1.9.2012 | 15:46
Allt í plati?
hjá skipulagsnefnd Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi? Þar var áréttað að aðeins þeir sem væru í Sjálfstæðisflokknum og hefðu greitt þangað árgjald myndu kjósa í prófkjörum flokksins. Kjördæmisráð eiga að að samþykkja með 2/3 atkvæða að bregða frá þessu í stað helmings áður.Hugsunin var skýr.
Þetta var gert ekki hvað síst til að fá fleira fólk fram til framboðs í prófkjörum. Auglýsingamennskan og áróðurinn var farinn svoleiðis útí öfgar að aðeins ríkt fólk gat tekið þátt í þessu. Hæfileikafólk sem ekki var tilbúið að veðsetja fjölskylduna lagði hreinlega ekki í þetta. Menn vonuðu sannarlega að þetta fólk myndi frekar koma fram ef markhópurinn væri minni eins og félagaskrár en ekki allur almenningur eins og verið hefur. Það þyrfti ekki að auglýsa heilsíður í blöðum til að fá annarra flokka fólk til að mæta í prófkjörin og kjósa.
Nei ekki aldeilis. Nú byrja allskyns spámenn innan flokksins að tala um það að flokkurinn sé að kaupa sér atkvæði ef hann heldur þessu fram og höfðar ekki til breiddarinnar. Allir sem kjósi í prófkjörum kjósi hugsanlega líka flokkinn í kosningum og þannig áfram gengur dælan. Unga fólkið borgi ekki félagsgjöld og heldur ekki aldraðir. Ætlum við að útiloka þetta fólk spyrja þeir? Hver talaði um það spyr ég? Auðvitað er þetta algerlega léttvægt. Það er hægt að ákveða árgjald fyrir ungt fólk 10 krónur og gamlingja líka.
Nei nei, þá stendur frambjóðandinn með posann við kjörstaðinn og borgar fyrir alla sem vilja koma og kjósa hann segja þeir á móti. Af hverju má ekki fara fram á það að flokksmaður þurfi að hafa verið flokksmaður í tiltekinn tíma fyrir kjördag og greitt þetta gjald? Auglýsing komi fram núna um það að sá flokksmaður sem vill kjósa í prófkjöri í nóvember verði að staðfesta það fyrir 1.október og borga ef hann vill kjósa. Aðrir fái bara ekki að kjósa í prófkjöri.Þannig myndu loksins innheimtast félagsgjöld sem sárlega vantar því alltof fáir borga. Þannig er það því miður.
Þannig var skipulagið hugsað til að reyna að gera prófkjörin aðgengileg venjulegu fólki. Nei þetta skal rústað af fólki sem situr í trúnaðarstöðum og gott ef ekki miðstjórn flokksins líka. Það skal þannig allt vera óbreytt, það verður að fá komma og krata til að kjósa ásamt með hinum breiða massa sem kýs flokkinn. Auglýsa fyrir milljónir og gefa ókeypis pylsur. Sá kemst áfram sem auglýsir mest. Er ekki ljóst hverjir eru kaupendur að frambjóðendum við þessi tækifæri?
Skiptir einhverju höfuð máli hverjir eru á framboðslistum? hefur það skipt sköpum? Er það ekki frekar hvernig liðsheildin starfar? Er þetta ekki samvinna frekar en eitthvað sólóspil? Stefnan liggur fyrir, hún var samþykkt á Landsfundi. Skiptir þá öllu hverjir gefa öskrið eins og Churchill orðaði það.
Af hverju skiptir persónan öllu máli spyr ég? Eru ekki kosnir listar flokka á kjördegi? Hver er ánægður með þessa lista? Strika menn ekki út hægri vinstri? Er ekki helsti gallinn sá að gáttin er of þröng til að breyta listanum með útstrikunum? Er ekki hægt að laga það?
Mér finnst það hart ef Landsfundarsamþykktir eiga bara að vera allt í plati ef það passar ekki einstökum mönnum, oft nefndir flokkseigendur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:01 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ég hef nú aldrei skilið það að VG gæti haft áhrif á það hver er í framboði hjá sjálfstisflokknum?
Til hvers ættu menn að greiða félagsgjöld?
Kveðja frá Las Vegas
Jóhann Kristinsson, 1.9.2012 kl. 19:18
Heill og Sæll Halldór. Góður pistill hjá þér. Það virðist svo sem þekking á félagsmálum sé á undanhaldi. Ef samþykktir segja til um að kjörgengir séu þeir sem hafi greitt sitt félagsgjald, á það að standa. Skilaboðin eru alveg skýr.
Með nýjum miðlum á að vera auðveldara að gefa nýju fólki möguleika á að bjóða sig fram, án of mikils kosnaðar. Þegar jafnvel forráðamenn, og innsti kjarni annarra flokka er farinn að kjósa í prófkjörum, er ástæða til að spyrna við fótum.
Sigurður Þorsteinsson, 2.9.2012 kl. 09:49
Auðvita hafa bara Íslenskir ríkisborgarar atkvæðis rétt við alþingiskosningar á Íslandi. Auðvita hafa bara skráðir félagar atkvæðisrétt í heilbrigðum félögum, allt annað er vanvirðing við hina skráðu félaga.
Forsendur skráningar geta svo verið með ýmsum hætti, en það er tortryggilegt þegar þeim forsendum er breitt rétt fyrir kjördag. Án balllestar þá vantar stöðugleika og þá getur illa farið. Heilbrigður flokkur er samstæða, ekki safn í hrúgu.
Hrólfur Þ Hraundal, 2.9.2012 kl. 09:53
Sæll félagi Halldór,
Orð í tíma töluð. " Nýja fólkið " sem prófkjörin eiga að laða að flokknum, sérst ekki í starfinu eða á félagsfundum. Það að ganga í flokkinn kostar heldur ekki neitt og því ekki að vera með. Sérfræðingar í " smölunum " hafa notað sér þetta þægilega kerfi með miklum ágætum.
Allt sem þú segir er hárrétt, enda hefur þú séð allar útgáfur af þessu réttlæti, og vita fáir betur hvað hér er um að tefla.
Jón Atli Kristjánsson, 3.9.2012 kl. 14:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.