Leita í fréttum mbl.is

Eftirlit EFTIRLIT!

er það sem verður að auka og efla. Allir sem starfa í fjármálastarfsemi eru líklega hreinir glæpamenn sem svindla og svíkja hvenær sem þeir geta. Þeir verða því sjálfir að greiða fyrir stöðugt eftirlit með sjálfum sér.   Bankastjóri ber væntanlega enga siðferðislega ábyrgð sjálfur því hann er búinn að borga fyrir eftirlit með sér og hlýtur því að vera alveg ábyrgðarlaus þó stolið sé í sjóði 9 eða svindlað í sjóði 5.  Fjármálaeftirlitið ber alla ábyrgðinu og þessvegna þurfti Gylfi,  sem var blómaskreyting í ríkisstjórn að sögn Ingva Hrafns, að hækka kaupið hjá því um 77 % væntanlega vegna vaxandi glæpanáttúru endurreista bankakerfisins. Það verður að hafa öflugt eftirlit með þessu liði sem bíður eftir hverju tækifæri til að rupla og ræna.

Af hverju er ekki stofnað eftirlit með mér eða þér sem við erum  látnir borga? Atvinnuskapandi verkefni.  Hver maður borgi eftirlit með sjálfum sér og er þá ekki atvinnuleysið horfið? Af hverju er ekki stofnað Lögfræðingaeftirlit Ríkisins til þess að hafa eftirlit með skilanefndunum? Af hverju er sérstakt fjármálaeftirlit ekki með augun á Steingrími J. vegna framferðis hans í málefnum Byr og SpKef og Sjóvá.? Eru bara til fjármálaleg fantabrögð  utan opinbera kerfisins? Þarf ekki að skoða lögmæti ráðstafana hans Steingríms alveg eins og Geirs Haarde?

 EFTITLIT, EFTIRLIT ! Er það ekki krafa dagsins af því að annars morar allt í spillingu hjá þessari glæpahneigðu þjóð  þar sem allir stela ef þeir geta?  Alveg eins og í Rússlandi þar sem Pútín er sagður vera langt kominn að stela olíu og gaslindunum fyrir sjálfan sig og sína.  Á Íslandi eru kvótinn og allskyns forréttindi  horfin til nafntogaðra stjórnmálamanna og þykir engum mikið.  Svo það veitir ekki af eftirliti á hina sem eru að rífa kjaft og koma öllum "Kodorkovskyíum" helst  í tugthús ef ekki til búsetu erlendis.

Þarf ekki að stofna sérstakt eftirlit með útrásarvíkingunum og láta þá borga það sjálfa? ÞAð verður að fara að góma þá sagði Eva Jóly í framhjáhlaupi við hann Egil þegar hann heimsótti hana á okkar kostnað til að ræða frönsk stjórnmál ?  Fer þetta ekki allt að fyrnast hvort sem er?

EFTIRLIT,  OPINBERT EFTIRLIT ! Er það ekki  það sem þessi íslenska glæpamannaþjóð þarfnast mest?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Stjórnmálamenn verða nú að fá "eðlilega umbun" fyrir sín störf og úr því að ekki má gera þetta með beinum launum, sem skattlagðar eru eins og hjá örðu fólki, er þá nokkuð eðlilegra en að þeir taki til sín það sem þeim finnst þeim bera meðan þeir eru í aðstöðu til að gera þetta á "löglegan hátt...? Það er til lítils að sitja í löggjafarsamkomu og semja endalaust lög sem gagnast einhverjum öðrum en manni sjálfum.... eða liggur þetta ekki í augum uppi, Halldór....? Við eigum ekki að vera öfundast út í kvótakónga  eða olíufursta annarra landa þó þeir hafi dug og þor til a skara aðeins að köku sinni og sinna....!!!

Ómar Bjarki Smárason, 6.12.2011 kl. 23:50

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú ert skarpskyggn að vanda Ómar Bjarki. Ætli Ólafur Tors hafi ekki verið sendur í stjórnmálin eftir fjölskyldufund því það þyrfti að gæta hagsmuna Kveldúlfs á öllum vígsstöðvum. Þetta var það stórt fyrirtæki þá að SÍS komst næst því að stærð. Og allir muna að það fyrirtæki þurfti stjórnmáladeild alveg eins og véladeild, búvörudeild osfrv. Og ef þú hefur komið á fund í sjávarútvegsnefnd landsfundar Sjálfstæðisflokksins þá skilur maður hvernig hagsmunagæsla  LÍÚ vinnur. Enda mikið í húfi að landkrabbar eins og Ólína komist ekki í að bulla um hluti sem hún hefur ekki hundsvit á.

Halldór Jónsson, 7.12.2011 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband