3.2.2014 | 15:21
Strandveiðar gefnar frjálsar !
því miður ekki á Íslandi heldur í Noregi. Þar eru strandveiðar frjálsar frá áramótunum síðustu.
Ef við hefðum þessa skynsemi til að bera eins og frændur okkar Norðmenn, þá myndum við geta farið að dæmi Norðmanna og úthluta okkur sjálfum tvöföldun á makrílkvótanumn. Það er akkúrat sem Nojarinn gerir núna og gefur frat í Damanki og allt þetta Evrópubix. En við erum ákveðin í að minnka aflahlut okkar í heildaraflanum. Vegna hvers?
LÍÚ á ekki nógu mörg skip sem hægt er að nota við þessar veiðar samtímis síldveiðunum.Ergo ástæðan fundin.
Ef við gæfum strandveiðarnar frjálsar og tvöfölduðum kvótann eins og Norðmenn þá geta allir bátar farið að snurpa makríl og fært nokkra milljarða í viðbót inn í þjóðarbúið.
En gæfuleysið ræður för og þröngu sérhagsmunirnir eins og jafnan fyrr. Frjálsar starndveiðar eru löngu tímabærar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Norðmenn gáfu ekki einhverjar strandveiðar frjálsar.Þeir gáfu frjálsar veiðar í þorski á báta innan 11 metra,en tóku upp takmörkun í ýsu.Þeir vilja minnka makrílstofninn ,að því er virðist til að vernda síldina.Minkun makrílstofnsins myndi trúlega hafa þau áhrif að hann hætti að ganga á Íslandsmið.Láttu Samfylkinguna um ruglið Halldór.
Sigurgeir Jónsson, 3.2.2014 kl. 16:12
Ég hef borið þessa kenningu undir fagmann Sigurgeir, þetta hefur engin áhrif á makrílgengd hingað, styofninn er helmingi stærri en Hafró heldur.
Halldór Jónsson, 3.2.2014 kl. 16:18
Norðmenn voru líka að auka ýsukvótann um 200% en ekki að "taka upp takmarkanir í ýsu".
Norðmenn virðast loksins búnir að átta sig á því að kenningar ICES (Alþjóða hafrannsóknarráðsins) eru að miklu leyti della - stórauknar veiðar á þorski í Barentshafi frá árinu 2000 (þvert ofan í ráðgjöf ICES) og nú síðustu ár - stórauknar veiðar á makríl - líka þvert á ráðgjöf ICES (pólitíska fiskveiðirágjöf ESB)
Íslenskir ráðgjafar eru hins vegar flæktir í net ICES þar sem þeir þiggja laun þar og ýmis ferðahlunnindi.
Eftir allt klúðrið hjá ICES með þorskinn í Barentshafi - og nú síðast makrílinn - ættu íslendingar í ICES að hafa metnað til að segja af sér í þessari marklausu veiðirágjöf.
Svo þarf að stöðva þá dellu að stungið sé af með íslenskt innanríkismál (gögnin úr togarallinu) - í skjóli nætur - og unnið úr gögnunum í Kaupmannahöfn frá lokum mars - þangað til í Júní - og þá koma loksins "tillögur Hafrannsóknarstofnunar" - um hver LÍTIÐ á að veiða á Íslandsmiðum! Eru ekki til tölvur á Skúlagötu 4 með sömu forritunum - og há ICES? Af hverju þar að laumast með íslenskt innanríkismál og viðkvæmar upplýsingar til Kaupmannahafnar?
Þannig viðist búið að framselja veiðiráðgjöfina á Íslandmiðum úr landi - en fyrir því er engin lagaheimild og af hverju er þetta þá gert. Á ekki veiðiráðgjöfin að vera Íslensk - fyrir Ísland - en ekki einhver "samsuða" á vellingi þar sem grænfriðungum ESB er blandað í íslensk innanríkismál...
Það er heldur engin lagaheimild fyrir "20% aflareglu" sem er della þegar það vantar fæðu hjá smáþorski - eins og hefur rýrt afrakstur þorskstofnsins stórlega á Íslandsmiðum frá 1983.
Ég vil hvetja til þess að opinberar ráðstefnur verðu haldnar um þessi málefni - og hætt að pukrast með þetta fjöregg þjóðarinnar hjá "einokunarklúbbi ICES" í kóngsins Kaupmannahöfn.
Kristinn Pétursson, 3.2.2014 kl. 16:29
Stofninn fór ekki að ganga hingað fyrr en hann komst í ákveðna stærð.Fagmenn í fiskifræðum eru býsna margir.Þeir eru ekki sammála, sumir láta pólitísk viðorf ráða.Norskur fiskifræðingur hefur bent á að stofninn sé orðinn of stór,og það geti bitnað á öðrum stofnum.Það getur verið rétt.En makríllinn hefur verið á íslandsmiðum áður og horfið.
Sigurgeir Jónsson, 3.2.2014 kl. 16:41
Veiðar á bátum undir 11 metrum í ýsu, eru ekki frjálsa í Noregi, eftir þeim ulýsingingum sem hafðar eru eftir íslenskum smábátamönnum í N- Noregi.Ég treysti þeim upplýsingum þar til annað kemur í ljós.
Sigurgeir Jónsson, 3.2.2014 kl. 16:47
Jón Fiskur segir þetta:
"Heyrði í útvarpsfréttum í dag (1/2) viðtal við Árna Kolbeinsson framkvæmdastjóra LÍÚ, þar sem sagði að það séu Norðmenn sem vilji auka makrílaflann en hann taldi Íslendinga þurfa að sýna ábyrgð og fara að vísindaráðgjöf ICES.
Hann er í samninganefndinni! Er það LÍÚ, sem ræður ferð? Því vilja þeir ekki veiða meiri makríl?
Ég man ekki betur en að sjávarútvegsráðherra sé nýbúinn að halda fram að mælingar Íslendinga og Norðmanna hafi sýnt að stofninn væri miklu stærri en talið hefði verið.
Hvað er í gangi?
Jón Kristjánsson, 1.2.2014 kl. 13:26 "
Halldór Jónsson, 3.2.2014 kl. 17:54
Er það ekki þetta og fleira sem tengist því sem þú ert að tala um Kristinn?
Halldór Jónsson, 3.2.2014 kl. 17:54
Það er LÍÚ sem skammtar alla hluti
Halldór Jónsson, 3.2.2014 kl. 17:55
Kjarni málsins eru ekkert "margar skoðanir" meðal fræðimanna.
Kjarni ágreiningsins er þessi:
Kenning kennd við Beverton Holt gerir ráð fyrir ENGRI samkeppni innbyrðis í fiskistofnum - eða milli stofna.
Kenning kennd við Ricker - gerir hins vegar ráð fyrir mikilli samkeppni innbyrð'is i fiskistofni - og þá einnig milli stofna.
Hér er mynd af þessu:
Fræðimenn ICES - hanga allir á Beverton Holt kenningunni í aðalatriðum og þá er alltaf "ábyrgast" að veiða minna en meira...
Reynslan sýnir hins vegar, - að fiskistofnar virðast "regulera sig" miklu líkara kenningu Ricker.
Ég lét fagmenn gera samanburð á þessu fyrir mig 1992-1993 og þá kom þessi mynd varðandi samanburð í heildarstofni þorsks - og nýliðun:
Heildarsamanburður fyrir 6 samanlagða fiskistofna sýndi þetta:
Ég hef enn enga umræðu fengið um þennan samanburð (gögn Hafró) annað en "að það eigi ekki að gera þetta svona"
Það geta allir skoðað þessi mál - sem hafa á því áhuga - og þannig á það að vera. Þetta er ekkert "einkamál" örfárra manna í ICES.
Hér er enn ein mynd um klúðrið í þorskinum 1999-2002
Þarna er þorskstofninn 1031 þús Tn 1999 og á að stækka í 1150 þús tn 2002 með 25% aflareglu - sem þá var búið að fara eftir með 95-97% nákvæmni ef miðað ver við frumgögn Hafró - en ekki eftir að þeir breyttu stofnstæðum aftur í tímann og sögðu "ofmat" fyrri ára (blekking)
Árið 2001 var stofninn aðeins 577 þús tn og þar töpuðust tæp 600 þúsund tonn á tveim árum.
Rétt skýring þarna er að dánarstu'ull virðist hafa hækkað í 43,5% árin 1999-2001 í stað áætlunar - 18%. Líffræðilega - virðist það rétta skýringin.
Aðferð ICES/Hafró - er hins vegar "árlegt endurmat" að falsa nýjar stofnstæðir aftur í tímann - þegar fiskur drepst úr hungri við þvingaða "uppbyggingu".
Norðmenn og Rússar virðast nú afa skilið þetta algerlega - og þá sitja Íslendingar eftr ein sog kjánar í fanginu á ICES.
Ég tel umræðu um þetta - mikilvægasta mál þjóðarinnar.
Kristinn Pétursson, 3.2.2014 kl. 18:33
Skýring : Myndirnar með svörtu línunum (fylgni) virðast sýna að við séum fræðilega stödd - lengst hægra megin í fræðikenningu Ricker.
Það þýðir að betra sé að auka sóknina - þá gefi þessi stofnar meiri afrakstur - sama niðurstaða og reynsla Normanna með þorsk í Barentshafi og nú síðast makrílinn
Kristinn Pétursson, 3.2.2014 kl. 18:37
Hér kemur Kristinn enn aftur með sömu gröfin sem hann hefur verið að pósta á bloggið nú í mörg ár. Hvar hefurðu fyrir því að ICES notist aðeins við líkan Beverton og Holt? Það fer eflaust eftir fiskistofnum hvort líkanið er betra eða líkir betur eftir því sem er að gerast í fiskistofnum þegar kemur að sambandinu milli hrygningarstofns og nýliðunnar. Beverton og Holt líkanið gerir ráð fyrir að þéttleikabundnir þættir hafi lítil sem engin áhrif. Við lítinn hrygningarstofn eykst nýliðun upp að ákveðnu marki en eftir því sem hrygningarstofn stækkar þá hafi það lítil áhrif og nýliðun sem er nánast sú sama þótt hrygningarstofn stækki. Ricker líkanið gerir hinsvegar ráð fyrir að þéttleikabundnir þættir hafi mikil áhrif þannig að nýliðun eykst til að byrja en eftir að hrygningarstofn hefur náð ákveðinni stærð minnki nýliðun. Eitt sem einkennir bæði þessi líkön og Beverton og Holt og Ricker eru samála um er að ef enginn er hrygningarstofninn þá verður engin nýliðun (sjá, lengst til vinstri á grafinu). Ef við skoðum núna gröfin hans Kristins, þá verður að segja að þau eru mjög frábrugðin þessum líkönum. Ef við framlengjum línuna á hans grafi út á y-ásinn (lengst til vinstri) og lengra þar til við hittum þar sem 0 er á x-ás sjáum við að nýliðun er mest þegar enginn er hrygningarstofninn. Þannig eftir kenningum hans á auðvitað að veiða meira, og alls ekki að hætta veiðum fyrr en hrygningarstofninn er horfinn en þá er hámarks nýliðun samkvæmt þessu.
Davíð Gíslason (IP-tala skráð) 3.2.2014 kl. 21:37
Davíð
Auðvitað verða kúrfurnar ekki svona. Er eki líklegt að þessar kúrfur lúti sömu lögmálum og Laffer kúrfurnar um undanlát skatttekna ef skatturinn fer yfir þolmörk. Dæmin hjá þér sýna auðvitað að svoleiðis lögmál hljóta að gilda. Þú ert líffræðingur og þú hlýtur að geta teiknað upp kúrfur sem eru réttari. Gerðu það fyrir okkur hina svo við sjáum hverju við eigum áð trúa.
Halldór Jónsson, 3.2.2014 kl. 22:46
þetta er rétt hjá þér halldór. Ég tók mig saman og bjó til graf með Hrygningarstofnstærð og nýliðun hjá þorski frá 1955 - 2012 og notaði einföldustu aðferðir til þess að fitta bæði BevertonHolt og Ricker ferill á gögnin. Tölurnar sem ég nota í þetta koma beint úr skýrslu HAFRO.
Nú geta menn vonandi spáð í hvor kúrfan virðist passa betur við gögnin. Í dag er hrygningarstofninn metinn vera um 479 þús. tonn. Stofninnstærðin er nánast þar sem Ricker ferillinn er í hámark, kannski aðeins farinn að halla niður á við. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1964 að stofninn fari yfir 450 tonn. þús.
Davíð Gíslason (IP-tala skráð) 4.2.2014 kl. 03:07
Eitthvað fór úrskeiðis, myndin kom ekki inn. En hér er hlekkur á myndina:
http://dabbigisla.blog.is/img/tncache/s90/eb/dabbigisla/img/torskurnylidun1955-2012.png
Davíð Gíslason (IP-tala skráð) 4.2.2014 kl. 03:17
Jæja þetta virkaði ekki heldur, kannski eitthver geti kennt mér að gera þetta. það er hægt að klikka á nafnið mitt til að sjá grafið
Davíð Gíslason (IP-tala skráð) 4.2.2014 kl. 03:48
Það er rétt sem kemur fram hér, að umræðan um náttúrulega stjórn fiskveiða hérlendis er þröngsýn, takmörkuð og á mála hjá þeim sem fengu fiskinn *okkar* gefins.
Takk fyrir góðan póst - og margar fræðandi athugasemdir.
Guðjón E. Hreinberg, 4.2.2014 kl. 04:10
Hér er myndin sem Davíð vísar til:
http://dabbigisla.blog.is/users/eb/dabbigisla/img/nylidunthorskur_1227849.jpg
Erlingur Alfreð Jónsson, 4.2.2014 kl. 16:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.