Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Verðtryggingin er vinur þinn.

Margar skrítnar hugmyndir ríða húsum á Íslandi í sambandi við peninga, lánspeninga og vexti. Eitt það furðulegasta er að binda krónuna við annan gjaldmiðil en vera samt með krónuna. Af hverju ætti það að vera betra en að taka upp annan gjaldmiðil ? Í ágætri grein eftir Ársæl frænda minn Valfells í Þjóðmálum sýnir hann fram á að það er tæknilega vel framkvæmanlegt að skipta efnahagslífi Íslendinga yfir í Evru. En mér er hinsvegar spurn : Hver þorir ?Kennarsambandið ? Rafiðnaðarsambandið ? Félag sjúkraliða ? Læknafélagið ? Hvernig getur maður náð kjaraárangri með því að berja dauðan hest ? Eða rukka gjaldþrota lík ? Það yrði fljótlega staðan ef við gæfum frá okkur prentvélina meðan veldi verkalýðsfélaganna stendur óbreytt..Til hvers að vera með krónu ef það á að binda hana við annan gjaldmiðil ?. Ert þú ekki f jármagnseigandi þegar þú sparar ?. Eða viltu bara lifa hátt fyrir lánsfé sem þú þarft ekki að borga nema að hluta en verðbólgan eyðir restinni. ?  Ef þú færð lánaðan osthleif, hvort áttu að skila osthleif til baka eða bara ostsneið ?  Ef þú átt osthleif, finnst þér þá í lagi að ég, sem holdgerfingur verðbólgunnar, komi og éti reglulega af honum þangað til hann er næstum búinn ? Eða er svarið þitt annað ef ég á ostinn og þú ert í hlutverki verðbólgunnar ?Af hverju á fjármagnseigandinn( sparandinn) að lána þér nokkurn skapaðan hlut ef þú vilt ekki borga til baka ? Af hverju á fólk að spara ef sparnaðnum er stolið jafn harðan af  ríkinu ? Ég lifði við það ástand árum saman . Nú heldur ungt fólk því stundum fram,  að ég hafi fengið allt gefins frá ríkinu. Aðeins unga fólkið þurfi að borga þín lán til baka.  Munurinn var sá , að þá var bara ekkert fjármagn í boði nema pólitískt úthlutað. Húsnæðislánin námu þá hugsanlega  um 30 % af staðalbundinni íbúðarstærð, ca. 100m 2. Afgangurinn varð að koma frá fyrirtækjum, frændum, vinum  og eigin puði.Ég held, að það sé ekki lykillinn að lífshamingjunni að taka öll lán sem hægt er. Gamli hugsunarhátturinn að þiggja ekki af sveit og eiga fyrir útförinni sjálfur, -var hann alvitlaus ? Verða menn ekki einhverntímann að skilja, að lán er alltaf ólán fyrir þann sem tekur. Nema hann fjárfesti í einhverju sem hann græðir á  eða geti borgað til baka af sjálfsaflafé. Kaupa e-töflur í útlöndum fyrir lánsfé og selja innanlands er dæmi um  hvernig menn geta grætt á því að taka áhættu.  Eru alllir vissir um það, að væri þeim boðinn milljarður að láni , þá væri framtíðin björt til langframa ?  Hvernig græðir maður á að kaupa   neysluvörur eða annað á VISA-yfirdrætti ? Hvernig græðir maður á bílalánum ?   Hinsvegar er þeim   sem ekki tekur lán ,slétt sama um vaxtastigið og verðtrygginguna. Sá sem sparar og lifir skynsamlega er kóngur í ríki sínu og frjáls maður. Sá sem getur logið, svikið og stolið og borist á er hinsvegar oft sá sem áhorfendur öfunda mest , án þess að vita allan sannleikann, Hvað myndi gerast ef allir gætu fengið lán fyrir hverju sem er ? Stundum er eins og þeir sem hæst láta í að formæla vöxtum og verðtryggingu krónunnar haldi að þetta sé virkilega mögulegt. Eins og í Matadorspilinu ."Vextir eiga að vera svo háir ,sem til eru fífl að borga ." sagði gamli Sveinn.  Fólk ætti  að hugsa meira um muninn á eign og skuld. Mér finnst að það ætti að biðja dr. Pétur Blöndal  að flytja alþýðufyrirlestra um þessi mál og kenna þessi fræði í skólum landsins. Ég hef beðið þá spámenn sem krefjast afnáms verðtryggingar, aðallega úr Frjálslynda Flokknum , svara við spurningum mínum  um á hvað kjörum þeir vilji lána mér milljón af sínu eigin fé.  Þeir fást skiljanlega ekki til að svara enda kannske spyrjandinn ekki merkilegur.

Ég álykta því sem svo með sjálfum mér, að þeir séu að fiska eftir atkvæðum  hrekkleysingjanna með slagorðasíbylju um afnám verðtryggingar. Kosningahjal eitt án sannfæringar. Ekki virkar það á mig að minnsta kosti og líklega skýringin á stærð flokksins, sem betur fer.

Stjórnmálamenn hafa lítt gert sér grein fyrir því, að það er samstillt átak sveitarstjórnarmanna í lóðaskorti, byggingakalla og fasteignasala, sem er frumdrifkraftur verðbólgunnar á Íslandi. Það er lóðaskorturinn á höfuðborgarsvæðinu, sem  hefur keyrt íbúðaverðið upp fyrir pífaldan byggingakostnað. Hvorki verðtryggingin né vextirnir.Og auðvitað má ekki gleyma verkalýðsforingjunum í starfsgreinafélögunum. Þessir aðilar báru samábyrgð á 4000 % hækkun kauptaxtanna fyrir 1990 og raunkaupmáttarlækkun sem afleiðingu.  Eftir þjóðarsátt eru sveitastjórnarmennirnir  hinir seku fyrst og fremst.  Þeir bera ábyrgð á þenslunni sem myndaðist af þessum sökum.  Má minna á að í valdatíð R-listans í Reykjavík dró nær algerlega fyrir lóðaúthlutanir þar, sem beindi spennunni til nágrannabyggðanna. Á þeim tíma fækkaði skólabörnum í Reykjavík og kostnaðurinn af fjölgun þjóðarinnar fluttist þaðan í nágrannasveitarfélögin. Menn eru hér í alvöru að kaupa íbúðarfermetrann á 400.000 kall og meira. Í Florida kostar svona 160 m2 vandað einbýlishús í góðu hverfi með tveggjabíla bílskúr 12- 15  milljónir.  Þó að dollarinn færi í hundraðkall eins og LÍÚ vill,  þá kostar það samt undir tuttugu. Hvað kostar það hérna ?´ Pí sinnum meira ? Vill einhver svara því af hverju ? Verðtrygging er nauðsynleg til þess að fólk geti sparað saman til elliáranna án þess að tapa sparnaðinum.  Lífeyrissjóðakerfið, sem við erum svo  hugfangin af,  er ekki endilega að skila fólki þeim lífskjörum sem stefnt var að. Þeir hafa tapað stórum fjárhæðum af því fé sem þeim var fyrir trúað í braski og í rekstrarkostnað. Ef  maður hefði lagt. inná verðtryggðan bankareikning með aðeins 5 % vöxtum 4 % +6 % af laununum  alla æfi, þá ætti sá sem vinnur í 40 ár með raunmilljón á mánuði um 120 milljónir á reikningi sem hann getur étið upp á næstu 12-15 árum sem sem milljón á mánuði eða óskert laun. Þá er meðalævin hvort eð er búin.  Og maki hans og börn erft afganginn ef hún reynnist styttri.   Þetta er mun betra og makavænna en það sem maðurinn fær á mánuði úr lífeyrisjóði. eftir 40 ára starf. Þetta er gamla sagan með apann og ostinn, apinn er búinn að éta lúngann af oststykkinu þegar upp er staðið. Nútíma íslenzkir sósíalistar og ríkisforsjárhyggjumenn, sem vilja banna fólki verðtryggingu fjárskuldbindinga , hafa aldrei svarað því á hvaða vöxtum þeir vilji lána  fé til  40 ára íbúðalána óverðtryggt. Eða milljónkrónukall af þeirra eigin   óverðtryggt til  eins árs ? Til 10 ára ? Til 20 ára ? Til 30 ára ? Til 40 ára. ?Þessir verðtryggingarfjandmenn ,sem hæst láta í slagorðavaðlinum, gleyma því, að fólk er ekki neytt til að taka verðtryggt lán. Viðskiptafrelsið hefur fært því aðra valkosti.  Ég veit ekki betur en að þjóðin sé mikið til hætt við að taka verðtryggð lán í krónum  til íbúðakaupa. Það standa nefnilega til boða lán í evrum eða öðrum myntum með svona 2-4  % álagi íslenzkra banka, sem yrðu óþarfa milliliðir ef hingað kæmu erlendir bankar. Auðvitað myndi þetta samræmda vaxtaálag íslenzku bankanna lækka ef útlenzki bankinn kemur og við fögnum því. Seðlabankinn  verður sjálfsagt ekki hress og hækkar stýrivextina eftir áramót, enda stéttarfélögin búin að tilkynna um að þau muni skaffa okkur tveggja tölustafa verðbólgu strax á næsta ári.

Gleðilegt ár


Eru allir innflytjendur jafnæskilegir ?

Manni skilst af orðum menningarvitanna okkar, sem öllu stjórna í innflytjendamálum, að ekki megi spyrja neinna spurninga þegar væntanlegur innflytjandi á í hlut.  Komi innflytjandi frá Bandaríkjunum þá rakst ég á eftirfarandi tölfræðiupplýsingar þaðan ( heimildir frá FBI)

 

" Major FindingsPolice and the justice system are not biased against minorities.Crime RatesBlacks are seven times more likely than people of other races to commit murder,and eight times more likely to commit robbery.When blacks commit crimes of violence, they are nearly three times more likelythan non-blacks to use a gun, and more than twice as likely to use a knife.Hispanics commit violent crimes at roughly three times the white rate, andAsians commit violent crimes at about one quarter the white rate.The single best indicator of violent crime levels in an area is the percentage ofthe population that is black and Hispanic.Interracial CrimeOf the nearly 770,000 violent interracial crimes committed every year involvingblacks and whites, blacks commit 85 percent and whites commit 15 percent.Blacks commit more violent crime against whites than against blacks. Fortyfivepercent of their victims are white, 43 percent are black, and 10 percent areHispanic. When whites commit violent crime, only three percent of their victims areblack.Blacks are an estimated 39 times more likely to commit a violent crime againsta white than vice versa, and 136 times more likely to commit robbery.Blacks are 2.25 times more likely to commit officially-designated hate crimesagainst whites than vice versa.GangsOnly 10 percent of youth gang members are white.Hispanics are 19 times more likely than whites to be members of youth gangs.Blacks are 15 times more likely, and Asians are nine times more likely.IncarcerationBetween 1980 and 2003 the US incarceration rate more than tripled, from 139to 482 per 100,000, and the number of prisoners increased from 320,000 to 1.39million.Blacks are seven times more likely to be in prison than whites. Hispanics are

three times more likely. "

Auðvitað kemur innflytjandi til Íslands ekki úr svona umhverfi. Því göngum við útfrá alveg pottörugg. Hér gilda ekki reynslutölur annarsstaðarfrá. Þessvegna skapast hér aldrei "Danskt ástand í innflytjendamálum "

  

 


Byggingakostnaðurinn

Menn fárast yfir verðlaginu á íbúðum hér á höfuðborgarsvæðinu. Margir viðrast halda að þetta sé verðtryggingunni og Davíð að kenna. Meinsemdin liggur dýpra en nær en samt margir halda. 

Það er samstillt átak sveitarstjórnarmanna í lóðaskorti  og byggingakalla, sem hefur keyrt íbúðaverðið upp fyrir pífaldan byggingakostnað. Ekki verðtryggingin né vextirnir. Skoðið lóðaskortsstefnu R-lístans í Reykjavík allan valdatímann. Hún olli sprengingu í lóðarverði á höfuðborgarsvæðinu. Og sprengingu í íbúðaverði. Og verðbólgu, brjálaðri þenzlu osfrv. osfrv. Alþingismönnum virðist fyrirmunað að skilja samhengið milli þessa og rekstrarvanda  spítalanna og vansæld opinberra starfsmanna. En þetta er beintengt.

Menn eru í alvöru að kaupa íbúðarfermetrann á 400.000 kall og meira. Í Florida kostar svona 160 m2 vandað einbýlishús í góðu hverfi með tveggjabíla bílskúr 12- 15  milljónir. Þó að dollarinn færi í hundraðkall þá kostar það samt undir tuttugu.

Ef það væri glóra í heilbrigðiskerfinu þá ættu næstu íbúðir fyrir aldraða að rísa á Florida. Pí sinnum fleiri íbúðir fyrir peninginn. Pí sinnum meira að éta fyrir peninginn. Þrjúpí sinnum meira að drekka fyrir peninginn. Lægri launakostnaður starfsfólks sem talar heldur ekki íslenzku frekar en starfsfólkið á Droplaugarstöðum. Alltaf heitt og notalegt. Enginn fatakostnaður. Eða sjónvarpsáskrift.

Hvað kostar þetta allt hérna ?´

Pí sinnum meira !

Pí lögmálið mitt er nefnilega í fullu gildi.    


Af hverju vill frjálslyndi flokkurinn ekki verðtryggingu ?

 

Stundum heyrir maður íslenzka lífeyrissjóðakerfinu hrósað í hástert um leið og menn formæla verðtryggingu lána. Það er eins og menn gleymi því hvernig ástandið var fyrir daga verðtryggingar. Engin lán fáanleg nema ef þú værir framsóknarmaður.

Verðtrygging er núna forsenda þess að þú getir sparað saman til elliáranna án þess að tapa þeim. En af því íslenzka kerfið kann aldrei  aðra leið en sósíalisma, þá erum við fastir í  lífeyrissjóðabullinu þar sem margir maka krókinn.

Ef  maður hefði lagt sjálfur inná verðtryggðan bankareikning með aðeins 5 % vöxtum, 4 % +6 %,  af laununum  alla æfi(núna er þetta 12 %),  þá ætti sá sem vinnur í 40 ár með raunmilljón á mánuði um 120 milljónir á reikningi sem hann getur étið upp á næstu 12-15 árum sem sem milljón á mánuði eða óskert laun. Þá er meðalævin hvort eð er búin  

Það má bera þetta  saman við peninginn  á mánuði sem þessi maður fær úr lífeyrisjóði eftir 40 ára starf. Þetta er gamla sagan með apann og ostinn, apinn er búinn að éta meiripartinn af osttykkinu þegar upp er staðið. Hér fyrr á árum töluðu ungir menn um báknið burt. Svo fóru þeir að vinna hjá því og nú er það  kjurt og hugsjónirnar horfnar útí veður og vind.

Merkilegt að heill stjórnmálaflokkur skuli berjast fyrir því að banna fólki verðtryggingu fjárskuldbindinga. Af hverju svara þeir  því þá ekki á hvaða vöxtum þeir vilji lána 40 ára íbúðalán óverðtryggt ?. NB úr eigin vasa . 

Því spyr ég forystumenn frjálsynda flokksins  beint hér og nú :

Á hvaða vöxtum  viljið þið lána mér milljónkrónukall af ykkar eigin  fé óverðtryggt,  til eins árs ? Til 10 ára ? Til 20 ára ? Til 30 ára ? Til 40 ára. ?

Mikið væruð þið vænir  ef þið vilduð  gera mér tilboð hér á síðunni. Mig sárvantar þetta og get komið að sækja þetta við fyrstu hentugleika. Og auðvitað til sem allra lengsts tíma því ég er að hugsa um að fara í hnattreisu fyrir þetta og það er betra að fara hægar í afborganirnar þegar heim kemur. Ég lofa að skrifa ykkur póstkort úr hverri höfn ef þið sjáið um farareyrinn.

Ég veit ekki betur en að þjóðin sé mikið til löngu hætt við að taka verðtryggð lán í krónum  til íbúðakaupa. Það standa nefnilega öllum til boða lán í evrum með svona 2 % álagi íslenzkra banka og hafa gert allt þitt kjörtímabil núna á þingi .  

Auðvitað lækkar hið samræmda vaxtaálag íslenzku bankanna þegar útlenzki bankinn kemur og við fögnum því. Davíð verður sjálfsagt ekki hress og hækkar stýrivextina strax eftir áramót, enda stéttarfélögin búin að tilkynna um að þau muni skaffa okkur tveggja tölustafa verðbólgu strax á næsta ári.


Alþjóðahús og Napoleon mikli

Napoleon mikli var einn mesti  herforingi sögunnar. Hann þekkti vel mannlegt eðli enda átti hann afdrifarík samskipti við flesta valdamenn Evrópu,  bæði með pennanum og sverðinu. En hann taldi pennann  hættulegastan allra vopna. Hann vissi líka,  að væri sá hinumegin borðsins ekki stuðningsmaður sinn, þá var hann andstæðingur. Engin hálfvelgja þar eða miðjumoð.

Hann var einn sá fyrsti þjóðhöfðingja  sem gerði opinbert stórátak í að annast um örkumlaða hermenn sína. Hann skildi líka mannlegt eðli í stríði og friði. Hann sá um að láta vissa "herdeild" fylgja hinum á vegferðinni. "Herdeild "  sem var  hermönnum  til huggunar í hörmungunum. Einhleypir karlmenn á besta aldri, eru jú eins og hlaðnar byssur. Án tengsla er mögulega hætta á ferðum eins og dæmin sanna.

Getur það ekki verið á sviði Alþjóðahúss, að  hugsa fyrir þörfum  skjólstæðinganna  ?  Aðeins fyrir  útlendinga með útlendingum að sjálfsögðu því ekki dettur neinum Íslendingi svoleiðis í hug.

Væri þetta ekki bara verktaka eins og önnur starfsemi ? Eða menningartengsli ?


Í svefnrofum

Í svefnrofum svífa fréttir dagsins fyrir hugskoti. Það er sgat frá morðtilraunum, innbrotum og ránum fíkla, smygl á dópi og kannabisræktun.  Hvað skyldi öll þessi fíkn  kosta þjóðfélagið og þegnana ?  

 

 Draumsýn Framsóknarmanna um fíkniefnalaust Ísland virðist fjarlægari en nokkru sinni fyrr.

Fíknin vil  ekki hverfa. Ákveðinn hundraðshluti þjóðarinnar bíður skipbrot í lífsins ólgusjó.

 

Í svefnrofum sé ég fyrir mér afgirt þorp. Einhverstaðar í sveit við sjó. Kannske á Snæfellsnesi eða Vestfjörðum. Þar eru svona aflöng íveruhús í röðum með sérinngöngum og blómum í gluggum. Mörg  herbergi , með rúmstæðum og hita, eldunaraðstöðu, mat í búri osfrv. Einna líkast veiðihúsum. Þorpið er rammlega víggirt. Til þess að varna óviðkomandi inngöngu frekar en öfugt.   Hugsanlega er þorpið deildaskipt eftir þörfum. Þarna eru Íþróttavellir, hesthús  og sitthvað fleira.

 

Í þetta þorp getur  örvinglað fólk skráð sig til dvalar til lengri tíma. Þarna er félagskapur fáanlegur fyrir þá sem vilja, aðrir geta verið útaf fyrir sig. Enginn í þjóðfélaginu okkar þarf að liggja úti í kaldur í tjaldi eða skúmaskotum.  Þarna er tölvusími, sjónvarp osfrv. Andleg leiðsögn er í boði fyrir þá sem vilja streitast á móti. Takmarkaður  samgangur við umheiminn að öðru leyti.

 

Þarna er býtibúr á vegum ríkisins .  Í því fást allar tegundir af ávana-og fíknilyfjum, spritt, spítt, kókaín ,sýra og heimaræktað hass– Allt saman frítt. Opið daglega. Fagfólk sér um sprautugjafir og útdeilingu.  Engar óhreinar HIV-og lifrarbólgunálar

 

Dvalarkostnaður allur er greiddur af ríkinu. Ég sé fyrir mér, að hann væri  hverfandi miðað við það sem hann sparar þjóðfélaginu og þegnum þess í löggæslu, líkams-og eignatjónum ? Í þessu þorpi ríkir mannkærleikur og umhyggja. Hjálp í nauðum.

 

Þarna má  vor minnsti bróðir  búa svo lengi sem hann heimsækir býtibúrið. Engum er  hleypt út úr þorpinu fyrr en hann er er sannarlega hættur í langan tíma.  Annars getur maður  ekki yfirgefið þorpið.  Þetta er eiginlega himnaríki eymdarinnar. En einnig griðastaður fyrir þann sem enga von á lengur.

 

Þarna sefur vesalings fíkillinn  án óttans.  Utan þorpsins sofa líka aðrir vel í öryggi  lífs og lima og . aðstandendur vita af vesalingum sínum borgnum.

 

Og fyrir utan girðinguna  hætta úlfarnir að þrífast á eymdinni. Mér finnst ég heyra  ýlfrin í þeim um hversu þetta séu syndug  svefnrof. Frelsi, frelsi , úhúúú. 


Ertu Rasisti ?

 Subject: Fw: PROUD TO BE WHITE?
Date: Tue, 4 Dec 2007 20:07:02 +0200

  

 

Very interesting  reading!!   


Perhaps we should get rid of the term 'racist' all together and  just
live our lives...

Michael Richards better known as Kramer  from tv's Seinfeld. This 
was his defense speech in court after making  racial comments in his comedy
act. He makes some very interesting  points.
Proud To Be White

Someone finally said it.
How many are  actually paying attention to this?

There are African Americans, Mexican  Americans,
Asian Americans, Arab Americans, etc.
And then there are just  Americans.

You pass me on the street and sneer in my direction.
You  Call me 'White boy,' 'Cracker,' 'Honkey,'
'Whitey,' 'Caveman' ... and  that's OK.

But when I call you, Nigger, Kike, Towel  head,
Sand-nigger, Camel Jockey, Beaner, Gook, or Chink ...
You call me  a racist.

You say that whites commit a lot of violence against  you,
so why are the ghettos the most dangerous places to live?
You have  the United Negro College Fund.
You have Martin Luther King Day.
You have  Black History Month.
You have Cesar Chavez Day.
You have Yom  Hashoah.
You have Ma'uled Al-Nabi.
You have the NAACP.
You have  BET.
If we had WET (White Entertainment Television) we'd be racists.
If  we had a White Pride Day, you would call us racists.
If we had White  History Month , we'd be racists.
If we had any organization for only whites  to 'advance'
OUR lives we'd be racists.

We have a Hispanic Chamber  of Commerce, a Black Chamber
 of Commerce, and then we just have the  plain Chamber of Commerce.
Wonder who pays for that?
A white woman could  not be in the Miss Black American
pageant, but any colour can be in the  Miss America pageant.
If we had a college fund that only gave white  students
scholarships you know we'd be racists.
There are over 60 openly  proclaimed Black Colleges
in the US. Yet if there were 'White  colleges' THAT
would be a racist college.
In the Million Man March, you  believed that you were
marching for your race and rights. If we marched  for
our race and rights, you would call us racists.

You are proud to  be black, brown, yellow and orange, and
you're not afraid to announce it.  But when we announce
our white pride, you call us racists.
You rob us,  carjack us, and shoot at us. But, when a
white police officer shoots a  black gang member or beats
up a black drug-dealer running from the law and  posing a
threat to society, you call him a racist.

I am  proud.
But you call me a racist.
Why is it that only whites can be  racists?

There is nothing improper about this e-mail.
Let's see  which of you are proud enough to send it  on.

 


Til varnar kristni og kirkju

 

 

Já þetta er rétt lesið ! Þó að ég hafi nú ekki verið þekktur að því að vera vel kristinn maður eða kirkjurækinn um dagana, þá hef ég orðið hugsi síðustu daga.

 

Vaxandi yfirgangur minnihlutahópa í þjóðfélaginu undir yfirskyni víðsýni og og umburðarlyndis hefur orðið þessarra heilabrota valdandi.  Mér finnst bókstaflega  traðkað á venjulegu fólki af allskyns menningarvitum, sem þykjast yfir það hafið af einhverjum ástæðum. Þessir aðilar telja það einhverja skyldu sína að hafa svo hátt um vizku sína,  að aðrar raddir heyrist ekki. Þannig verðu lygin  smám saman að sannleika eins og dr.Josef Göbbels vissi manna best. Hinn þögli meirihluti lætur hinsvegar lítið í sér heyra.

 

Ég gekk í barnaskóla eins og aðrir. Þar voru kennd kristinfræði og biflíusögur. Ekki datt föður mínum, sem var lítt kristinn,  í hug að banna mér að sækja tíma eins og sumir foreldrar gerðu  heldur hvatti mig til að slá mér upp á því sem hann nefndi kjaftafög, svo sem  sögu, landfræði oþh.  Ég lærði því kristnifræði vel og brilléraði á prófum án þess að trúa einu einasta orði í fræðunum.

 

Þjóðfélagi okkar hef ég síðan kynnst til þessa dags, sem kristnu samfélagi,  þar sem fólk með mínar trúarskoðanir  er í minnihluta. Svo er líka ennþá, þar sem þjóðin er víst 80-90 % í þjóðkirkjunni.  Ég  heimta því alls ekki  að þjóðkirkjunni verði lokað til að þóknast mér.  Í skólunum  mínum var nemendum raðað eftir getu í bekkina.  Í mínum bekk voru margir betri en ég, sem var manni hvatning áfram.  Það var enginn í bekknum, sem gat ómögulega  lært eða skilið það sem fram fór. Enda vandséð til hvers það ætti að leiða að stöðva hina í bekknum,  ef skólinn var á annað borð ætlaður til að kenna nemendum og koma þeim áfram.

 

Nú hafa þessir háværu  minnihlutahópar krafizt aðgengis fyrir alla nemendur, sama hvort hann skilur íslenzku eða ekki, hvort hann getur lært eða ekki, er með geðraskanir, athyglisbrest, hegðunarvandamál eða ekki.  Og öllum skal hrært saman í bekkina óháð getu. Afleiðingin verður auðvitað sú, að kennarastarfið er gert ómanneskjulegt og óleysanlegt. Framleiðslan verður auðvitað stórskert þegar sá hægasti ákvarðar hraðann.  Þjóðfélagið skaðast allt.  Það koma einhverjir múslímakrakkar inn í bekk og þá má ekki lengur kenna bekknum biflíusögur.  Prestum er nú síðast bannaður aðgangur að leikskólum, af því að einhverjum múslímakrökkum yrði þá mismunað. Mér bara ofbýður svona vitleysa. Þau geta bara farið heim ef þeim líkar ekki við hvernig við erum. Þjóðfélagið á ekki að snúast um minnihlutahópa, hvorki mig nér aðra.

 

Nú eru kennarar að kikna undir álaginu, sem fylgir blönduninni í skólanum. Þeir segjast þurfa miklar launahækkanir og lái þeim hver sem vill.  En það er sama þó að við tvöfölduðum laun þeirra, vandamálið yrði áfram það sama. Því sýnist mér einhverslags einkavæðing skólanna  löngu nauðsynleg, þannig að þeir sem það geta og vilja geti keypt betri menntun og kennara fyrir börnin sín. Þannig eigi börn ,sem það geta,  kost á að  þurfa ekki að vera í skólum með tossum eða dópistum í þriðja lið og svo framvegis. Skemmd epli lækna ekki heilbrigð epli var sagt í einni dæmisögunni sem ég lærði í barnaskólanum.

  

Þurfa ekki foreldrar líka að spyrja sig oftar að því, hver þeirra ábyrgð sé gagnvart börnunum, þegar öll þessi vandamál blasa við í skólunum og leikskólunum ?.   Þarf ekki  að auka heimagreiðslur til þeirra mæðra sem vilja vera heima með börnunum sínum fremur en að senda þau í heilsdagsvistanir í 80 % niðurgreidda   leikskóla,   til þess eins að vinna láglaunavinnu uppí gjöldin ?   Mér sýnist þetta augljóslega þjóðhagkvæmt þó að ég kunni utanað alla þuluna um félags...... Á leikskólum er  víða  unnið frábært starf og krakkarnir læra margt nytsamlegt svo sem að syngja á framandi tungum starfsfólksins.  En börn hafa líka gott af að vera með mæðrum sínum og því ætti einhver millivegur að vera til við en þetta “súrmjólk í hádeginu”- heilkenni.  Þyrftu  ekki kennarar sjálfir að standa að einhverjum þeim breytingum í skólastarfinu,  þar sem betri laun gætu fengist og þá  líka fyrir meiri árangur ?

 

John Howard, þá forsætisráðherra,  sagði við innflytjendur í Ástralíu nokkurn veginn í þessa

veru :” Við erum ástralskt, kristið og siðvætt þjóðfélag með eigin lög. Við báðum ykkur ekki um að koma hingað. Annað hvort semjið þið ykkur að okkar þjóðfélagi  eða hypjið ykkur.  Ég hefði kosið þennan mann á undan mörgum öðrum þó Ástralir hafi ekki endilega gert það. 

Mér finnast núorðið svo margir  vera í stjórnmálum vegna eigin ábata fremur en af hugsjónum. Það virðist varla nokkur  þora að segja hug sinn um þessa þróun.

 

Ég vildi því líka sjá okkur velja innflytjendur vandlegar en að konum útíbæ sé falið það vald.  Þeir sem vilja vera múslímar á þessu landi mega það mín vegna heima hjá sér að hætti Þorgeirs Ljósvetningagoða. Þeir eru minnihluti alveg eins og ég, sem  hef mín trúmál útaf fyrir mig og reyni ekki að troða þeim uppá aðra. En ríkistrúin er sú kristna og ég samþykki   því Þjóðkirkjuna,  meðan yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga vill hafa hana svipað og  forsetaembætti  á Bessatöðum, sem mér líkar ekki heldur.  Enda gegnir kirkjan  mismiklu hlutverki í lífi hvers Íslendings sem fæðist, lifir  og deyr.  Þjóðfélagið telur sig vera og er lagalega kristið samfélag hvað sem við hinir öðruvísi segjum. Mitt uppeldi segir mér það, að það sé  bæði heimskulegt og uppeldisleysi að teikna skopmyndir af Múhameð eða Jesú til þess eins að særa annað fólk.  Mér var kennt að það væri ljótt að hrekkja minnimáttar.En það á heldur ekki að láta allt eftir honum.

 

Ég vil ekki sjá opinbera múslímasöfnuði hér á Íslandi. Ég vil ekki fá neina múlla hingað til að rækta upp sjarja-ómennsku  í æskulýð landsins. Ég get ekki séð að þjóðfélagið batni við slíkt né við moskubyggingar.  Ég vil heldur ekki láta minnihlutann, tossa eða útlendinga tefja fyrir skólastarfi meðal þeirra sem geta lært og slíkt fólk eigi því heima í sérskólum eða sérkennslu.

 

Svo vil ég  fara gætilega með veitingu íslenzks ríkisborgararéttar. Farandverkamaður er ekki innflytjandi.  Mér finnst við eiga að þykja vænt um land okkar og þjóð eins og Einari Þveræingi . Mér finnst  að við eigum ekki leyfa menningarhálfvitum og hávaðaseggjum að henda íslenzku þjóðerni á glæ með uppivöðslusemi.  Mér finnst að ein kynslóð  hafi ekki leyfi til að gefa  óskyldum þjóðum það land sem okkur Íslendingum var trúað fyrir af forfeðrunum.


Velkominn Ólafur Liljurós !

 

 

Mikið er gaman að Ólafur Magnússon skuli vera kominn aftur til starfa í Borgarstjórn Reykjavíkur og heill heilsu. Hann er eini maðurinn, sem við vinir Reykjavíkurflugvallar getum treyst á Borgarstjórn. Allir hinir eru annaðhvort hráir eða soðnir eins og Villi eða eindregnir andstæðingar flugvallarins í Vatnsmýrinni eins og sexmenningaklíkan öll í Sjálfstæðisflokknum, nema  kannske utan Kjartans eins.

 

Ólafur Magnússon er maður hreinn og beinn. Honum getum við treyst. Vonandi kemur hann saman góðum lista við næstu kosningar sem við getum stutt heilshugar til góðra verka. Margir telja að Sjálfstæðisflokkurinn sé  búinn að gera endanlega í buxurnar í borgarpólitíkinni og honum muni fáir  treysta héðan af. Flokkur, sem ekki getur ítrekað staðið saman, er eins og hús sem er í sjálfu sér sundurþykkt. Það mun riða til falls og fall þess verður mikið. Eða svo stendur í hinni góðu bók held ég.  

 

Allt vinstragengið í nýja R-lista bræðingnum er líka alfarið á móti Reykjavíkurflugvelli.  Björn Ingi er eins og hann er, enn  staddur úti á Lönguskerjum.  Undir hans exi þora víst fáir að sofa lengur.

 

Því er Ólafur maður okkar Vallarvinir ! Styðjum við Ólafs Magnússon til góðra verka ! Gerum framtíð Reykjavíkurflugvallar  að úrslitakosti í pólitísku vali mann og málefna

  !

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 3417882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband