27.2.2013 | 19:46
Eiga aldraðir vini?
nokkursstaðar er það sem ég hef verið aðvelta fyrir mér undanfarið? Ef þú ert gamall ertu ekki með, það má sparka í þig og troða eins og hverjum finnst hæfilegt. Sérstaklega þegar fólk er komið á þing.
Tilefnið var að ég hef starfað að verkfræðistörfum undanfarnin ár undir fyrirtækisnafni hlutafélags sem við hjónin eigum. Börnin okkar eru löngu tekin við stjórninni svo við erum ekki lengur ráðandi í félaginu, ekki einu sinni í stjórn. Fyrrum var ég í forsvari og hef teiknað margt á síðustu tíu árum. Einnig höfum við verið í samstarfi við erlendar og innlendar verkfræðistofur við ýms verkefni. Allt hefur þetta gengið áfallalaust og ekkert hús hrunið, engin málaferli risið og mér vitanlega engar kvartanir borist. Það getur auðvitað vel verið að það séu til betri teiknarar en ég, t.d.samstarfsaðilarnir eru margir mjög flinkir. Hinsvegar getum við ýmislegt og tölvuþekking innan fyrirtæksisins er samt held ég nokkuð yfir meðallagi og við kunnum ýmislegt sem ekki allir geta endilega miklu betur.
En ég og fyrirtækið urðum fyrir nýrri reynslu um daginn. Tæknideild Kópavogs var með pínulítið verkefni á sviði hönnunar burðarþols og lagna eftir margra ára hlé. Þeir voru búnir að láta einn vildarvin sinn teikna samkeppnislaust nokkurra íbúða hús. Það var alveg án útboðs.
Ég sá teikninguna og vissi að við höfðum leyst svona svipaða byggingu fyrir Kópavog á árum áður. Eiginlega kunnum við þetta utanað og hefðum klárað þetta fljótt og vel . Ég hélt þeir myndu vilja vita hvað mitt fyrirtæki vildi gera þetta þessa þætti fyrir lítið. En þetta var allt brotið niður í burðarþol, lagnir og raflagnir. Þetta gerðum við allt í fyrra verki og skrifuðum útboðslýsingar og magnskrár. Það verk er löngu búið og komið í notkun og ég hef aldrei heyrt að þetta hafi verið eitthvað gallað í hönnun.Allavega er húsið í notkun í dag. Eiginlega alveg sambærilegt verk.
Ég hugsaðii gott til glóðar þar sem byggingamarkaðurinn hefur verið nokkuð steindauður lengi eins og margir vita. Nei, takk Scheving!. Nú kom melding frá tæknideild að tilboða frá mínu fyrirtæki væri ekki óskað þar sem ég sjálfur væri orðinn of gamall. Ekki einu sinni í stjórn fyrirtækisins. Sem er ekki í vanskilum með nein gjöld til bæjarins og hefur aldrei verið. Heldur ekki ég sjálfur. Ég er orðinn of gamall! Jafnréttisstefna Kópavogskaupstaðar í reynd. Hvað ef ég hefði nú verið kona á óræðum aldri?
Ég er samt löggiltur hönnuður burðarþols, lagna og raflagna auk þess að hafa arkitektsréttindi svo og að vera löggiltur byggingastjóri. Hef sjaldan verið hressari. Á ég að skila þessu inn? Er þetta bara allt í plati að dómi þessara hámenntuðu yfirmanna á Tæknideild Kópavogs?
Nei, ég er 75 ára gamall. Ég á að vera úr leik. Fyrir það geldur fyrtækið mitt. Stór greiðandi fasteignagjalda í bænum. Það fær ekki að bjóða í samkvæmt úrskurði yfirmanna á tæknideildinni í Kópavogi. Á ég að styðja einhvern stjórnmálaflokk í næstu bæjarstjórnarkosningum? Er ég ekki orðinn of gamall til þess að skipta mér af ? Kjósa eða eitthvað svoleiðis? Má ég kannski ekki gefa öndunum á tjörninni án leyfis tæknideildar Kópavogs?
Svo eru allir flokkar alltaf að tala um hvað þeim þyki vænt um gamla fólkið. Það eigi að bjarga sér svo lengi sem það getur og blablabla.
Staðreyndin eftir allt hjalið er að Tæknideild Kópavogs hikar ekki við að sparka í bæjarbúa ,þegn og skattgreiðanda og brýtur auðvitað stjórnarskrána og jafnréttislaög eftir einhverjum geðþóttaákvörðunum skrifstofumanna sinna. Vita þessir utanbæjarmenn ekki hver borgar þeim kaupið?
Kannski hef ég þá fyrir rangri sök og þeir séu bara að halda að þeir séu að losna við mig af einhverjum persónulegum ástæðum sem ég þekki ekki. En halda svona rök gagnvart fyrirtækinu sem er skattgreiðandi í bænum til áratuga og hefur skilað verkum án áfalla fyrir milljónatugi fyrir Kópavog á mörgum undanförnum árum. Hefur löggilt og menntað starfsfólk innan sinna raða? Er kannski pólitík í spilinu en fyrra meirihluta þótti hugsanlega lítið vænt um mig sem íhaldsbloggara. Ekki veit ég. Allavega hef ég ekki geð í mér til að kvarta við mína bæjarfulltrúa.
En er þetta ekki dæmið um hvað að eldri borgurum snýr? Það er ekkert að marka snakkið um kærleikann til eldri borgara. Ekki fór mikið fyrir umhyggjunni hjá norrænu velferðarstjórninni sem skerti ellilaunin duglega árið 2009 og sá Steingrímur sýnir ekki einu sinni iðrunarmerki frekar en nafni hans á tæknideild Kópavogs.
Verðum við eldri borgarar ekki að hætta að hlusta á skrúðmælgi flokkanna í okkar garð. Tala við þá það eina mál sem þeir skilja og óttast? Vald atkvæðisins.
Fyrirbrigðið eldri Sjálfstæðismenn er jafn tilgangslaust og gamlir kommar og frammarar. Það gerist akkúrat ekkert. Þeir svíkja allir jafnt.
Af hverju rennum við gamlingjar ekki upp framboðslistum til dæmis hér í þéttbýlinu og reynum að fá menn á þing. Við verðum ópólitískir með öllu.En setjum fram einfaldar skákir á þá sem ætla að stjórna. Þið gerið það sem við segjum eða við greiðum ekki atkvæði með ykkur. Einfalt mál.
Ég held að aldraðir eigi enga vini nema sína nánustu. Mér finnst Helgi í Góu vera á þessir skoðun.
Eigum við ekki að gera eitthvað Helgi og þið? Það er alveg klárt að enga pólitíska vini eiga aldraðir þegar til stykkisins kemur eftir kosningar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sæll Halldór
Ég sé að burðarvirkismúrblanda gangstéttar- og stjórnsýslusambands fjármálageirans et.al hefur bætt heldur hressilega við sig nýjum útibúum og teiknað handa þér nýjan raunveruleika. Þetta er CAD/Communisminn úr stjórn-sýslu-fræðunum. Svona fer þegar menn henda frelsinu fyrir borð og taka upp Norrænda ESB Stjórnsýslu í kjölfar eins bankahruns.
Gamalleiki undir norrænni stjórnsýslu fer eftir atvinnustigi. Ef það ríkir fimm prósent atvinnuleysi þá er allt í pati því þá veit stjórnsýslan ekki hvað hún á að gera af sér og reynir því sem fyrst að eyðileggja flest sem harðast, til að atvinnuleysið aukist á ný, því þá aukast völd norrændu stjórnsýslunnar í takt við aukningu eymdarinnar.
Þegar atvinnuleysi er komið upp í stjórnsýslu-þolanlega tölu, til dæmis 10 prósent, þá er blásið til árshátíðar stjórnsýlunnar og hún getur á ný hafið útgáfu asna-vottorða sinna sem segja að allir þeir sem sextugir eru orðnir, séu þar með og því miður "of gamlir"
Þegar atvinnuleysið í kassahagkerfisheimi stjórnsýslumanna stjórnsýlunnar er komið upp í 12 prósent, þá eru allir eldri en fimmtugir orðnir of gamlir og allt um seinan fyrir alla þá.
Þegar atvinnuleysið er komið í 15 prósent þá hefjast fyrir alvöru happy days hjá stjórnsýslumannaliði stjórnsýlunnar. Þá er til dæmis hægt að útskrifa lækna beint úr námi og út úr veruleikanum fyrir fullt og allt. Henda þeim ónotuðum og óuppteknum.
Þegar atvinnuleysið er komið í 20 prósent þá fær fertugur ekki einu sinni vinnu. Og þá mun margt fólk undir fertugt heldur aldrei fá launaða vinnu alla sína ævi. Svona er þetta í ÖLLU Evrópusambandinu.
Heimska er óháð aldri. Og oft er hún meðfædd. En þetta sem þú skirfar er CAD/COMM. Canditatus Communismo uber alles. Hræðslan við að gera mistök lamar allt og alla undir þessu hersetna kerfi. Og það þar sem hlutirnir hætta að "gerast". Þannig dóu Sovétríkin á stóru biðstofu stjórnsýslunnar eftir "rétta stimplinum".
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 27.2.2013 kl. 21:11
Óþolandi spilling Halldór, hittir alla jafn óréttláttlega ef þeir lifa nógu lengi :) Minnir að við tvö höfum verið í hálfgerðum minnihluta þarna í "ráðinu" í spillingarmótþróanum.
Kærð´etta, skora á þig.
Sólskinskveðjur
Jenný Stefanía Jensdóttir, 27.2.2013 kl. 23:31
Þakka góðan og tímabæran pistil.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.2.2013 kl. 08:14
Þetta er með því grófara sem ég hef séð lengi. Einelti búrókratana og valdníðslan er óþolandi. Þarftu að framvísa dánarvottorði til að fyrirtækið sem starfar við teljist gjaldgengt í Kópavogi! Skammarlegt!!
Halldór ég skrái mig hér með í ellismelli flokkinn hjá þér!
Sveinn Egill Úlfarsson, 28.2.2013 kl. 09:03
Takk fyrir Gunnar fyrir nákvæma analysu á vandamálinu eins og þín er von og vísa. Það er nefnlilega svo í Þýskalandi til langs tíma stefnan að aldnir hætti alveg að vinna til að hleypa þeim yngri að. En þeir leggja mikið upp úr að hamlir fái sína rentu. Íslenskir pólitíkusar eru hinsvegar allir þvílík svín að þeir ráðast alltaf fyrst á þá sem þeir halda að þeir ráði við, sem eru til dæmis aldraðir og öryrkjar.
Góða vinkona Jenný, gaman að fá þessi orð frá þér. Maður er bara svo mikill ræfill að maður nennir varla að gera neitt í svona máli þar sem þeir hafa öll völd en þú engin.
Takk Heimir,
Takk sveinn, við erum þá með flokksskírteini nr. 1 og 2. Hitler var með flokksskírteini nr.9 í sínum flokk þannig að þetta getur alveg eins komið hjá okkur eins og honum.
Halldór Jónsson, 28.2.2013 kl. 17:53
Takk fyrir að þessa grein. Það er full þörf á því að vekja atjhygli á því hvernig hver staða eldra fólks er í dag.
Þeir ungu gera ekki ráð fyir því að verða gamlir, eða hvað?
Nú skulum við að fylgjast með hverjar áherslur flokkana verða fyrir næsta kjörtímabil og er mér þá skiljanlega ofarlega í huga málefni eldra fólks, því nú er ég flokkaður meðal þeirra og verð að lifa af skammtinum eins og ég kalla það. Aldrei fyrr haf kjósendur haft eins mikla flóru flokka til að velja úr fyrir atkvæði sitt.
Já hvar finnst flokkur? Ekki furða þótt upp í huga komi, hvar í allri þessari flokkaflóru er að finna flokk sem okkur hugnast og hefur skilning á lífinu eins og það er.
Hvar finnst flokkur sem ekki notar frasann: Stefnt skal að ? Hvar finnst flokkur sem ekki letur til öflunar tekna vegna óhóflegra skatta? Hvar finnst flokkur sem ekki skattleggur tekjur sem þarf til lámarks framfærslu? Hvar finnst flokkur sem ekki gerir öldruðum ævikvöldið óþarflega dapurlegt? og Þannig mætti lengi telja.
IGÞ, 28.2.2013 kl. 20:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.