Leita í fréttum mbl.is

Minnislisti

Sjálfstæðismanna vegna Borgarstjórnarkosninga á næsta ári hljómar svo:

Gísli Marteinn Baldursson, Þorbjörg Vigfúsdóttir og Áslaug Friðriksdóttir  greiddu atkvæði með Aðalskipulagi Reykjavíkur þar sem Reykjavíkurflugvöllur á að fara úr Vatnsmýri. Þessi nöfn verða Sjálfstæðismenn að muna þegar kemur að prófkjöri í haust. Þetta er meðreiðarfólk vinstri meirihlutans í Reykjavík sem vill flugvöllinn burt í andstöðu við meirihluta kjósenda í Reykjavík og annarsstaðar.

Þýðingarmikið er að Vallarvinir hefji þegar baráttu gegn þessu fólki með tiltækum ráðum. Þetta fólk þarf að fá þá einkunn í prófkjörinu sem gerir það óskaðlegt í þeim áformum sínum að eyðileggja Reykjavíkurflugvöll.

Markið Vallarvina hlýtur að vera að fella þetta fólk af lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík og kjósa heldur enga sem eru sama sinnis í prófkjörinu. Samtök flugáhugafólks þurfa að beita samtakamættinum til að vinna gegn þessu fólki í ræðu og riti, hvar sem það kemur og hvað sem það segir og spara hvorki fé né fyrirhöfn.

Burt með þetta fólk af framboðslista Sjálfstæðisflokksins vegna Borgarstjórnarkosninganna 2014. Setjum það á minnislistann. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Júlíus Björnsson, 5.6.2013 kl. 19:42

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ef Gísli Marteinn verður á lista (S) í borgarstjórnarkosningunum á næsta ári þá verður það garenterað að (S) verður ekki með flesta menn kjörna, svo einfallt er það nú.

Ég hef ekki verið mikil aðdáandi Árna Johnsen í gegnum árin, en það er rétt hjá honum þegar að hann lét skína í það að Gísli Marteinn er asni.

Verð að taka undir það hjá Árna.

Kveðja frá Houston.

Jóhann Kristinsson, 5.6.2013 kl. 20:38

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það er mikið af stjósrnusýlu ösnum á Íslandi, hinsvegar skil ég hvers þeir sem þykjast hér vera auka PPP þjóðarinnar láti Stjórnsýslu afæturnar komast upp með þess lávirisauka stefnu.  Inn á við og út á við.   Ég tel beint samhengi vera á milli skattagræðgi og ofvirkni í stjórnsýslu framkvæmdum hér.  Ef USA 90% getur ekki lifað af PPP körfu sem Ísledingar 80% neyðast til að taka við hvernig getur þá myndast gróði hér í ríkis fjármálgeirum?  Menntun sem skapar ekki góða samfélags gagnrýndur er óarðbær. Íslendingar hafa ef hér er skipt um mennta og vsk. stefnu allveg efni á því að hafa flugvöll í Vatnsmýrinni og betri of fleiri um allt land.   Það skortir allt viðskipta vit hér.  PP Parity [eða jafngidi reiðufjár] á íbúa hefur dregist 30 % aftur úr öðrum Vesturlöndum síðustu 30 ár. Vegna þess að hér er uppfært nafnvirði ógreiddra krafna [innlendra og erlendra] sennilega bókað  til skattskyldra tekna fyrir fyrir greiðslu í reiðufé. Ríki í dag gera ekki út á aukingu vergar þjóðarframleiðu GNP annara ríkja nema skap sér óvinsældir. Hlutdeildar flatur langtíma gróði til varsjóða myndunar heima fyrir er IQ. Því minni prósenta því betra.    

Það eru settir hér okur skattar  á fátæklinga  í vestrænum samanburði [þessi undir  meðal útborguð reiðfé á hverju ári]   í gegnu vsk. rekstraform til að að braufæða Asna: ekki vsk. geiranna. Lækka raunkostnað í grunni vsk. og auka heima hávirðauka sem felst í auka raunvirði vsk. vöru og þjónustu á heimamarkaði á leið til loka kaupenda, að mat hans hvort sem sem þetta er Íslendingur eða ferðamaður.    Raunvirði þjónustu starfa er í samhengi við útborgað fé til þjónust strafsmanna sem er í samræmi gæði þeirra. 1 flokkur , 2 flokkur, 3 flokkur,....    
Reiðufjárvana byggingar skila engu nema meiri örbyrgð og verri þjónustu. 
   

Júlíus Björnsson, 5.6.2013 kl. 22:01

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Gleymum ekki því Halldór, að Gísli Marteinn komst inn vegna formgalla í kosningunni sem ekki var búið að leiðrétt fyrir kosningar. Í stað þess að sýna heiðarleika átti hann að stíga til hliðar en að sjálfsögðu hélt Gísli Marteinn kjafti vegna þess að það er svo gott að vera jötunni. Verði hann í framboði fyrir flokkinn næst, munu sjálfstæðismenn tapa stórt með hann í broddi fylkingar.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 5.6.2013 kl. 22:56

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Rétt Halldór, þetta fólk veit ekkert fallegra og skilur ekkert betra en yfirgang Ibbu Sollu og arftaka hennar, þar sem þeim finnst gott að hlýja sér undir faxi Dags og í myrkum dölum Jóns borgarstjóranefnu, sem heldur að hann sé leikari. 

Mér fannst gaman að leika mér þegar ég var krakki, en Jón þessi er en þá að leika sér og smíðar á sig kúnstug nöfn skrúð.             

Hrólfur Þ Hraundal, 5.6.2013 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband