Leita í fréttum mbl.is

Strokumerin bönduð

og folöldin tjóðruð á tímamótafundi VG. Allir starfsmenn Óðinsvéa sendir á vettvang vegna stórtíðindanna. Kettirnir mala nú allir í flokkskörfunni og sleikja sig og hvorn annan.

Ekki varð mikið úr yfirlýsinga-og hjásetuliðinu þegar formaðurinn hvessti sjónir sínar á þau. Minnir á þegar Bjarni Ben sagði einu sinni við okkur fýlupokana í gamla daga: "Munið það piltar, þótt við séum vondir eru aðrir verri." Svo skal víst böl bæta að bíði ei annað verra. Og allt er betra en íhaldið segja menn á vinstri bæjunum.

Steingrímur getur því haldið áfram að safna eftirlaunapunktum ráðherra og semja um Icesave. Strokumerin hefur verið bönduð, en  fékk hún enga hafra? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Þeim tókst það með hræðsluslagaranum; Annars kemur stóri,vondi D-listinn,með krullaða konungnum og setur okkur í ævilangt fangelsi; Var þetta nokkuð sniðugt?    Systir mín hefði haft gaman að atast í stóðinu.

Helga Kristjánsdóttir, 5.1.2011 kl. 23:58

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Jú, það eru örugglega einhverjir hafrar í spilinu. Þeir eiga eftir að koma í ljós.

Baldur Hermannsson, 6.1.2011 kl. 00:33

3 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Sæll félagi,

Í hádegisfréttum kom fram að ekki eru allir alsælir, það þarf að ræða málið. Baldur hefur rétt fyrir sér.

Þessar dýrasamlíkingar eru ögn broslegar, smala köttum .....  Hvað er að gerast hjá okkur Halldór, er ekki eitt og annað sem þar mætti ræða.

Jón Atli Kristjánsson, 6.1.2011 kl. 13:08

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll félagi Jón

Við höfum sannarlega bæði  ketti og strokuhesta í Kópavoginum. Eningin sem þar er að finna leiðir til öruggrar niðurstöðu 2-3 bæjarfulltrúa í næstu kosningum. Ég held að Guðríður þurfi ekkert að gera til þess að svo verði niðurstaðan, okkar kjörnu fulltrúar  sjá um það alveg sjálfir. Spurningin er hvort við nennum að horfa á þetta meira?

Ég er að hugsa um að fara að sækja frekar fundi í Framsókn og sjá hvort þar er ekki skárra ástand. En líklega sér Ómar um að það séu engir fundnir haldnir svo menn séu ekki að röfla í leiðtogunum svo það er kannki ekkert betra en í Kattholti hjá okkur.

Halldór Jónsson, 6.1.2011 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 3419725

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband