Leita í fréttum mbl.is

Búðarhálsvirkjun eða JÁ

er fyrsti valkostur sem við stöndum frammi fyrir 9.apríl. Upphæðin sem á að borga strax ef við segjum já við Icesave er 26.5 milljarður. Sama upphæð og Búðarhálsvirkjun kostar eða nærri allur rekstur Landspítalans eftir niðurskurðinn.

Og kostnaðurinn af JÁ getur orðið miklu meira en 10 Búðarhálsvirkjanir.

Segjum að 10 sinnum NEI á laugardaginn !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þakka þé fyrir Halldór, góður samanburður, 10xNei!!!

Hrólfur Þ Hraundal, 5.4.2011 kl. 11:46

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Þvílíkar upphæðir og þetta tekur ríkisstjórnin í mál! Kúgun já gróf fjárkúgun.

Helga Kristjánsdóttir, 5.4.2011 kl. 12:25

3 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Sammála!

Sumarliði Einar Daðason, 5.4.2011 kl. 16:09

4 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Og við þurfum að borga vexti til 2016, árlega. Hvað er sú upphæð aftur há, Halldór? Þú ert með þetta allt á hreinu....

En nú segja sumir að forsendurnar fyrir Búðarhálsvirkjun séu þetta já, því ella fáum við ekki lán til að byggja.... Nú, ef ríkisstjórnin og stór hluti Alþingis hefur efni á að þjóðin segi já svo hægt verði að borga 32 milljarða og fá 25,6 milljarða lán til að byggja Búðarhálsvirkjun, er þá ekki betra að láta þessa peninga beint í að byggja virkjunina, þ.e. að lána LV fyrir því að byggja virkjunina, eða þarf alltaf að gera allt á lánum? Þarna væri líka hægt að lána íslenskar krónur í stað þess að í tilviki vaxtagreiðslna af Icesave þarf að borga með gjaldeyri....

Ómar Bjarki Smárason, 5.4.2011 kl. 20:21

5 Smámynd: Björn Emilsson

Dýr mun Hafliði allur.

* Samþykkja Icesafe takk.. 600-1000 milljarðar

* Til að fjármagna Búðarhálsvirkjun 26 milljarðar

* Til að ´gefa hálf falligt fyrirtæki´ rafmagn á spotpris í Alver í Helguvík.

* Reikni menn svo

Væri ekki nær að setja þarna upp pútnahús!!

Björn Emilsson, 5.4.2011 kl. 20:38

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Væri kannski ágætt að skoða það að hvorki ríkði né LV fá þetta fé lánað því lán eru skilyrt. Norræni fjárfestingar bankinn skilyrðir lán sitt við fullafjármögnun í verkið. Evrópski fjárfestingarsjóðurinn skilyrðir sitt lán við lausn Icesave. Aðrir eru ekki tilbúnir til að lán okkur nema með stuttum lánstíma og háum vöxtum.

Bendi síðan á að ef að ekki fást hingað lán nú þá verður hér lítll hagvöxtur og því viðvarandi atvinnuleysi. Sem og að Halldór ætti sem reyndur maður í atvinnulífinu að gera sér grein fyrir því að ef það er rétt að dómsmál um Icesave myndi sennileg vara í um 4 til 5 ár. Og ef við töpum því þá lendum við í að þá gjaldafalla væntanlega vextir á okkur frá hruni og ef að þetta yrði til þess að ekki væri hægt að borga út úr þrotabúi Landsbankans þá yrðum við husanlega þá að borga vexti af öllu Icesave og það sennilega á hærri vöxtum en nú hefur veirð samið um. Svo geta menn reiknað að hugsanlega 2015 til 2017 ef við töpum málinu endanlega þá þá yrðum við hugsanlega rukkuð um vexti af um 1200 milljörðum á kannski 5% vöxtum í frá 2008 sem þýðir vexti í 6 til 7 ár sem gerir hundruð eða þúsundir milljarða sem við þyrftum að borga.

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.4.2011 kl. 20:58

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta öllsömul.

Ahugið það, að segjum við nei, þá er allt málið komið í íslenskar krónur.Því það verður aðeins hægt að dæma okkur fyrir íslenskum dómstóli. Öll gengisáhættan er burtu. Nú er allur samningurinn í pundum. Ergo er nei miklu áhættuminni leið. Stærsta áhættan er ef neyðarlögin væru dæms af. Þá er allt í fári hvort sem er. Þessvegna eru þeir svona harðir að heimta ríkisábyrgð á Icesave, það er til að þeir fái betri tryggingar en aðrir í þrotabúið Ísland.

Ómmumst ekki Magnús Helgi, við munum sigra ef við stöndum saman um myndarlegt nei á laugardag.

Mér finnst Magnús

Halldór Jónsson, 5.4.2011 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband