Leita í fréttum mbl.is

Skíthrædd !

eru þau greinilega orðin skötuhjúin Steingrímur J. og Jóhanna að Landsdómur verði notaður á þau sjálf þegar þau fara frá. Ekki er að efa að hægt er að semja langa syndalista á Steingrím að minnsta kosti sem hann getur dundað sér við afneita næstu árin. Honum er ekki vandara um en Geir Haarde. nema sakir á Steingrím eru knallharðar staðreyndir í krónum og aurum en ekki huglægt mat eins og í tilfelli Geirs.

Nú ganga allskyns ráðstefnur, fundir og ályktanir um það að rétt sé að leggja Landsdóm niður úr því að búið er að brúka hann á íhaldið. Þessi furðulegi saksóknari Alþingis gengur um og skammar dómendurna fyrir að hafa ekki réttað betur og harðar yfir Geir.

Margt finnst mér benda til þess að þetta sé skipulagður áróður af hálfu skötuhjúanna Jóhönnu og Steingríms til að snúa upp á réttarkerfi landsins sér í hag þegar þægilegir þingmenn verða ekki lengur til að passa þau.

Þau eru greinilega skithrædd um að búmerangið geti komið í andlit þeirra sem köstuðu því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Þau eru hrædd, skít hrædd, enda ástæða til.

En þó þeim takist að leggja niður Landsdóm, þá mun sekt þeirra ekki hverfa.

Ef Landsdómur verður lagður niður, mun einhver önnur stofnun taka við hlutverki hans, væntanlega Hæstiréttur. Þau munu því verða dreginn fyrir þann dóm í staðinn.

Það er nefnilega svo að það þarf ekki pólitískt mat á sekt þeirra tveggja, eins og þurfti til að búa til ákæru á Geir. Í þeirra tilviki liggja staðreyndir á borðinu, meira að segja hæstaréttadómar. Nýjasta dæmið er sú þingsályktunartillaga sem nú er deilt um á þingi, breytta skipan ráðuneyta. Fluttningsmaður þeirrar tillögu, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur þegar viðurkennt að hún stangist á við stjórnarskrá, samt er haldið áfram með málið!!

Því verður auðvelt að draga þau skötuhjú fyrir dómara, hver sem dómstóllinn verður.

Gunnar Heiðarsson, 3.5.2012 kl. 08:46

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég hugsa að tæknin verði næg til staðar og ákæruefnin. En hvort nennan er til staðar dreg ég í efa.

Halldór Jónsson, 3.5.2012 kl. 10:34

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já það er spurning með þrekið og siðferðisvitundina.

En sá sem nennir ekki að kenna hundinum sínum siði, á bara siðlausan hund.

 

Hrólfur Þ Hraundal, 3.5.2012 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband