19.4.2010 | 13:18
Af hverju vextir?
Nú hefur ríkisstjórnin lögst hundflöt fyrir framan guðinn sinn AGS sem lofaði þeim nú smávegis lánagusu. Hundrað milljarða sem engu breytir til eða frá í Icesave pakkanum sem hún vill borga. Nú lofa ræflarnir að borga vexti, sanngjarna vexti ofaná höfuðstólinn. Hvað er sanngjarnt ? Hvað er sannleikur spurði Pétur postuli? "How smooth is smooth? " spurði Guðmundur Einarsson verkfræðingur Kanann á Vellinum og lagði heimsveldið.
Nú hefur verð á skuldabréfum gamla Landsbankans hækkað úr núlli í 0.10. Einhverjir spekúlantar eru búnir að finna út að það verði afgangur þegar búið er að borga Icesave af búinu. Sem eru góð tíðindi. En Bretar borga ekki vexti né bætur á kyrrsett fé? Af hverju vill Steingrímur endilega borga vexti ?
Er ekki verið að borga vátryggingu ? Það er verið að bæta hlut sem tapaðist. Það eiga engir vextir við í slíkum viðskiptum
Bretar er nú búnir að fá plenty ash í stað cash sem með naumindum tókst að forða þjóðinni frá. Er cé-ið bara ekki 25 % afsláttur? Höfuðstóllinn greiddur á táknrænan hátt. Skuldum við þeim nokkuð meira ? Vill Steingrímur og VG kannski borga kolefnisskatt á þap líka og draga það frá losunarheimildunum sem hann ætlar að afsala þjóðinni?
Án gamans þá borgaði Landsbankinn tryggingar eftir breskum lögum. Þeir eiga enga kröfu á íslensku þjóðina eins og Loftur Altice Þorsteinsson verkfræðingur er margbúinn að færa rök fyrir.
Steingrímur getur legið flatur fyrir framan guðinn sinn AGS og Jóhanna fyrir framan Brüsselvaldið. Þjóðin telur sig ekki skulda neinum neitt útaf þessu Icesave þó að þessi hjú vilji óð og uppvæg leggja á hana drápsbagga til frambúðar. En fyrst gætu þau svarað grundvallarspurningunni.
Eiga einhverjir einhliða vextir við í Icesave deilunni ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ísl. ríkið ber að sjálfsögðu ábyrgð á að umrædd alþjóðleg skuldbinding sé uppfyllt. Að sjálfsögðu.
Um er að ræða bein réttaráhrif varðandi 20.evrurnar er ísl. bar ábyrgð á.
Varðandi vexti sérstaklega þá væri sanngjarnt að ísl. greiddi 20-30% vexti á skuldinni vegna skaðans er sjallar ollu B&H.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.4.2010 kl. 16:45
Það er vel hægt að fá vaxtalaust lán til 15 ára til að greiða upp Icesave lánið.
Við tökum bara til þess lífeyrissjóði okkar. Ég meina, þeir sem telja eðlilegt að B&H veiti okkur vaxtalaus lán til 15 ára, hljóta að vera reiðubúnir að bjóða sömu kjör sjálfir?
Skeggi Skaftason, 19.4.2010 kl. 21:24
Halldór minn. Ég held við verðum bara að fara á sjóinn?
Ég get lagt og dregið net og jafnvel eldað ef í hart fer og heilsan leyfir? Áttu ekki lítinn bát sem getur bjargað lífum á Íslandi með því að fiska? Snýst þetta ekki um það núna?
Eða þekkir þú ekki einhvern sem á einn slíkan bát?
Ég lagði og dró net með kunningja mínum í Noregi! Skötuselurinn beit mig illþyrmilega þegar ég var að losa hann úr netinu en sárin eru gróin! Þau voru nefnilega bara líkamleg og á hendinni? Andleg sár eru lengur að gróa?
Ég auglýsi eftir aðgerðum af viti?
En hver hefur peningana, kjarkinn, vitið, reynsluna og ó-notaða kraftana? Allt í sama pokanum?
Ég er með ef einhver S eða B-maður skaffar bát og veiðarfæri, því ekki nokkur venjulegur ómenntaður verkamanna-þræll sem ekki hefur flokks-tryggingarskírteini hefur völ á slíkum auðæfum, og hefur ekki haft vegna vanefna af ýmsum prinsipp-réttlætis ástæðum?
Ekki allir geta til dæmis lesið sig til lífvænlegra launa á Íslandi af ýmsum ástæðum, og vilja ekki fara í svindl og þjófa-bransann til að hafa eðlilegt líf á þessu landi! Og það fólk er þræla-liðið sem á sér enga von í dag!!!
Þetta er ekkert nýtt á Íslandi, þetta kúgunar-vald yfir þeim sem ekki eru skólagengnir!!!
Hvers vegna ertu þarna ennþá segja vinir mínir í Noregi?
Ef ég hef enga ástæðu í framtíðinni til að vera hér með mínar ekki-gráður og heiðarleika, er það auðvitað vita vonlaust að bíða með að fara héðan? Ég er ekki ein um að hugsa þannig! M.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.4.2010 kl. 23:11
Sæll
Sagan kennir okkur að án lánsfés og sjóða sem hægt er að tæma geta vinstistjórnir ekki lifað nema í mjög stuttan tíma. Hef talað við marga slíka og einhverra hluta vegna skilur þetta ágætis fólk ekki fjármagn og heldur að uppspretta fjármagns sé ríkissjóður eins og karlinn í tunglinu komi og leggi þar inn reglulega. Vænt þætti mér um að einhver útskýrði fyrir þjóðinni hverrnig Svavari fannst 5.5% vextir litlir á Iceseve láninu þegar hann var jú í ríkisstjórn sem tók Barnalánið sem er loksins á gjalddaga á næsta ári.
Kveðja
Ingi
Guðmundur Ingi Kristinsson, 20.4.2010 kl. 01:04
Kommarnir telja sig hafa - leyfi til að skuldsetja okkur uppí rjáfur -
...og gera hvaða andskotans dellu sem er...
.... - því "þeir eru fulltrúar fólksins"....
allt er kommum í stjórn leyfilegt - í augum kommana sem kjósa þá - "því þeir eru fulltrúar fólksins" - og eiga bara að halda stólunum...
hvað sem það kostar....
Kristinn Pétursson, 20.4.2010 kl. 02:34
Ef hollendingar vilja ál og UK fisk þá verðum við að fá það sem þar til að útvega það.
AGS lánið eykur ekki lánstraust Íslands ef reiðufé í náttúrauðlindum gerir það ekki. Verðmæta Íslensk mannauðs tekur meir en eina kynslóð að uppfæra. Ísland er komið í spjöld sögunar fyrir að gera út skipulagða alþjóða glæpafjármála starfsemi. Þökk þeim sem óttast dómstóla. Hinsvegar væri betra að viðurkenna að heimskan hér varð fjármálgeiranum að falli. Sá sem lánar án trygginga hlýtur að vera fífl eða krimmi sem lánar annarra fé í vasa sinna umboðs aðila.
Hinsvegar gæti það verið framlag Seðlabanka Útbúsins á Íslandi í dollara varasjóð Seðlabanka Evrópu sem mótar stefnu Seðlabankakerfis EU, þ.e þeirra Meðlima Ríkja sem láta skammta sér evrur miðað við innritekna framlag til heildarinnar síðustu 5 ár.
Í mínum augum svipað og gjaldeyris höft. EU er í eðli sínu menningarlega Miðstýrður stofnanna sósíalsimi. Sem fyrir eða síðar drepur allan fídus kraft alls almennings. Valdið sem kemur að ofan skapar þrælslund. Einkenni hér eru augljós. EU er akkur í því að hér sé allt sem einfaldast og lofar því hagstjórnafræðinga Íslands. Hagnaður fyrirtækja og stærð í evrum minnkar með stærðinni. Þótt lánskostnaður vaxi.
þroskuðu ríki gera út á sinni eigin almenna tekjuhá neytendamarkað. Stunda útflutning á gífurlegum kostnaði til að tryggja sér meiri orku og hráefni til að spara sín eigin.
Þetta er hinn sanna frjálshyggja. Andstæðan er hinn hreini kommúnismi
Lífeyrissjóðir gera út á sinn eigin markað en ekki annarra ríkja í langan tíma nema búa yfir miklum hernaðarmætti. Afætur eru hvergi liðnar utan síns heima.
Júlíus Björnsson, 20.4.2010 kl. 05:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.