Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2018

Hvaða erindi á Sanna?

í íslenska Borgarpólitík ef hugleiðingar hennar um bandarískar plantekrusögur af  svörtum húsþrælum og útiþrælum í stíl Malcolm X  eiga erindi við reykvískra kjósendur? Aðrar hugleiðingar hef ég ekki séð frá henni.

Ef þetta er ástæðan fyrir því að hún vill ekki starfa með Sjálfstæðisflokknum  í Borgarstjórn þá eru það í sjálfu sér góðar upplýsingar. Hún er líklega ekki af okkar heimi nema hún talar eins og við og lítur út eins og við. En hún er stödd einhversstaðar annarsstaðar en hérlendis og kannski ekki einu  sinni með foringjanum Gunnari Smára Egilssyni, sem er mér algerlega mystisk persóna í pólitík.

Þetta er fólkið sem hefur boðið sig fram til að taka ákvarðanir fyrir Reykvískan veruleika. Afleiðingin er að Reykvíkingar fá aftur gamla meirihlutann til valda í boði Sönnu. Nýr Dagur er runninn upp.

Það var allt hennar sannlega erindi.


Önnur fjögur ár Flugvallarins

farin. 

Haldið verður áfram á braut eyðileggingarinnar til 2022. Mikið tjón verður hægt að vinna á þeim tíma, Meðal annars með því að þvergirða fyrir lengingu neyðarbrautar út í Skerjafjörð. Lenda brúnni frá Kópavogi á enda NS- Flugbrautar en til vesturs í sama tilgangi.

Önnur fjögur ár farin á Höfuðborgarsvæðinu í boði Þorgerðar  Katrínar og Viðreisnar.


Fjórðungur til eins manns!

Fjórðungur af öllum eiginfjárgrunni Landsbankans er nú hjá einum manni. Guðmundi í Brimi. Og það vantar meira en annað eins til að þjóna Guðmundi. Spurning er hvort ríkið geti skaffað annan banka til handa manninnum?

Mig minnir að bankamenn og sjóðastýrendur haft haft að þá meginreglu í bankafræðum að lána aldrei meira en 1-2% af bankanum til eins aðila. Annað endaði bara úti í mýri eins og dæmin hafa sannað. Jafnvel Jón Ásgeir og Björgólfur fóru ekki svona að ráði sínu.

En nú eru aðrir tímar. Landsbankinn er nefnilega ríkisbanki og yfir hann þarf ekki að setja neinn reynslubolta í bankafræðum  heldur dugar pólitískur gæðingur víst alveg sem fyrr. Hvorki þarf að hyggja að sögunni né sannleikanum.

Guðmundur í Brim hefur lengi haft skrítið uppnefni. Nú á það ekki lengur við þegar hann mætti kalla Guðmund gæfusama svona til að tryggja frægðina eins og Leifur heppni í sögunni.

Björgólfi Thor tókst víst að fá svo mikil lán hjá Deutsche að bankinn sá að hans hagsmunir voru orðnir að þeirra hagsmunum.Og er Deustche enginn smásjoppa uppi í sveit. Björgólfi varð bjargað eins og hann lýsir í bókinni "From Billions to Bust-and back." Afbragðs bók og skemmtileg saga mikils afreksmanns sem ég mæli með til lestrar.

Hvaða geimvísindi eða nauðsyn lágu að baki til að lána Guðmundi vinalausa heilan banka, Landsbankann geta leikmenn í bankafræðum varla skilið. Allavega vita menn núna hver er besti vinur Guðmundar.Og gagnkvæmt.

Hversvegna skyldi Grandi vera minni Vandi núna með Guðmundi Kristjánssyni innanborðs  í stað Kristjáns Loftssonar? Hver svirði er kvóti Granda? 

Hverjir eru með hina þrjáfjórðu af áhættugrunninum? Er Landsbankinn gjaldfær banki? Þarf ekkert Samkeppniseftirlit með svona rekstri. 

Hvernig mælast svona samrunar fyrir í stjórnmálaflokki markaðshagkerfis, samkeppni og dreifðrar eignaraðildar í atvinnulífinu? 

 


"Gangandi og hjólandi"

slagorðið sem þeir Dagur B. og Hjálmar Sveinsson hafa komið inn í málið er farið að vinna stórtjón á allri umferðarhugsun manna. Það er tönnlast svo á þessu, Dag eftir dag að það er komið inn í huga fólks að hér sé um eitthvað stórhlutfall umferðar að ræða. Sannara er að þessi umferð er svo lítilvæg og skilar svo litlu í kílóum til flutningaþarfar þjóðarinnar að það er aukaatriði en ekki aðalatriði.

Einar Björn Björnsson bloggar tímabært um nauðsyn bílabrúar yfir Fossvog frá Kársnesi yfir að Flugvelli sem nú er farið að gæla við samkvæmt "Gangandi-hjólandi"músarholu hugtakinu. Sú umræða öll er í skötulíki og tekur ekki á þeim vanda sem þarf að leysa. Flutningum nútíma þjóðfélags á vöru og þjónustu.

Þarna verður að byggja fjórbreiða brú yfir og vegur sunnan flugvallar liggi  inn til Reykjavíkurhafnar, í undirgöngum undir nýja NA braut út í Skerjafjörð og svo eftir þörfum. Ég veit ekki hversu þýðingarmikið það er að einhver skip komist undir þessa brú inn í Fossvog en það gerir þetta allt dýrara.

Frá Kársnesi þarf líka að koma brú yfir í Arnarnes og svo þaðan upp í Gálgahraun. Allt saman fjórbreiðar brautir í byrjun. 

Þetta "Gangandi-hjólandi" slagorð Dags B. og Hjálmars tröllríður umræðum um samgöngur á Íslandi. Þessi trafík er bara aukaumferð og heilsubót og hefur ekkert með hina raunverulegu flutningaþörf að gera. Þeir hafa látið eins og hugtakið sé aðalatriðið í umferð fólks sem það er auðvitað ekki. Þeim hefur tekist að gegnsýra hugsanir allt of margra með svona innihaldslausu tali um aukaatriði.Ísland er ekki til hjólreiða fallið nema sem sport og heilsubót.

Göngufólk og reiðhjól flytja ekki fisk eða varning milli staða


"Fyrirspurnarlýðræðið"

verður konungi bloggaranna Páli Vilhjálmssyni að yrkisefni.

Raunar er fyrirsögnin tæmandi lýsing á hugtakinu sem er orðin staðreynd á Alþingi.Stofnunin er orðin gikkföst í gersamlega úreltum vinnubrögðum sem gera ekkert annað en að eyða afli þjóðarinnar "í hin smáu tökin".

Páll segir:

" Stjórnarandstaðan spyr ríkisstjórnina um alla mögulega og ómögulega hluti í þeirri von að fá einhverja mola til að deila á samfélagsmiðlum og bæta við svei attan. Ef vel tekst til taka fjölmiðlar upp molann og viðkomandi þingmaður fær sína 15 sekúndna frægð.

Fyrirspurnarlýðræðið er ekki til að upplýsa eða móta pólitíska stefnu heldur til að fjargviðrast.

Þingmenn þykjast hneykslaðir á slæmu orðspori Alþingis og minni kosningaþátttöku almennings. En upphlaupsmál þingmanna gera ekki annað en að veikja alþingi."

Þetta er nákvæm lýsing á niðurlæginu Alþingis með vaxandi uppgangi skrípaflokka eins og til dæmis Pírata. Óstjórntæka flokka sem hafa engan tilgang annan en að ná í sporslur til einstakra þingmanna sinna. Annar getur ekki tilgangurinn verið hjá flokki sem hefur enga tengingu við stjórnmál og getur því engu náð fram af sjálfsdáðum. Það er því von að slíkir flokkar óski sér bakhjarls frá stórum yfirþjóðlegum aðilum eins og gerist á Ítalíu þar sem ESB tekur völdin af kjörnum fulltrúum og útdeilir til sér þóknanlegra.

Til að auka við 15 sekúndna fræg þessa fólks birta ólíklegustu fjölmiðlar eins og  Morgunblaðið kafla úr fimbulfambi þessara aðila á miðopnu og auka þannig á niðurlæginguna. 

Það er makalaust ef Alþingi er um megn að bæta ráð sitt til aukinnar skilvirkni og nútímavæðingar í stað eflingar þessa fyrirspurnarlýðræðis.

 


Adolf Hitler

er mörgum manni ráðgáta.Hann flaug hátt á hátindi stjórnmálaferils síns. En fallið varð mikið og skelfilegar afleiðingar. Milljónir týndu lífi.

EN mega menn gleyma því að það er búið að drepa milljónir síðan á dögum Hitlers og geta menn leyft sér að afgreiða hann sem bara sérstakt illþýði sem hann auðvitað var í hópi jafningja eða jafnvel ofjarla? 

Hitler átti sér sína sögu og stjórnmálastarf að baki. Hann var yfirvegaður fjölmiðlungur, skipulagður áróðursmaður.Hann var líka margt annað, listmálari eins og Churchill en ekki vín-eða tóbaksmaður eins og hann. Barngott illmenni og Vegan.

Af hverju skyldu menn keppast um að halda því fram  að Hitler hafi verið einhver aukvisi og gegnumfúlt illmenni frá fæðingu? Til að mynda lagði hann sér ekki til Gyðingahatrið fyrr en sem sem fullorðinn maður þegar hann kom heim gasblindur eftir 4 í forinni í Flanders og sá að allir jafnaldrarnir hans höfðu verið drepnir í stríðinu nema Gyðingastrákarnir sem höfðu verið keyptir frá herþjónustu. Hann varð víst megafúll við þetta.

Sjálfur var Hitler austurrískur sjálfboðaliði í þýska hernum  og heyrði ekki kvenrödd allt stríðið á enda.Hann stytti mönnum stundir í skorgröfunum með því að halda ræður um þjóðernismál.Hann fékk járnkrossinn fyrir hugprýði.

Hann fór í pólitík eftir stríðið til að breyta og endurreisa þýsku þjóðirnar og berjast gegn svívirðu Versalasamninganna. Hitler fékk flokksskírteini nr. 8 í National-Sozialistische Arbeiterpartei Deutschland. Hann kom flokknum í þriðjungsfylgi á landsvísu.

Vegna Versalasamninganna ríkti í Þýskalandi upplausn og borgarastyrjöld var háð á köflum.  Gömlu hermennirnir gerðust sjálfboðaliðar, Freikorps, við að stilla til friðar á götunum þegar lögreglan var yfirbugðuð af rauðliðum sem vildu byltingu eins og í Rússlandi. Þetta voru skelfilegir tímar og þjóðin svalt. Frakkar ráku nær hálfa milljón mjólkurkúa yfir landamærin frá sveltandi fólkinu. Slík var vitleysan í Versalasamningunum.

Marshall var minnugur þessa þegar hann stóð frammi fyrir eftirstríðárunum í Evrópu.

Hitler ferðaðist bæ úr bæ og hélt ræður. Tendraði fólk en var líka oft  grýttur og hrakinn. En hann gafst ekki upp enda harður hermaður sem var reiðubúinn að fórna lífinu fyrir málstaðinn sem hann trúði á.Sem var endurreisn þýsku þjóðanna.

Smátt og smátt varð flokkurinn hans svo öflugur af hann náði völdunum 1933 og var skipaður kanslari af Hindenburg forseta.

En þá var hann ekkert að hika við að deila þeim ekki með einhverjum aumingjum sem hann fyrirleit. Kveikti í þinghúsinu og beitti undaþáguákvæði í stjórnarskránni til að taka öll völd. Löglega. Eftir það varð ekki aftur snúið.

Andstaðan voru líka mikil frá kommúnistunum sem voru mjög sterkir og stefndu opinskátt að byltingu, og svo frá sósíaldemókrötum  alveg eins og Tryggvi Ófeigsson fékkst við í Hafnarfirði og víðar.

Eitt leiddi af öðru. Þegar hann hóf stríðið í Póllandi, með aðstoð bandamannsins Jósefs Stalíns, sem réðist á Pólverja að austan. En hann rak sig nú á horn vegna líklega skorts  sins á menntun og mannasiðum og auk þess vanmats á hinni hálfamerísku fyllibyttu eins og hann kallaði Churchill. Hann hélt að hann gæti stoppað stríðið eftir Pólland en  það gekk ekki í gegn hjá Churchill.

Lærdómsárin hans höfðu líka orðið eftir í forinni í Flanders frá 1914. Hann reyndi eftir föngum að læra allskyns tölur um heiminn sem stjórnmálamenn þurfa að þylja en honum tókst það oft ekki og treysti á aðstoðarmenn sína sem voru misjafnir að viti allt frá séníinu Albert Speer niður í vitleysingana Bormann og Himmler.Hann varð aldrei nema óbreyttur hermaður með járnkross fyrir hugrekki.Það gekk ekki vel í þýsku atvinnuhershöfðingjana sem hann þurfti að fást við í stríðinu. Þeir litu skiljanlega niður á hann ómenntaðan dónann.

En allir vita hvernig þetta fór. Hann hafði aldrei séð Bandaríkin og gerði sér enga grein fyrir iðnaðarmætti  þeirra. Fyrir bragðið fær hann falleinkunn sem raunhæfur pólitíkus. 

En hann vissi fullvel sjálfur hvað hatursdóm sagan myndi útdeila honum vegna ábyrgðarinnar á helför Gyðinga sem hann tók fram að væri hans og hans eins. 

Lærdómurinn er að allt vald spillir og algjört vald gjörspillir.Það hefur sagan sannað allt frá Alexander mikla til þessa dags. Frægðarmenn koma og fara og hverfa úr augsýn.En maðurinn hennar Jónínu hans Jóns verður eftir og skrifar söguna.

Oftast gjalda menn fyrir of mikil völd með lífi sínu. Adolf Hitler vissi þetta vel og heyrðist tauta eitt sinn þegar hann hélt á Walternum sínum sem hann skildi aldrei við sig. "Eitt augnablik og maður er frelsaður frá öllu" Það er líklega haldbesta lýsingin á trúarsannfæringu Foringjans.

Sagan af Adolf Hitler er líka það eina sem eftir er af honum og líklega verða seint reistar af honum styttur eins og ýmsum öðrum illmennum sögunnar.


Þetta er Viðreisn

sem Sjálfstæðismenn eiga að taka sem samstarfsaðila!

Svo skrifar Styrmir Gunnarsson:

"Það er ótrúlegt hvað Evrópusambandið og liðsmenn þess ganga langt í að brjóta niður lýðræðislega stjórnarhætti í aðildarríkjunum.

Nú hefur forseti Ítalíu komið í veg fyrir myndun ríkisstjórnar Fimm stjörnu hreyfingarinnar og Norðurbandalagsins með því að hafna fjármálaráðherraefni meirihluta ítalska þingsins! Og sett embættismann í staðinn sem forsætisráðherra til bráðabirgða.

Fyrir allmörgum árum beitti ESB afli til að koma lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra (Berlusconi) frá völdum á Ítalíu.

Um svipað leiti braut ESB á bak aftur ákvörðun lýðræðislega kjörinnar ríkisstjórnar í Grikklandi um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um skuldasamninga Grikkja.

ESB er að verða lýðræðinu hættulegt."

Þetta er flokkur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Benedikts Jóhannessonar. Er þessi flokkur ekki eitrað peð fyrir Sjálfstæðisflokkinn? Nýlega er fram komið hjá prófessor í stjórnmálafræðum að uppistaðan í Viðreisn er ekki að koma frá Sjálfstæðisflokknum og hefur aldrei komið þaðan. Þetta er brot úr Samfylkingunni og Alþjóðakrataismanum.

Viðreisn er alger höfuðandstæðingur Sjálfstæðisflokksins sem hann má aldrei þjóna undir.

Viðreisn er þannig alger viðbjóður fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sjálfstæðisstefnuna.

 


Æ Mogginn minn

af hverju ertu að ergja mig á mánudegi eftir kosningar með þ´vi að birta grein og mynd af þessum Pírata og það á miðopnu?

Er þetta innlegg í stjórnmálaumræðuna sem við þurfum á að halda núna?

Æ,æ!


Eyþór fær 10!

ef ekki Borgarfulltrúa sem mér finnst líklegast, þá fær hann 10 í einkunn hjá mér fyrir málflutning sinn í kosningabaráttunni. Hófstillt orðaval, röksemdalegu staðreyndaupptalning, ekkert of sagt en frekar vansagt. Auðveld uppröðun staðreynda.

Ef menn ekki vilja fallast á það sem hann Eyþór heldur fram á hnitmiðaðan hátt þá kjósa menn Dag B. Eggertsson og hans stefnu.

Eyþór Arnalds fær 10!


Dagur steinlá

í útsendingunni með oddvitunum af efri 7 flokkunum.

Hann komst ekki upp með venjulega blaðrið sitt um framtíðarmúsík í Borgarlínu og Húnsnæðismálum þar sem andstæðingarnir voru með staðreyndirnar á hreinu. Glærusýning með grafíklausnum  kom heldur ekki til bjargar að þessu  sinni

Sem er nýtt í málinu því Dagur B.  hefur komist upp með það allt og lengi að tala eins og honum hentar án tillits til mótmæla.

Nú skiptir það eitt máli að Dagur verði ekki í aðstöðu til  að flækja málin eftir annað kvöld.

Dagur Bergþóruson steinlá í rökræðunum sem von var þar sem málstaðurinn og rökstaða Samfylkingarinnar í Borgarmálefnum er núll. Rökþrotin blasa við öllum sem  sem vilja sjá málefnastöðu Dags B. Eggertssonar og Samfylkingarinnar í skýru ljósi við þessar kosningar.

 


Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3417881

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband