Leita í fréttum mbl.is

Fréttamat

RÚV er sérstætt í kvöld.

Heimurinn rambar á barmi styrjaldar. En í RÚV skiptir mestu máli að Valgerður Bjarnadóttir er að velta Hönnu Birnu upp úr einhverjum miða sem DV stal sem engu máli skiptir með upplýsingum um einhvern svartan  tvíkvænismann (sem er víst búið að grenja hingað inn til landvistar). Hvenær skiptir eitthvað raunverulegu máli sem stendur í DV yfirleitt?

Hver stal hvaða upplýsingum um þetta ómerkilega mál finnst mér ekki skipta máli? Hver græddi á því?  Hvað varðar mig eiginlega um þetta? 

Svo er eitthvað fólk í svörtum dulum að skvetta góðvíni á glerhjúpinn í Hörpu og fetta sig og bretta. Kannski hreinkast glerið eitthvað við þetta?  En til hvers er að eyða tíma í svona sýningar? Gamli Göbbels hefði strax séð að þetta á ekkert skylt við raunverulega list heldur bara þessa útbreiddu löngun til að fremja list. Sem er ekki sama og listhæfileikar. En þó mér finnst þetta ekki vera list þá getur þetta sjálfsagt að verið mikil list því ég skil minnst af því menningargojli sem hæst ber í þessu þjóðlífi.

Þetta virðist skipta RÚV meira máli en stríð í Úkraínu og afleiðingar þess fyrir okkur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hárrétt hjá þér kæri Halldór.

Þetta eru ær og kýr vinstri manna að þyrla upp moldviðri þar sem engin moldin er - tilgangurinn helgar meðalið. Ef ég man rétt þá er kannski Gervasoni málið forsmekkurinn með þessi hælismál, en var hann ekki liðhlaupiúr hernum ? Þar fór Guðrún kommi hamförum meðal annarra.

Þetta lið lærði þessi læti ásamt fleiru af Pútín og forverum hans um það hvernig bæri að grafa undan réttkjörnum stjórnvöldum í lýðræðisríkjum. Nægir voru lærisveinar þeirra sem fóru utan í nám í leppríkjunum og áttu síðan að breiða út fagnaðarerindi það sem grefur undan ríkisstjórnum. Það tókst þeim á Íslandi fyrsta sinn við ríkisstjórn Geirs og Ingibjargar illu heilli, þegar einsmálsfylkingin fór á taugum við KGB-strategíunni og hljóp úr ríkisstjórninni ýlfrandi með skottið milli lappanna.

Þetta lið heldur að með áframhaldandi háreysti nái það að grafa undan einstaka stjórnmálamönnum ríkisstjórnarinnar eða helst stjórninni allri eins og hjá Geir. Það sjást alltaf sömu taktarnir, eins og hjá Pútín að senda sérsveitir sínar innan um rússnesk ættaða úkraínumenn og stýra þeim inn í opinberar byggingar og fara svo borg úr borg til að endurtaka leikinn og Pútín ræðir hátt í fjöl,iðlum um upplausnarástand í Úkraínu og allt sé að fara úr böndunum þar og verið sé að traðka á réttindum borgaranna, ekki hvað síst þeim rússnesk-ættuðu og auðvitað verður hann að bjarga vesalings fólkinu undan harðræði valdaránsmannanna í Kiev.

Obama og ESB bregst við með stórkostlega hugrakkri gagnsókn með því að meina fleiri vinum Pútíns að ferðast til vesturlanda. Þeir hlæja dátt að hugleysi vesturveldanna í veislunum í kristalshlöðnum höllum Romanovanna á meðan Pútín bútar niður Úkraínu og leggur hana síðan alla undir sig.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 6.5.2014 kl. 01:26

2 Smámynd: Þorkell Guðnason

Þvílíkur stormur í vatnsglasi. En lægst laut þó Fréttablaðið, sem taldi það FRÉTT að samfylkingarfólk VILDI að Hanna Birna segði af sér.

Þorkell Guðnason, 6.5.2014 kl. 16:33

3 Smámynd: Sigurður Ingólfsson

Stóra lekamálið er búið að vera ótrúleg lágkúra. Andstæðingar Hönnu Birnu og telja sig auðvitað vammlausa, hvort sem þeir sitja á Alþingi eða annars staðar,hreinlega umhverfast.

Sigurður Ingólfsson, 6.5.2014 kl. 17:23

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er kristals tært að fyrir Valgerði og RÚFIÐ er þetta eins og fóstur Gróu gömlu á leiti .    

Hrólfur Þ Hraundal, 6.5.2014 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband