1.11.2013 | 22:06
"Sá sem býst við sanngirni
á ekki að vera í pólitík". Þetta voru spakleg ummæli hjá Óla Birni Kárasyni í Hrafnaþingi á ÍNN rétt áðan.
Þetta var eftir að umræðan hafði snúist um nauðsyn þess að Sjálfstæðisflokkurinn yrði leiðandi afl í Borginni og myndi stjórna henni af ábyrgð og festu eins og var í gamla daga. Allt er þetta auðvitað nú gott og blessað og háleitt markmið. Það var líka talað með nostalgíu um þá gömlu góðu daga þegar fólk hélt tryggð við sitt tryggingafélag og kaus sinn flokk. En slíkir tímar eru liðnir sagði Gulli og það réttilega. Fólk er ekki fast í farinu sínu eins og var í gamla daga.
En þarna var Borgarstjóraefni Ingva Hrafns, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, að tala um nauðsyn samvinnu fólks í Borgarstjórn. Af öllum frambjóðendum til prófkjörsins þá er hún þarna ein frambjóðenda í stjörnuhlutverki þátt eftir þátt. Hvað veldur því vali Ingva Hrafns að Þorbjörg Helga höfð alltaf á Hrafnaþingi eins og aðrir frambjóðendur i prófkjöri séu ekki til? 16 talsins. Er ekki svarið bara Haganlegt?
Þorbjörg Helga er stjórnmálamaður sem staðið hefur fyrir meiri klofningi í röðum Sjálfstæðimanna en margir aðrir. Verið ófeimin að yfirgefa oddvita sinn og ganga til óvinanna. Gengið gegn vilja meirihluta Reykvíkinga með því að fylgja Aðalskipulagi Jóns Gnarrs og Dags Bé sem miðar að því að leggja Reykjavíkurflugvöll niður. Bandamaður Hönnu Birnu sem nú er komin í ráðuneyti í ríkisstjórn sem hefur gert með sér sjórnarsáttmála. Var hún sérstaklega formannsholl síðasta vor? Þá sagði Friðrik Friðriksson af sér.
Nú tekur Hanna Birna nýja stefnu í málum sem búið var að innsigla í stjórnarsáttmála um málefni Reykjavíkurflugvallar og skrifar undir nýjan samning um sundrung og ósamlyndi næstu árin með því að kyssa á skipulagsvönd Jóns Gnarrs og sýna með því 70.000 undirskriftum puttann. Fórnar einkaflugi og kennsluflugi blákalt og skipar Rögnu Árnadóttur, fyrrverandi ráðherra í vinstristjórninni sem leið, til að leita að flugvallarstæði í fjórða sinn. Kýs nokkur svona Sjálfstæðisflokk?
Óli Björn var búinn að benda á það Sjálfstæðisflokkurinn yrði að tala einni röddu í Borgarmálefnum. Er útlit fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn muni gera það? Engu svaraði Þorbjörg þar um. Flokkur sem getur ekki ákveðið sig um Vatnsmýrina og fyrirséð er að margir frambjóðendur í prófkjöri ætla ekki að tala einni röddu þar.
Dettur Þorbjörgu Helgu í hug að hún geti farið fram í kosningar með þetta mál óuppgert? Nær flokkurinn árangri þannig? Verða menn líka ekki að hafa unnið sér traust sem flokksmenn með störfum sínum áður en þeir hljóta endurkjör? Hefur Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarstjórn gert það með margar skoðanir í einstökum málum undanfarin kjörtímabil? Hver er þáttur Sjálfstæðisborgarfulltrúanna í velgengni Besta flokksins að undanförnu? Enginn?
Eru kosningarnar ekki bara fyrirfram tapaðar ef kjósendur hafa tapað trausti? Trausti á að menn eigi eftir að sýna hvort eitthvað búi í þeim? Á það bara að ráða valinu hversu hinir flokkarnir séu hræðilegir? Sem þeir eru svo að auðvitað, að ekki ætti nokkrum manni að detta í hug að kjósa þá. Því Gulli sagði réttilega að flestir Íslendingar væru sjálfstæðismenn í hjarta sínu. Flokkurinn næði bara ekki til þeirra. Og það er verkurinn. Skortur á einlægni.
Detti kjósendum Sjálfstæðisflokksin í hug að velja fólk á listann sem sýnt hefur og sannað að þeað getur ekki starfað saman að einni stefnu, þá er til lítils að gera sér væntingar um að kjósendur muni sýna flokknum traust og veita honum brautargengi. Ef flokkurinn ætlar ekkki að segja kjósendum fyrirfram hvaða stefnu hann hefur í skipulagsmálum, lóðamálum eða öðrum málaflokkum, þá getur hann sparað sér þetta prófkjörsbrölt. Ef framboðssveitin verður fyrirfram dæmd úr leik vegna fyrri afreka þá verða menn ekki trúverðugir þegar þeir segjast ætla að skipta um skoðun. Gísli Marteinn hætti þegar hann sá að honum yrði ekki trúað til sinnaskipta þó svo hann yrði að gera svo til að eiga möguleika. Hann er maður að meiri í mínum augum eftir. Stefnufastur og lét sannfæringu sína ráða yfir framavonum í pólitík. Það má taka ofan fyrir slíkum mönnum því þeir eru ekki of margir.
Spyrjið frambjóðendur Sjálfstæðisflokkinn fyrst að því hvað þeir ætli að gera í málefnum flugvallarins og Vatnsmýrarbyggðar? Það verður að fá hrein og klár svör fyrir hvað frambjóðandi stendur. Það er ekki hægt að kaupa kjósendur með sjónvarpsþáttum þar sem falleg bros, föt og hárgreiðsla og einhverjar almennar umræður eiga að leysa grunnpólitíkina af hólmi.
Það verður nefnilega engin sanngirni sýnd í kjörklefanum ef fólk ekki trúir því að frambjóðendur séu hreinir og beinir flokksmenn sem fylgja stefnu flokksins. Og stefnan verður að vera skýr og klár eins og Gísli Marteinn gerði sér ljóst. Þorbjörg Helga verður ekki Borgarstjóri Ingva Hrafns án þess að tala skýrt.
Ég held að ég nenni ekki að horfa á fleiri Hrafnaþing í bili. Ingvi Hrafn er búinn að ganga fram af mér með síðustu þáttum sem eru teknir upp í gegnum trekt frá Florida og sýna goðið mitt hann Ingva Hrafn alltof líkan Kermit froski til að mér finnist það skemmtilegt. Enda hlýtur þeim að fækka sem nenna að mæta í svona framboðsþætti sem ekki ná því að teljast umræðuþættir. Fyrri gestaráðherrar eru líka farnir nema Gulli. Finnst mér enda lítið leggjast fyrir kappann að taka þátt í svona framboðsþáttum.
Og er ég þá bara ekki nokkuð sanngjarn?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:19 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.