Leita í fréttum mbl.is

Steypubílar á laugardegi!

á fullri ferð. Ég hélt ég væri orðinn vitlaus, því þetta hef ég eki séð síðan fyrir hrun.

En Ágúst  Friðgeirsson er að byrja á að steypa aðra blokkina í Kópavogi eftir hrun. Hin fyrri er uppsteypt og víst að mestu seld. Ef eitthvað gerist til að hrinda af okkur kreppunni þá gerist það í Kópavogi því það er gott að búa í Kópavogi eins og maðurinn sagði.

Bravó fyrir Gústa og steypubílum á laugardegi í Kópavogi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Ragnar Björnsson

Já sæll, tók líka aldeilis eftir þessu um miðjan dag á laugardegi í Salahverfinu í Kópavogi.  Tók á mig krók til að skoða þessi undur og stórmerki betur.  Vonandi merki um betri tíð frekar en, að menn vildu kannski steypa á afmælisdegi eða einhverju öðru tilefni sem væri þá ótengt eftirspurn eftir steypu eða hagsýni.

Björn Ragnar Björnsson, 13.11.2011 kl. 02:53

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ég hugsa að í nóvember sé það fyrst og fremst spá um frostlausa daga framundan sem ræður dagsetningum á steypuvinnu.

Sigurður M Grétarsson, 13.11.2011 kl. 09:01

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

það er líka verið að steipa hér í Eyjum og í dag Sunnudag,það eru miklar Framkvæmdir hér. það varð aldrei neitt hrun hér enda Sjálfstæðismenn við stjórn hér..

Vilhjálmur Stefánsson, 13.11.2011 kl. 14:40

4 Smámynd: Björn Ragnar Björnsson

Það er auðvitað rétt hjá Sigurði með frostútlitið og steypuna, en það hefur ekki verið skortur á frostleysi að undanförnu og verður heldur ekk n.k. mánudag (14. nóv).  Því er ljóst að menn eru að drífa verkið áfram af einhverju afli, og fagna ég því.

Björn Ragnar Björnsson, 13.11.2011 kl. 18:32

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Vilhjálmur. Þetta með að ekki hafi orðið hrun í Eyjum hefur ekkert með það að þar séu Sjálfstæðismenn í stjórnb enda eru það akkúrat þeir sem á landsvísu eiga sök á því hversu slæmt hrunið varð hér.

Þetta hefur fyrst og fremst með það að gera að í Eyjum starfa flest fyrirtæki í útflutningsframleiðslu og hagur slikra fyrirtækja vænkaðist verulega þegar verð á þeim gjaldmiðlum sem þau selja sínar vörur í hækkaði um 100%. Staðan er mjög svipuð í flestum sjávarplássum óháð því hverjir eru þar við völd.

Sigurður M Grétarsson, 13.11.2011 kl. 20:53

6 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Björn. Þetta snýst ekki bara um einn frostlausan dag. Það þurfa helst að vera framundan nokkrir frostlausir sólahringar þegar steypt er. Þeir eru væntanlega tveimur færri á morgun heldur en í gær.

Sigurður M Grétarsson, 13.11.2011 kl. 20:54

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Þið gleðjið mitt gamla steypuhjarta ágætu félagar. En steypan er oftar en ekki í hlutfalli við fylgi Sjálfstæðisflokksins, sem er beintengt efnalegri gengi þjóðarinnar, eins og við Vilhjálmur úr Eyjum vitum báðir. Svei mér ef ég treysti ekki Sigurði M. til að vita þetta líka þó hann viðurkenni það nú aldrei.

Halldór Jónsson, 13.11.2011 kl. 21:47

8 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Er þá ekki rétt að senda nokkra bíla með steypi á Landsfundinn um næstu helgi, Halldór.....?

Ómar Bjarki Smárason, 13.11.2011 kl. 22:03

9 Smámynd: Halldór Jónsson

svona til jafnvægis við aðra steypu sem þar verður hrærð?

Halldór Jónsson, 13.11.2011 kl. 22:08

10 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Mér fannst þú vera að gefa í skyn að gengi Sjálfsæðisflokksins stæði í beinu sambandi við umferð steypubíla. Liggur þá ekki beint við að auka umferð þeirra í grennd við Landsfundinn til að fyglisaukningin skili sér sem best og fljótast.....?

Ómar Bjarki Smárason, 13.11.2011 kl. 22:45

11 Smámynd: Halldór Jónsson

skarplega athugað Ómar Bjarki

Halldór Jónsson, 13.11.2011 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband