12.7.2013 | 19:17
Ekki skrifa undir
áskorun um að halda aðildarviðræðunum áfram.
Þetta er blekking því um er að ræða aðlögunarviðræður við ESB þar sem Ísland lagar sig að Sambandinu en það ekki að Íslandi.
Látum ekki blekkja okkur til að skrifa undir marklaust og misvísandi plagg sem fer gegn meirihluta kjósenda sem eru búnir að segja sitt álit í nýafstöðnum kosningum. Látið ykkur ekki dreyma um að Forsetinn muni taka mark á þessu plaggi landsöluaflanna.
Trúum á frjálst og fullvalda Ísland. Gerið ykkur sjálfum ekki þá skömm að skrifa undir þetta skammarlega plagg sem er ígildi beiðni um endurnýjun Gamla Sáttmála.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:47 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 3419711
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
hvað - ertu hræddum um að meirihlutinn vilji halda þessu áfram. sennilega mikill meirihluti
Rafn Guðmundsson, 12.7.2013 kl. 20:00
Eru engin takmörk í ruglinu í þér Halldór. Af hverju meigum við ekki kjósa um samning þegar hann er klár? Ætlar þú og þínir kólfar í "Sumarhúsum" að ákveða þetta fyrir okkur hin sem viljum kjósa um þetta?
Guðlaugur Hermannsson, 12.7.2013 kl. 20:26
Rafn Guðmundsson - Hvaða "mikla" meirihluta ertu eiginlega að tala um ?
Ertu kannski að tala um þessar eftirhreitur, þessi 12,9% sem kusu Samfylkinguna í síðustu kosningum?
Eða ertu að tala um þessi 5% sem vilja það sem þú villt og hafa látið plata sig til þess að skrifa undir þetta plagg um að halda þessu ESB rugli áfram ?
Þinn "meinti meirihluti" á náttúrlega bara bágt !
Gunnlaugur I., 12.7.2013 kl. 20:30
gunnlaugur - fyrst við erum bara 12,9% eða 5% þá þarft þú ekki að vera hræddur við þessar atkvæðagreiðslur er það
Rafn Guðmundsson, 12.7.2013 kl. 21:12
Það er búið að greiða atkvæði Rafn í kosningunum. ESB var kosið burt. Eigum við að kjósa aftur og aftur þangað til að menn nenna ekki meira og segja já? Er það ekki venjan í sæluríkjunum?
Halldór Jónsson, 12.7.2013 kl. 21:50
ekki veit ég hvernig hausinn á þér virkar Halldór en ég og fleiri kannast ekkert við þessar kostningar sem þú 'sérð'
Rafn Guðmundsson, 12.7.2013 kl. 22:51
Kynntu þér hvort þú vilt aðeins 0g aðeins bara verzla rándýrt við ESB!
Ekki Skrifa undir fyrr en:
Þú vilt minnka landhelgi Íslands frá 200mílum í 12mílur.
Þú vilt sömuleiðis alls ekki betri og ódýrari vörur, td, í mörgum tilfellum ódýrari og mun betri frá USA, en ekki td ruglið um lélega, en CE merkta barnabílstóla frá EU í stað betri vandaðra og samþykktra hluta frá Ameríku.
Kolbeinn Pálsson, 12.7.2013 kl. 23:02
kolbeinn - varðandi landhelgina þá er EKKERT ljóst - þarf að klára samninginn við esb. ef usa væri til að 'vera með' þá kæmi það algjörlega til mála en það er bara óskhyggja. það er bara ein leið fyrir okkur - esb
Rafn Guðmundsson, 12.7.2013 kl. 23:37
smá viðbót - esb lönd og aðilar geta auðvitað verslað í usa eins og við. bara tollar hjá þeim eru EINS og hjá okkur vegna ees.
Rafn Guðmundsson, 12.7.2013 kl. 23:42
Guðlaugur, meintirðu þitt rugl? Rafn, trúirðu þessu sjálfur?
Elle_, 13.7.2013 kl. 00:51
Það verða 13% sem skrifa undir og svo segja ESB sinnar að meirihluti þjóðarinnar vilji klára viðræðurnar.
Þetta er svona eins og skoðunarkannanirnar sem ESB sinnar panta og niðurstaða skoðunarkannana eru ákveðnar áður en könnunin hefst.
Ég hef sýnt það í öðrum athugasemdum að ég er með betri tölur úr mínum skoðunarkönnunum eða 100% þeirra sem taka þátt í sköðunarkönnunum sem ég er með vilja hætta ESB ferlinu fyrir fullt og allt.
Þannig að það hlýtur að vera að 100% þjóðarinnar vill ekki ESB, ef ég nota logic sem ESB sinnar nota um sýnar pöntuðu niðurstöður í pöntuðu skoðunarkönnunum.
Kveðja frá Dubai.
Jóhann Kristinsson, 13.7.2013 kl. 05:27
Ég segi að ESB sinnar séu að blekkja einfeldninga sem vita ekki að ég eru samningar í gangi við ESB en ekki viðræður. Þetta kom fram þann 16 júlí 2009 á alþingi. Össur og Johanna beittu Blekkingum kannski óafvitandi en þau kom okkir í snöruna hjá ESB. Látum ekki þessa ESB sinna blekja og berjumst við þá með kjaft og klóm. Penna skal nota á þetta lið þar til blekið þrýtur en þá er það erlenda aðferðin.
Valdimar Samúelsson, 13.7.2013 kl. 10:17
Að mínu viti snérust þingkosningarnar síðustu um það að hluta að hætta aðildarviðræðunum. Því ber að framfylgja af því atkvæðin féllu þannig.
Þið, þessir heilaþvegnu ESB-sinnar, sem eruð að reyna að blekkja fólk með samningatali í stað aðlögunarferlis Íslendinga munuð auðvitað heimta kosningar á kosningar ofan og meir þvælu þangað til fólkið gefst upp.
Þessvegna er besta að loka sjoppunni strax og segja að það sé hlé á öllum viðræðum þetta kjörtímabil.
Halldór Jónsson, 13.7.2013 kl. 10:45
Aðlögunarviðræður, hvaða bull er þetta. Ísland varð aðili að EES 1994 og tekur upp 80% af reglugerðum sambandsins án þess að hafa á þær nokkur áhrif. Þetta aðlögunarviðræðnakjaftæði bendir til illa upplýstrar umræðu og rangfærslna.
Jón Ingi Cæsarsson, 13.7.2013 kl. 11:14
Molbúaháttur og einfeldi ESB andstæðinga er grátlegur, eða kannski svolítið hlægilegur.
Jón Ingi Cæsarsson, 13.7.2013 kl. 11:15
Jó I.C. Kl 11,14&11/15 2013.
Gætir þú ekki skírt nánar orð þín? “aðlögunarviðræður, hvaða bull er þetta“. Jón I.C Hvað hefur Össur þá verið að gera ef hann hefur ekki verið að vinna í aðlögunar viðræðum?.
Við einfaldir ESB andstæðingar tökum það ekkert næri okkur að vera hlægilegir í augum þinna líka svo haltu bar áfram með Molbúa háttinn. Eða voru það við sem voru Molbúarnir?
Hrólfur Þ Hraundal, 13.7.2013 kl. 12:09
Stundum hentar að tala um "vilja þjóðarinnar" í sambandi við ESB.
Í þeim hentisemi-umræðum, forðast sumir að viðurkenna þá staðreynd, að EES/ESB-reknir og "hlutlausir" fjölmiðlar sjá um, að semja óska-kosningaseðil.
Er einhver sem trúir því, að það finnist enginn fíkniefnasali í æðstu embættunum þjóðríkja veraldarinnar? Hver fjármagnar fíkniefna-baróna á okurverði, (ofbeldisframkallandi verði).
Píratar vita meir en þeir upplýsa, þrátt fyrir alla umræðuna um mikilvægi upplýsinga. Hvers vegna ekki að upplýsa meira?
Reglugerðar-ruglbáknið í Brussel (hátt settir spillingargosar), kaupir/mútar og kúgar valdamesta embætti Íslands: svo kallaðan HÆSTARÉTT, (þ.e. frímúrara og lögreglu-yfirvöld).
Og síðan sjá þeir menn, um alla undirmenn sína: æðstu embættismenn stofnana/banka/lífeyrissjóða/alþýðusambands Íslands og verkalýðsfélaga.
Síðan sjá þeir æðstu embættismenn, um að endurtaka spillt ofbeldið á: valdamestu ráðherrum í ríkisstjórninni.
Þetta vita þeir jafnvel flestir, sem tala hæst um að "þjóðin" vilji þetta eða hitt. Hver er þjóðin?
Finnst fólki ekkert athugavert við þennan valdapíramída?
Það eru nú sem betur fer komin fram ný gögn, um ráns-peningaþvotta-spillinguna í Vatíkaninu. Er Vatíkanið í tollfrjálsa ESB-viðskipta-reglugerðar-bankaspillingar-kerfinu?
Það er ekki seinna vænna, að afhjúpa verk þeirra sem taka sér ofbeldis-vald, í skjóli spillingar og lögleysu-reglugerðar-rugls, af öllu tagi!
Þar sem trjóna á toppnum: ábyrgðarlaust opinbert öfga-skyldu-heilaþvotta-skólakerfi, (sem þjónar illa nemendum og kennurum), og: trúar-bragða-öfgar, (sem ekki þjóna neinum trúuðum)!
Hver mun stoppa hreingerninguna?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.7.2013 kl. 13:22
Fyrirgefðu Jón Ingi Cæsarsson, ég ætlaði að hafa það Jón I.C. og vona að mistök mín móðgi ekki.
Hrólfur Þ Hraundal, 13.7.2013 kl. 13:29
Koma nú einu sinni enn ósannindi Jóns Inga um hvað við séum að taka upp mikið af lögum í gegnum EES-samninginn. Hann er ómarktækur og endurtekur þessi ósannindi aftur og aftur viljandi. En við erum að taka upp um 10%. Punktur. Hættum í EES (og Shengen) eða alvarlega endurskoðum samninginn. Og förum vandlega yfir öll lög sem eru tekin upp þaðan.
Jóni Ingi, það er ekki nóg með þið ESB-sinnar og samfylkingar ljúgið þessu árum saman, heldur líka hvað sambandsríkin séu fullvalda undir nær algerri yfirstjórn. Og hvað verið sé að semja mikið við ESB þó ekki sé verið að semja um neitt sem skiptir fullvalda ríki neinu máli. Við þurfum enga sílissporða af þeirra náð í pínulítilli og stórminnkaðri fiskveiðilögsögu. Við getum veitt okkar fisk í friði nú í okkar stóru fiskveiðilögsögu. Við þurfum ekki og viljum ekki yfirstjórn þeirra.
En það tók út yfir allan þjófabálk þegar heitinu Evrópa var stolið til að villa fólki sýn og ICESAVE var klínt á ísl. ríkið. ESB kallar ESB-þingið 'Evrópuþingið'. Íslenskir ESB-sinnar og samfylkingar segja Evrópuráð og Mannréttindadómstól EVRÓPU vera hluta af ESB, en Evrópuráð og Mannréttindadómstóll EVRÓPU heyra undir alla EVRÓPU en ekki e-ð kola- og skuldabandalag 28 ríkja þar.
Elle_, 13.7.2013 kl. 14:00
Höfundur þessarar síðu segir Kl. 10,45 á þá leið að kosningarnar hafi meðal annars snúist um verk síðust ríkisstjórnar og að þeim þætti sem snýr að Evrópusambandsumsókn hafi verið hafnað.
Ég tek undir þetta en vil við bæta að það á að setja öll gögn sem Össur hefur aflað í þessu efni á vandræða safnið.
Því að ef Evrópusambandið breytist þannig á næstu hundrað árum að þolanlegt væri að hafa við það viðskipti, þá á að byrja upp á nítt, en ekki elta uppi gamlan fúin ÖS draug .
Hrólfur Þ Hraundal, 13.7.2013 kl. 16:10
Það voru mistök að fara í þetta umsóknarferli á sínum tíma. Það var í raun ekki þingmeirihluti fyrir því þar sem Jóhanna og co. þurftu að brjóta á stjórnarskránni með því að þvinga VG-liða til að samþykkja ESB frumvarpið. Svo var tímasetningin út í hött. Ríkisstjórnin vissi mæta vel að það átti eftir að semja um Icesave skuldina og það myndi stangast á við samræður við ESB. Þær voru nú heldur ekki litlar hótaninnar sem heyrðust til að hræða fólk til að samþykkja Icesave byðarnar. Hér átti allt að fara í kaldafrost og við myndum einangrast frá Evrópu og ég veit ekki hvað og hvað. Samt halda menn enn fram í dag að ESB dauðlangi að fá okkur inn. Það er ekki mark takandi á þessu fólki.
Svo geta menn ekki haldið því fram að viðræðurnar gangi vel. Samningsnefndin er ekki einu sinni tilbúin með samningsafstöðu í stærstu málunum, þ.e. sjávarútvegi, landbúnaði og frjálsum fjármagnsflutningum. Ferlið átti að taka 18 mánuði en hefur nú staðið yfir í fjögur ár. Hvað hafa menn verið að gera?!
Það eru einfaldlega engar forsendur til að halda þessari vitleysu áfram. Menn vita ekki einu sinni hverju þeir vilja ná fram með samningum, það er ekki meirihluti á þingi til að halda þessu áfram og yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar hefur lítinn sem engan áhuga á að fara þarna inn. ESB sinnar geta skipulagt árshátíðarferð til Brüssel einu sinni á ári til að fá útrás fyrir Evrópuástinni en þessi minnihlutahlópur hefur fengið að vaða nógu lengi uppi með sínar villandi upplýsingar og loftkastala um draumaveru í ESB. Nú er komið nóg!!
Pétur Harðarson, 14.7.2013 kl. 03:46
Viðræðurnar standa um aðlögun og upptöku Íslands á regluverki Evrópusambandsins sem skiptist í 35 kafla. Þetta er alveg kýrskýrt af hálfu Evrópusambandsins, en margir ESB sinnar hér á landi virðast halda að Ísland geti fengið varanlegar undanþágur frá regluverkinu eftir ber hag.
Þegar þetta er ritað hafa 27 kaflar verið opnaðir af þeim 29 sem Ísland hefur afhent samningsafstöðu um. 11 köflum af þessum 27 hefur þegar verið lokað. Eftir er að opna stóru kaflana um sjávarútveg og landbúnað. Í 16 köflum fer Ísland ekki fram á neinar sérlausnir, undanþágur eða aðlögunartíma. Af öðrum köflum þar sem farið er fram á slíkt er stundum um svo lítilvæg atriði að ræða að varla er hægt að tala um að verið sé að tala um sérlausnir eða undanþágur. Taka á upp regluverkið óbreytt. Stundum getur það vafalaust verið til góðs, ef íslensk stjórnvöld og stofnanir hafa þá skilning til að fara eftir því sem þar er lagt fyrir. Slíkt hefur ekki verið raunin um neytendavend eins og dómaframkvæmd og eftirfylgni framkvæmdaaðila vegna gengistryggðra lána hefur sýnt á liðnum misserum.
Evrópusambandinu, eins og öðrum stjórnkerfum, er í raun stjórnað af fjársterkum þrýstihópum og hagsmunaaðilum. Þeir sem að halda það að litla Ísland geti haft áhrif á löggjöf ESB gegn stefnumótunog hagsmunum þessara fjársterku aðila eru vafalaust vanir að míga upp í vindinn og skilja svo ekkert hvers vegna hlandlyktin af þeim er svona megn. Sömu aðilar eru líklega æstir í að virkja allt sem rennur til að bræða jarðveg til málmframleiðslu ýmiskonar fyrir smáaura.
Fólk getur annars kynnt sér samningsafstöðu Íslands á vefsíðunni vidraedur.is, ef það nennir. Fyrir mér er það skýrt að þangað inn höfum við ekkert að gera eins og sakir standa.
Erlingur Alfreð Jónsson, 14.7.2013 kl. 15:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.