Leita í fréttum mbl.is

Pex

er að aukast í umræðunni. Það er leitað að orðalagi hvenær sem einhver ráðamaður opnar ginið og fjölmiðlar liggja í því  hvernig eigi að túlka þetta eða hitt öðruvísi en orðanna hljóðan. Og hundstungurnar lepja upp setningafræði sem auðvitað þarf ekki endilega að vera nákvæm í töluðu máli ráðherra frekar en annrs fólks. Hvaða fjandans  máli skiptir það þó Ólafur Ragnar segi þetta eða hitt eða hvernig Sigmundur túlkar það.

Það var illa til fundið hjá Sigurjóni M. Egilssyni að leiða fram Guðbjart Hannesson sem er afdankaður ráðherra til að þvæla við Sigurð Inga  sem er nýtekinn hreingerningum  eftir þanna sama á Sprengisandi. Þetta er ekki mönnum bjóðandi sem hafa áhuga á því sem á að fara að gera en vita flestir hvað sá gamli gerði vitlaust.

Vonandi fara ráðherrar ekki að eyða tíma í að svara brigslum frá Steingrími J. og slíku fólki á þessu stutta sumarþingi. Láta hann og þá  heldur blása að vild en svara ekki ónauðsynlegum spurningum um keisarans skegg.

Burt með pexið! Það er Aksjón sem vantar í skilanefndir sem annað! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þetta er hárrétt hja þér Halldór. Það hafði ekkert upp a sig að hafa Guðbjart þarna i þætti um. Hann reyndi að kaffæra SIJ i hvert sinn sem SI opnaði muninn með nýju spurninga flóði en gaf honum svo aldrei færi a að svara. Sigurjón þarf að læra listinn að stjórna umræðum áður en hann heldur lengra a þessari braut.

Ragnhildur Kolka, 10.6.2013 kl. 10:04

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þennan takt hafa SF.liðsmenn brúkað átölulaust alla stjórnartíð sína og komist upp með. Sú virðist raunin enn í dag,þótt keyri um þverbak á RUV. Sigmundur forsætisráðherra,vék sér fimlega undan kjaftvíðum Rúvara,í aðdraganda kosninga,,,,eini sem ég hef séð hafa roð við þeim.

Helga Kristjánsdóttir, 10.6.2013 kl. 12:25

3 Smámynd: rhansen

Ósvifnin eykst með hverjum degi ...og þetta lið sem frá er loksins farið og búið að gera fulla brók sina ótal sinnum ..komi það bara ekki i fl. umræðu þætti til að halda ósvifninni  áfram ,sem ekki er heil brú i !

rhansen, 10.6.2013 kl. 16:18

4 Smámynd: Þórir Kjartansson

Ég á gott ráð til þeirra sem þola ekki að heyra nema eina skoðun:  Hlusta bara og horfa á ÍNN  :)

Þórir Kjartansson, 10.6.2013 kl. 17:46

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir Kolka,nákvæmlega svona upplifði ég þetta. Og Hlega mín, þú ert ekki langt frá því sem mér finnst. Þetta byrjaði með Imbu Sollu, hún gargaði alltaf fram í svo það g1at enginn talaðp við hana , frekjan var svo stjórnlaus og dónaskapurinn. Ætli hún sé ekki búin að klumskjafta Talibanann þarna í Afgahnistan?

Ég horfi með ánægju á ÍNN þegar ekkert af þessu vinstra fólki er þar til spurninga. Það er ekki hægt að halda uppi vitrænu þegar það mætir í svona þætti

Halldór Jónsson, 10.6.2013 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband