Leita í fréttum mbl.is

1.gíslataka ársins

er nú í aðsigi af hálfu 70 menninga í loðnuverksmiðjunum. Þeir hika ekki við að svipta veikburða þjóðina tekjunum af loðnuvertíðinni.

Þessi litli bandíttaflokkur er bara einn af mörgum sem einskis svífst í skjóli úrelts lagaumhverfis um svonefnd "samskipti aðila vinnumarkaðarins". Á útboðsmarkaði finnst þessum sömu mönnum sjálfsagt að lægstbjóðendur fái viðskiptin. Allt samráð milli bjóðenda er flokkað til glæpa og refsað fyrir. En gengjum manna í starfsgreinum er heimilt að renna saman í bófaflokka sem taka meðborgarana í gíslingu.

Getur nokkuð þjóðfélag sætt sig við núverandi ástand?  Hvernig væri að vinnustöðvanir séu aðeins heimilar á sömu dagsetningu? Væri ekki allsherjarverkfall með samstilltu átaki stórkostlegt?  Allir með hvorn annan í gíslingu?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Þú kannt að koma orðum að því Halldór !

Ég var einmitt um þessar mundir að hugsa um þessa verkfallsglöðu menn. Þeir virðast ekkert gleðjast yfir því að hreinlega hafa atvinnu, hvað þá að sýna þakklæti.

Það myndu mjög margir vilja vera í þeirra sporum, af því fólki sem enga atvinnu hefur. Fólki sem lifir í vonlausu ástandi, því sá sem hefur ekki vinnu, hann getur ekki bjargað sér. Allt hans er skorið við nögl, og vöntun og vanskil hrúgast upp.

Það virðist alltaf vera hægt að fá jábræður þegar á að sækja sér "réttláta leiðréttingu launa". 

Þjóðfélagið sjálft er á hausnum - sjá menn ekki hvaða blessun það er að hafa atvinnu, þó laun séu ekki eins há og margir myndu vilja.

Þú ert svo oft með fingurinn á púlsinum Halldór.

Sigurður Alfreð Herlufsen, 8.2.2011 kl. 11:34

2 Smámynd: Starbuck

Djöfull eruð þið heimskir!!!  Vandamálið á Íslandi er ekki að fólkið sem býr til verðmætin í landinu krefjist réttlátra launa fyrir störf sín.  Þetta fólk eru ekki að taka neinn í gíslingu. Það er fjármálahyski og stórbraskarar sem eru með þjóðina í gíslingu og komast upp með það vegna þess að meirihluti stjórnmálamannana eru annað hvort stórkostlega vanhæfir eða gjörspilltir - nema hvort tveggja sé. 

Af hverju vælið þið ekki frekar yfir því að ríkisstjórnin sé ennþá að dæla tugmilljörðum í fjármálastofnanir sem forhertir glæpamenn hafa rænt og eyðilagt. 

Það væri réttast að gera byltingu strax og senda þetta andskotans lið í útlegð til Kolbeinseyjar!

Starbuck, 8.2.2011 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband