Leita í fréttum mbl.is

Skúbbið!

er það sem menn þrá um þessar mundir. Menn hafa væntingar til þess að þeir Sigmundur og Bjarni komist að einhverju því samkomulagi sem rofið getur þá möru sem troðið hefur þjóðina síðastliðið kjörtímabil.  Framkvæmdaleysi, ráðleysi, mannleysi. Mikið er ég orðinn mæddur og langeygður eftir því að eitthvað gerist. Atvinnulífið taki kipp. Það komi eitthvað skúbb!

 Það eru ýmis teikn á lofti í heiminum þó að enn sé allt sé í mínus í Evrópu vegna þeirra heimagerðu vandamála sem ESB skrímslið framleiðir handa fólkinu.  Landið er farið að rísa vestur í Bandaríkjunum og atvinnulausum fækkar í fyrsta sinn í langan tíma. Dowið rýkur upp og gullið lækkar.

 Einkennistrjám Kópavogs, byggingarkrönum (áður voru það loftlínur á staurum),  er að fjölga stórlega og slá bjarma á sjóndeildarhringinn þegar maður fer í Salalaugina á morgnana . Menn spá og spekúlera víða. En  það er eins og eitthvað vanti. Okkar vantar forystu sem talar kjark í okkur og boðar okkur möguleika til lífs og starfa en ekki bara nýja skatta eins og sérstaka sykurskattinn sem leggst þungt á landann.

Það er vonandi að frá Þingvöllum komi hressir ungir menn sem eru fullir bjartsýni en ekki bölmóði sem maður fékk sífellt hjá Homo Thistilfjordensis og  öllum þeim villikattafansi.

Það vantar nefnilega skúbbið!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sykur er raunvirði þáttur PPP sem flæðir í gegnum flest matvæli og hlutfalls neysla vex því neðar sem komið er í launa stigann.  

Sykur skattar fylgja  allatf sossatjórnum.
Í raunvísinda efnfræði er kennt að tvísykrur meldast án minnstra ytrir orku: þrúgusykur og blóðsykur, nást mest fitandi eru sterkjur : hveit, maíz, ódýrast og best til fita alisvín og alígæsur vegna lifrarinnar. 

Reyrsykur er mjög orku kræfur  og þarf líkaminn  að fórna 80 hitaeignum af 100 til græða 20 ein . á blóðsykurs formi.   þess veg er lítið um feitt fólk á kúpu en margir feitir í Mexico. 

Hvítur sykur er litaður með skelja ösku ,  en ódýrai sykurinn er ólitaður. 

Manneldis fræði er stjórnmálalegs eðlis.

Flest hráefni til manneldis er verðflokkuð með til prótína í kíló þess sem þau finnast . 28 eru lífsnauðsynleg til viðhalds lífæra mannsins.

þegar snobb eftirpurn er ekki tekin með er allt með sama prótíni jafn dýrt.  Best eru prótín efst í fæðukeðjunni  fyrir manninn.   Hermenn fengu alltaf bestu prótín hér í þúsundi ára.   þeir sem voru sendir í verið vor oftast eldri synir, og þar var ekki sparað við þá hangiket , harðfiskur og smjör og kaffi fyrir 200 árum.
þjóðarhreisun sem hefur átt sér stað hér eftir síðust heimstyjöld er einsdæmi.  Heilþvottur ný-Íslenskunar er það versta.  Norðmenn vilja Íslendinga í vinnu, þjóðverjar eru málaþröskuld og afkasta þröskuld [engan persónuaflátt]  til halda í sitt fólk og auka ekki fjölda þeirra sem er betur borgað fyrir að sitja heima. Rökrétt. 

Hvernig bregðast Íslendina við næst aldar samdrætti í 80% af útflutning ríkjum okkar. Í stað þess að fjölga öllu sölu aðilum PPP, leya upp óþarfa keðjur og fákeppni. Minnka áhættu af skatta skilum auka líkur á aukingu PPP, þá bar senda liðið á námslan til auka meðalaun hér: þessi EU tölfræðilegu til bara  saman við verðlag.     Tekjur eistaklinga endurspeglast að því sem þeir greiddu fyrir allt raunvirði sem var selt fyrir reiðu , umframið er annhvort loft þegar er vitað PPP, eða eign milifrærslu eldri eigna. Tekjur framtíðar eru ekki til og eigandi er sá sem getur varið sinn eignarétt.  þeir sem er sviptir eignrétti hafa ekkert að verja.  Velta er  : Aðföng PPP = A , Vinna PPP =V . Skattar eru : (A + V x 1,4) 1,15 =  A x 1,15 + V x 2,1.  sést hvað álagðir launskattar vega þungt fyrir velferðakerfið. Allir eiga leggja jafn á til jafnt af aftur. lá laun í summ geirum hirða mest af starfmanna afslætti og það eykur byrgðar annarra rekstrar forma.     Ríki eru í heim skatta keppni og borgir keppa innbyrðis. 
A x 1,15 + V x 2,1. Allt annað arður og vextir  hækkar sölu skatt ekki rauvirðið vegna vinnu. þannig sleppa sumir við að greiða velferðskatta , taka laun yfir utan þá mun það vera 20% .

Ef meðaltekjur sem skila  iðgjöldum til lífyris sjóð lækka að raunvirði þá lækkar raunvirði framtíðar útborganna af þeim.  Nú hefur PPP  hér á íbúa lækkað um 30% á 30 árum árum í OCED samanburði. Iðgreiðslur er þá 30% lægri.

Júlíus Björnsson, 7.5.2013 kl. 02:17

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Júlíus

Gaman að lesa um sykurinn hjá þér. Viltu meina að ég, sem er á Atkins kúrnum gæti étið Kúbusykur= Rörsukker sem kolvetni án þess að eyðileggja allt? En kúrinn gengur útá að éta ekkert með kolvetnum. Og þetta er að virka þó hægt gangi.

Halldór Jónsson, 7.5.2013 kl. 08:20

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Mín reysla er þegar ég var um 24 til 32 ára ,  þá fann ég út þetta sem kallað er atkynskúr, sleep öllu sem innheldur, sterkja, hveiti , sósur með hveiti , kökur , gularbaunir, kornflakes,    .... eða borðið kjöt , fisk , grænmeti,....   [prótín trefjur   Í hófi sykur, ávexti.

Ef efnahvarfið fjölsykrur [niðurbrot > tvísykrur  er orku kræft, þá verð líkamin að útvega hita einingar til geta nýtt reyrsykur.
Það var sagt þegar ég var krakki að sykur skemmdi matarlyst.
Þess vegna gildir um mig að [reyr]sykur er nánast megrunar lyf.

Borða sem minnst magn [spara verksmiðju líkamns ] borða með tiltil raunvirðis PPP.   Hraust þjóð er arðbærari.  

  Heilastarfsemi er orku krefjandi , nútíma mennta maður  borðar mikið minna en þeir hér áður. 

hlutfallslegt samhengi hlutfalla, "Summa de arithmetica, geometria proportioni et porportionlita"   eru forsendur til að vinna með höfuðtölur í bókhaldi.    Málið er hafa hugbúnaðinn í heilanum ekki bara  í kjöltunnni eða á borðinu.  Ég þarf ekki að bíða eftir niðurstöðum sérfræðinga hér vegna eða í samengi  sérhæfni þeirra. 

Júlíus Björnsson, 7.5.2013 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband