Leita í fréttum mbl.is

288 bílar

á sólarhring fóru um Héðinsfjarðargöng uplýsti Kristján Möller sigri hrósandi í Sprengisandsþætti á Bylgjunni. En þar sátu þeir saman landsbyggðarþingmennirnir Kristján. Tryggvi Þór Herbertsson og framsóknarkonan Eygló Harðardóttir.

Ekki ein rödd spurði af hverju ekki væri tekið veggjald í þessum göngum. Ef tekið væri gjald þarna segjum 500 kall þá sjá menn að þarna gætu komið inn einhverjir milljónatugir upp í kostnaðinn. Það er hægt að hafa svona innheimtu algerlega sjálfvirka og þarf enga vöktun, bæði með E-Pass og myndavélum. Hvort vilja menn heldur, að láta bora ein svona göng á 10-20 ára fresti og hafa frítt í þau eða bora ein göng árlega og láta borga í þau? Bora Seyðisfjarðargöng á morgun með því að láta þau borga sig niður eins og Vaðlaheiðargöng? Og því gætum við í Tungunum ekki fengið olíumöl á veginn frá nýja Flúðaveginum upp efri Tungufljótsbrú strax gegn því að allir borgi veggjald þangað til að búið er að borga flýtikostnaðinn? E-Pass og myndavélar sjá um innheimtuna? Ekkert vesen ekkert stress.

Tryggvi Þór flutti sitt erindi um að hagstjórn gæti jafnað út sveiflurnar í gjaldmiðlunum. Áreiðanlega rétt og satt hjá Tryggva. En af því að hann er á atkvæðaveiðum líka, þá minntist hann ekkert á það, hvað áhrif verkalýðshreyfingin hefur á verðbólguna með aðgerðum sínum. "Hvernig datt ykkur í hug að semja um svona kauphækkanir" spurði Seðlabankamaðurinn og fékk aðvitað ekki vitrænt svar hjá forystumönnum.

288 fríbílar eða 288 borgandi bílar, það er spurningin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað á að láta þá borga sem keyra þarna, eins og þú segir 500 kall, sem  er ekki mikið á mann en það munar um minna þegar saman safnast.  Nema þetta sé alltaf sami bíllinn sem fer þarna um? Kanski löggan?

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 6.11.2011 kl. 12:26

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Rafn Haraldur. Nú vandræðast menn með að ekki fæst fjármagn til að grafa Seyðisfjarðargöng. Menn vilja heldur vera án þeirra heldur en að láta grafa þau til dæmis í einkaframkvæmd. Þetta útálandilið getur ekki hugsað sér að borga gangnagjald. Það vill heldur engin göng þó allir sjái hvað þeir væru fljótir að græða á þeim. 

Halldór Jónsson, 6.11.2011 kl. 17:42

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Var ekki kostnaður við þessi Héðinsfjarðargöng um 14 milljarðar? Meðalumferð á dag virðist vera um 500 bílar, sem gæti gefið rúmar 90 miljónir í tekjur á ári miðað við 500 kr á ferð. Þá tæki um 150 ár að borga fyrir göngin með veggjöldum, án tillits til fjármagnskosnaðar! Ólíklegt verður að teljast að formaður fjárlaganefndar sé tilbúinn að leggja slíkan skatt á sveitunga sína....!

Það hlýtur hins vegar að vera athugandi að vera með veglykla, svipaða þeim sem maður notar sem áskrifandi að Hvalfjarðargöngum, í öllum bílum og borga þannig fyrir að aka um ákveðnar leiðir. Svona fyrirkomulag er víða í Noregi og e.t.v. víðar, þar sem greiða þarf fyrir að fara ákveðnar leiðir á álagstímum. Vafasamt er þó að þetta myndi mælast vel fyrir og spurning hvernig innheimtan gengi.....

Ómar Bjarki Smárason, 6.11.2011 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband