Leita í fréttum mbl.is

Gjald fyrir Geir

H. Haarde er hugsanlega að koma fram í Kópavogi  þó seint sé. Birkir Jón og Ólafur Þór munu hafa staðið að því að draga Geir Haarde fyrir Landsdóm. Sjálfstæðismenn virðast tregir til að ræða við þá um meirihlutasamstarf. 

Svo alvarlegar væringar eins og Landsdómsmálið gleymast líklega ekki svo auðveldlega þegar kemur að því að tala um meirihlutamyndanir.

Allt hefur sinn tíma. Það ræður hugsanlega einhverju í hugum manna hvernig fyrri gerðir manna hafa verið í pólitík. Landsdómsmálið gegn Geir H. Haarde situr í mörgum Sjálfstæðismanninnum og nöfn kærendanna eru ekki gleymd.

Það er hugsanlega að koma gjald fyrir Geir í Kópavogi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þetta gæti orðið til þess að áratuga forystu Sjálfstðisflokks í Kópavogi fer að ljúka.Verið getur að Sjálfstæðisflokkurinn haldi forystunni út kjörtímablilið,en það er alls óvíst.Líklegast er að Björt framtíð kljúfi sig frá þegar líður að næstu bæjarstjórnakosningum.En þó að það verði ekki, þá eru engar líkur á að Framsókn fari með Sjálfstæðisflokki næstu árin.Útspil Bjartrar framtíðar að setjast niður með Ármanni var klókt bragð til að koma Sjálfstæðisflokknum úr forystunni í framtíðinni og örugglega gert með samþykki Samfylkigarinnar.

Sigurgeir Jónsson, 2.6.2014 kl. 22:29

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það eru engar líkur á að Geir Haarde hafi komið nálægt þessu.Hann vill Sjálfstæðisflokknum ekki svo illt.

Sigurgeir Jónsson, 2.6.2014 kl. 22:32

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að benda á að Ólafur Þór var ekki á þingi þegar ákæran á hendur Geir var samþykkt þannig að þessi hefnd eða meinta hefnd getur ekki verið gegn honum enda er hann ekki í Framsókn. Held að í ljósi stöðunar þá ættu nú Vg, Samfylking og Framsókn að bjóða Bjartri Framtíð bæjarstjórastólin og gefa Sjálfstæðismönnum smá frí aftur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.6.2014 kl. 22:33

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Þessir þingmenn samþykktu kæruna á Geir:

Atli Gíslason, Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Ásmundur Einar Daðason, Birgitta Jónsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Helgi Hjörvar, Huld Aðalbjarnardóttir, Jón Bjarnason, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Magnús Orri Schram, Margrét Pétursdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Oddný G. Harðardóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Siv Friðleifsdóttir, Skúli Helgason, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Vigdís Hauksdóttir, Þór Saari, Þráinn Bertelsson, Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson

Það er rétt hjá Magnúsi að Ólafur Þór læknir er ekki á þinginu þegar þetta gerist þar sem hann er varaþingmaður. En allur flokkurinn VG var með.

Spurning hvort handjárn Steingríms hefðu haldið Ólafi Þór?

Halldór Jónsson, 2.6.2014 kl. 23:03

5 Smámynd: Halldór Jónsson

það má alveg spyrja Ólaf Þór hver hans afstaða hafi verið í málinu?

Halldór Jónsson, 2.6.2014 kl. 23:04

6 Smámynd: Halldór Jónsson

En Birkir Jón er á lstanum og hann er greinilega óhamingjusamur vegna þess að fá ekki að vera með Íhaldinu.

Halldór Jónsson, 2.6.2014 kl. 23:05

7 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Er ekki ábyrgðarlaust Halldór að gera því skóna að Ármann hafi verið að hefna fyrir Geir, áður en Ármann hefur svarað fyrir þetta í fjölmiðlum; er alveg víst að Ármann hafi gefið loforð um samstarf eða samstarfsviðræður? Ég held að réttast sé að leyfa honum að svara því áður en farið er að skýra ástæður meintra svika.

Kjartan Sigurgeirsson, 3.6.2014 kl. 00:56

8 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Mér finnst nú illa vegið að Birki Jón þó hann hafi leiðst út í þetta á sínum tíma . Var ekki verið að ákjæra fleiri eins og Ingibjörgu Sólrúnu t.d. Ég þekki fólkið hans Jóns, sómafólk sem er ættað úr fljótunum en mikið framsóknarfólk og pólitíkin fer oft illa með fólk. En ætlar þú þá að fólk af þessum lista verði tínt til eitt og eitt og tekið af lífi þegar til þess næst. Erum við nú ekki farin að taka mið af villta vestrinu, John Wayne og Clint Eastwood ,Halldór. En ég ætla að benda þér á að ég KAUS EKKI og hef ekki gert í rúm 10 ár. Svo er bara fyrir þig að ákveða refsinguna.

Jósef Smári Ásmundsson, 3.6.2014 kl. 06:47

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Kjartan, auðvitað er æeg ekki að búa til einhverja ástæðu fyrir Ármann. Þetta eru bara upplýsingar um manninn. Fleiri upplýsingar hef ég heyrt að hann sé mikill vinur Gunnars Birgissonar. Koma meðhonum áhrif frá Gunnari sem mörgujm þykja góð en öðrum ekki, Svo er hann sagður Evrópusinni þó að það sé ekki á dagskrá í Bæjarstjórn Kópavogs. Eða bar einfaldlega það, að kjósendur styðja Sjáflstlðisflokkinn og vilja breytingar æi bæjarstjórn. Það sést á því að þeir kjósa 2 menn af nýjum flokki. Eru menn ekki að koma til móts við kjósendur að hunsa ekki þessa birtingu vilja kjósenda?

Halldór Jónsson, 4.6.2014 kl. 20:29

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Jósef, ég efast ekki um að Birkir Jón er sómadrengur eins og margir Framsóknarmenn eru ef ekki upp til hópa.Auðvitað er maður ekkert að sakfella hann fyrir að hafa greitt atkvæði sem hann geerði.Þetta eru bara upplýsingar. Það var leiðinlegt a' þú skyldir ekki kjósa Jósef svona hugsandi maður.Af hverju viltu ekki hjæalpa þeim skárri gegn hinum síðri?

Halldór Jónsson, 4.6.2014 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband