein kom í nýjasta hefti Þjóðmála. Fyrir þá sem ekki lesa það ágæta rit set ég textann hér inn
fyrir þá sem nenna að lesa.
Um innflytjendur.
Þegar rætt er um flóttamenn birtast í hugum okkar hinna eldri gamlar myndir af Þjóðverjum 1945. Allslausu fólki á flótta undan hersveitum Rússa .Þennig er mynd okkar af flóttamanni sú, að um sé að ræða fólk sem er að forða sér frá bráðri lífshættu frá grimmilegum óvini. Svo háttar yfirleitt til í veröldinni, að gnægð er af fólki, sem uppfyllir þessi skilyrði.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra Íslands hefur sagt að við Íslendingar berum sérstaka ábyrgð gagnvart slíkum flóttamönnum frá Írak, af því að við hefðum staðið að hernaði gegn þeim. Þaðan hafa nú flúið á aðra milljón manna. Og margir munu þar vera sem vildu flýja ef þeir gætu. Morgunblaðið hefur skýrt frá því, að 5 milljónir Súdana séu nú flóttamenn í eigin landi. Þetta er nýstárleg skilgreining og þarfnast nánari athugunar.
Eru Kúbverjar nú flóttamenn í eigin landi eða eru þeir fangar Castros ? Voru Þjóðverjar flóttamennn í eigin landi í heimstyrjöldinni eða aðeins fangar Hitlers ?
Hingað eru að koma svonefndar flóttakonur frá Kólumbíu. Örugglega tilheyrir þetta fólk ekki hinum opinbera 200.000 manna flóttamannahópi, sem Flóttamannastofnun S.Þ. skilgreindi sem slíka árið 2006. En í þeim hópi hafði orðið stórfjölgun frá árinu áður.
Mér er allsendis ókunnugt um hver á upptökin af komu þessara kvenna til Íslands. Enn síður veit ég hvernig þær eru útvaldar, eftir hvaða mælistiku né hver sjái um valið.
Ég hef heyrt, að hingaðkoma þessara kólumbísku kvenna sé fyrir einkaframtak áhugakonu um málefni S.-Ameríku. Getur það verið, að stöku- áhugafólk um einstakar þjóðir geti haft slík áhrif á innflytjendamál á Íslandi? Getur svo enn annað fólk komið sér upp einkastarfsemi, sem byggist á síauknum innflytjendafjölda eins og forstöðumaður Alþjóðahússins okkar gerir ?.
Kólumbía er lýðræðisríki með margt á pari við Íslendinga, t.d. fjölda farsíma osfrv. Þar er mikill iðnaður, bæði textiliðnaður, sementsframleiðsla, olíuiðnaður og glæsilegur byggingariðnaður. Margar borgir í Kólumbíu eru með þeim glæsilegustu í heimi. Kólumbía er í 28. sæti þjóðartekna í heiminum. Þar er blómlegur ferðamannaiðnaður og má til dæmis lesa ferðasögur Íslendinga frá landinu á netinu. Þeir láta mikið af landinu, fegurð þess og viðmóti fólksins. Lífið í Medellín líkar þeim hið besta þó okkar fjölmiðlar hafi ekki getið þess að í þeirri borg væri annað en blóðugir eiturlyfjabarónar. Kólumbía er ferðamannaland, sem Íslendingar ættu að kynna sér nánar. Þjóðartekjur eru hinsvegar mun lægri í Kólumbíu en hér á landi þar sem mikill fjöldi índíána lifir við fornaldarskilyrði og vilja ekki annað. Meðaltekjur eru þó á sjöundaþúsund bandaríkjadollarar, sem er hátt miðað við t.d. Afríkulöndin. Vinnu virðast flestir geta fengið sem á annað borð geta eða vilja.
Nú sækjum við Íslendingar hóp kvenna til Kólumbíu og kynnum þær fyrir þjóðinni sem flóttamenn. . Er ekki eitthvað bogið við þetta ? Er eitthvað að flýja frá Kólumbíu nema eigin örbirgð ?. Hvað eru þessar konur og einstæðar mæður frá Kólumbíu að flýja? Pólitískar ofsóknir? Styrjaldarástand? Ekkert af þessu á við. Mér finnst að við Íslendingar móðgum þessa þjóð með því segja frá því að við séum að taka opinberlega við flóttamönnum frá þessu lýðræðisríki.
Kólumbía er frjósamt land og þar vex flest sem arð gefur. Líka kókaplantan, sem mestan arðinn gefur af þeim plöntum, sem nú eru ræktaðar í heiminum allt frá Afganistan til Andesfjalla. Hvað á fátækt fólk að gera sér til bjargar? Bush Bandaríkjaforseti reynir að kaupa stjórnmálamenn í Kólumbíu til að brenna akrana. En borgar svo lítð utan biflíusproks og hefðbundins lýðræðishjals, að fólkið velur fremur það sem í magann má láta.
Hverjir skyldu vera bjargvættir litla mannsins í Kólumbíu? Kókaínsalarnir auðvitað. Alveg eins og AlCapone var veitull menningarsinni í Chicago á bannárunum, þá verða þeir vinsælir af alþýðu því þeir veita verðmætum inní samfélagið og gera opinber góðverk. Alveg eins og íslenzkir stjórnmálamenn gera þegar þeir kaupa til dæmis nýja Grímeyjarferju fyrir peninga frá fólkinu sjálfu. Það verða því skiljanlega stjórnmálaátök um slík efnahagsmál og klögumálin ganga auðvitað á víxl bæði hér og þar. Kólumbía er fjölmennt ríki, , 45 milljónir manna og landið sjálft er ellefu sinnum stærra en Ísland. Fáfræði og fátækt er meðal frumbyggja landsins og eru þeir ekki öfundverðir. En landið og fólkið er frjálst og geta menn borið það saman við Kúbu, þar sem hvorugt er og allir eru jafn fátækir nema glæpamennirnir í stjórnarráðinu og svo hinir á götunum.
Þessar Kólumbíukonur eru því líklega fremur að flýja fátæktina heima hjá sér heldur en pólitískar ofsóknir. Vissulega eru Kólumbíumenn einnig í nokkrum vanda vegna blómlegrar
eiturlyfjaverslunarinnar, sem stjórnvöld geta eða vilja ekki uppræta. . Þótt hér á landi sé ekki um að ræða manndráp í stórum stíl erum við Íslendingar opinberlega ekki síður ráðþrota gagnvart okkar eiturlyfjalýð og leyfum þeim að vaða uppi mótspyrnulítið. Enda líka hérlendis um stóratvinnuveg að ræða sem margir græða á. Áreiðanlega hafa þó líka margir flúið land undan handrukkurum eiturlyjabarónana okkar sjálfra.
Hvað eru þá skilgreindir og raunverulegir flóttamenn yfirleitt að flýja? Erlent innrásarlið í landi sínu? Vopnuð átök pólitískra glæpamanna (les stjórnmálaflokka), eigin landsmanna? Arðrán, kúgun og afleidda örbirgð af hálfu þessara sömu afla? Hvort sem þau kallast Talibanar, Hamas, Skínandi Stígur, Fatah eða kommúnistaflokkur Castros, deyr saklaust fólk sem afleiðing af óvægnum hugsjónum annars fólks. Ég get alls ekki fundið til einhverrar ábyrgðar gagnvart slíkum uppákomum. Ég ræð engu um orsök né afleiðingar hegðunar glæpamanna um víða veröld. Ég get ekki tekið að mér að bæta fyrir fyrir hegðun fólks sem ég skil ekki og ekki skilur mig..
Vissulega er ástæða til að hafa samúð með fólki sem býr við fátækt og ömurleg lífsskilyrði. En dæmið er svo stórt að engin getur náð yfir það með sinni samúð.Það eru milljónir og aftur milljónir manna á þessari jörð, sem búa við þvílíka örbirgð að íslenzkur útigangsmaður lifir í allsnægtum miðað við það. Mikið af örbirgðinni er beinlíns afleiðing af gjörðum glæpamannanna, sem fara með illa fengin völd í ríkjunum. Getum við Íslendingar ekki gert okkur ljóst, að við getum ekki leyst vandamál heimsins, jafnvel þó að við gefum upp allt landið okkar Ísland og allar veraldlegar eigur með?
Valdaræninginn Mussarev í Pakistan eyðir 47 sinnum meira í herinn heldur en í heilbrigðismál í landinu og hann nýtur sérstaks velvilja lýðsræðissinnanna í Bandaríkjunum Stjórnarherrarnir í Eþíópíu eyða tífalt meira fé í byssur og skot til að drepa eigin þegna með heldur en að stuðla að langlífi þeirra. Vitleysingurinn Mugabe í Rhodesíu veldur þegnum sínum ólýsanlegum þjáningum með hugsjónum sínum. Berum við þá ekki siðferðilega ábyrgð á gerðum hans þar sem við fordæmdum Ian Smith á sínum tíma? Eigum við að sækja flóttamenn frá þessum löndum ? Þar er þó einhver neyð til að flýja frá.
Af hverju tekur Lichtenstein ekki á móti innflytjendum eða flóttamönnum. En selur efnafólki ríkisfang í staðinn ? Hvernig eigum við Íslendingar að leysa öll vandamál heimsins, sem margfaldast á hverjum áratug með stjórnlausri fólksfjölgun jarðarbúa?
Hversvegna er er Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra að ferðast um í útlöndum og bjóða flóttamönnum á íslenskan sósíal? Er það í skiptum fyrir sæti fyrir Ísland í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna? Hversvegna sækjumst við eftir slíku sæti þegar við getum ekki einusinni tryggt öryggi eigin borgara í höfuðborg eigin lands?
Hversvegna viljum við endilega búa til sömu vandamál á Íslandi og Danir og Stór-Svíarnir eru búnir að gera hjá sér? Hvað þá þýzkir með Tyrkina? Viljum við virkilega fá söfnuði múhameðskra Araba hér á landi, sem verða eins sjarjaþenkjandi gegn hinu nýja föðurlandi eins og arabisk-nýdanski þingframbjóðandinn í shadornum, sem vildi láta drepa danska hermenn í Írak og Afganistan?
Mér finnst að Íslendingar eigi að velja þá innflytjendur vandlega , sem við kærum okkur um, Velja fremur fólk, sem líkist okkur og er líklegt til að samlagast okkur. Velja að það sé bæði menntað og heilbrigt og af menningarstigi, sem getur heldur bætt okkar eigið. Við höfum ekkert að gera við súdanska stríðsmenn eða arabiska vígamenn hingað. Slíkt fólk verður bara til vandræða. Ómenntað fólk frá örbirgðarlöndum á heldur ekkert annað erindi við okkur en að sjúga íslenskar skattkýr. Við eigum alveg nóg með okkur sjálf og margt er okkar samfélagi til stórrar skammar, sem ekki batnar ef við þynnum stórkostlega út mann- og þjóðarauðinn. Svo finnst mér að við hljótum líka að bera einhverja ábyrgð gagnvart landinu okkar, menningarsögu og framtíð afkomendanna. Ein kynslóð Íslendinga ætti ekki að geta gefið landið frá sér til frambúðar, hversu blinduð hún er af eigin ágæti..
Innflytjendur eru ekki safnorð. Sumir innflytjendur eru æskilegir en aðrir eru það alls ekki. Og fyrir alla muni hættum að telja alla farandverkamenn efnivið í Íslendinga. Það eru forréttindi að vera Íslendingur og með það ríkisfang ber að fara af ítrustu sparsemi og yfirvegun. Fólk á að geta komið hingað og unnið svo lengi sem vinnu er að hafa. Svo getur fólkið bara farið heim aftur nema það vilji endilega samlagast okkur og sé reiðubúið að semja sig að okkar lögum, siðum og menningu.
Mér finnst að við Íslendingar eigum að hugsa jafn vel um auðlindina íslenzkt þjóðerni og þorskkvótann. Hinu fyrrnefnda er hægt að tapa endanlega með fíflaskap.
6.9.2007 | 22:14
Myndir frá Múslímaheimi
Ég fékk þessar myndir "lánaðar" af síðu Gústafs Níelssonar. Telja menn æskilegt að hér verði byggð moska fyrir múhameðsmenn ? Er æskilegt að þeir verði svo fjölmennir hér að þeir nái að mynda söfnuði þar sem útlendir múllar prédika ? Myndum við geta lifað við það að þeir iðki sína trúarlegu siði eins og sjá má á einni myndinni ? Ég óttast það, að mér gangi illa að tileinka mér umburðarlyndi í nægilegu magni til þess að þykja þessa rmyndir geðslegar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.9.2007 | 23:14
Aðeins eitt vegna Grímseyjarferjunnar.
Mig langar að vita aðeins eitt varðandi Grímseyjarferjuna. Hver fékk umboðs-eða sölulaun þegar hún var seld Íslendingum ?
Ég var að vona að það væri rétt að það hefði verið Joe Grimson, því enginn þykist vera vinur hans. Eller hur ?
Öll önnur vitleysan stendur óstudd og sannar það sem löngum var vitað, að á Íslandi ber enginn pólitíkus minnstu ábyrgð á neinu. Það er svo gott sama hvað gert er í stjórnarathöfnum, þetta er allt í lagi góurinn. Þeir ættu bara að hætta að klifa á því hvað ábyrgð stjórnmálamanna sé mikil. Kemur einhver auga á hana ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.9.2007 | 12:22
Vandamál fjölmenningarinnar
Kristín M.Jóhannesdóttir sem býr í Kanada skrifaði eftirfarandi á síðu sina nú í júlí:
16.7.2007 | 05:56
"Enn eitt morðið í indó-kanadíska samfélaginu
Fyrir rúmri viku var skólastjóri hér á Vancouver-svæðinu drepinn á heimili sínu. Eiginmaður hennar gaf þá skýringu að þrír menn hefðu brotist inn á heimili þeirra hjóna, lamið sig og drepið konuna. Í rúma viku hefur lögreglan leitað að mönnunum þremur en ekkert virðist styðja sögu eiginmannsins. Fyrir nokkrum dögum komu svo fram upplýsingar um að fyrir nokkrum árum hafi eiginmaðurinn ráðist á þáverandi fyrrum kærustu sína á heimili hennar svo varð að setja á hann nálgunarbann. Í dag var eiginmaðurinn svo handtekinn og er nú sá eini sem grunaður er um ódæðið. Þau hjón höfðu verið gift í viku.
Þetta er enn eitt morðið innan indó-kanadíska samfélagsins. Í apríl var 32 ára gamall Vancouver maður ákærður fyrir morðið á konu sinni, í febrúar fannst 33 ára kona stungin til bana á heimili sínu í Surrey og lítil dóttir hennar sat hjá. Enginn hefur verið ásakaður í því máli. 29. október var enn ein kona drepinn og eiginmaður hennar hefur verið ákærður um annarrar gráðu morð. Sex dögum áður fannst ófrísk kona brennd í Suður Delta. Eiginmaður hennar hefur verið ákærður fyrir morðið. Og 19. október í Port Coquitlam skaut maður konu sína í andlitið og sjálfan sig á eftir. Konan lifði af árásina en er nú blind. Í öllum tilfellum er hinn grunaði indó-kanadískur. Flestar konurnar eru það líka en í þessu síðasta tilfelli var eiginkonan múslimi.
Það er ekkert skrítið þótt maður hafi lítinn áhuga á því að giftast inn í sum samfélög. Það hefur ekkert með rasisma að gera heldur hreinlega almenna skynsemi. "
Á Íslandi hefur til þessa búið nokkuð einsleitt fólk, sem stendur fremur lítið í manndrápum. Það eru ekki lengur neinar blóðhefndarvenjur í hávegum hafðar á þessu landi. Ærumorð á óþekkum dætrum , dráp á meybörnum og umskurnir á stúlkubörnum osfrv. eru okkur framandi. Aldrei heyri ég það frá þessum fjölmenningarstrúboðum okkar, sem virðist mest liggja á að gefa land okkar og þjóð til þriðjaheims fólks, ráðleggja okkur um það hvað við eigum að gera þegar þessi mál fara að sjá dagsins ljós á Íslandi. En það hlýtur að koma að því ef þetta fjölmenningarfólk fær að halda áfrtam að ráða ferðinni í innflytjendamálum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko