Leita í fréttum mbl.is

Er Fiskistofa óþörf?

finnst mér að fyrsta spurningin hljóti að vera en ekki starfsöryggi þeirra sem þar vinna.

Á Útvarpi Sögu sagði einn maður að Þorsteinn Pálsson ráðherra hefði stofnað fyrirtækið utan um fallinn vin sinn Guðmund Karlsson. Nú er þetta 80 manna battarí. 

Ég var áður búinn að skrifa um skipuritið sem bendir til að ýmsu megi breyta. En það fæst ekki rætt. Það er bara rætt um félagslega hlið málsins.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að svona skuli þetta verða.  Fréttablaðið og RÚV hafa ákveðið að freista þess að beygja stjórnina eins og í aðildarumsóknarslitunum. Ekkert er gert með sjónarmið skynseminnar og rök ríkisstjórnarinnar. Nei bara um starfsmennina. 

Er eitthvað fyrir mig að gera nema bjóða upp á veðmál um hvor gefur sig fyrr? 

Skiptir engu máli  hvort Fiskistofa sé hugsanlega óþörf? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Fiskistofa er að miklum hluta eftirlitslöggæsla með skírkotun í það viðhorf stjórnvalda til margra ára/áratuga að það sé í fyrsta lagi glæpur að veiða fisk á Íslandi.
Í mesta lagi sé það heimilt þeim sem hafa lagt inn fyrir pólitískri umönnun hjá stjórnvöldum.

Í dag er dreginn á land hluti þess afla sem veiddist fyrir daga kvótakerfis, Hafró og Fiskistofu.

Það hefur fjarað hratt undan nýtingu þessarar auðlindar.

Færeyingar töldu sig ekki geta notað okkar kerfi sem er að dómi framsóknar-og sjálfstæðismanna og LÍÚ "það besta í heimi".

Færeyingar eru með tvo menn starfandi við þetta verkefni. Einn er talinn of lítið af því að hann þarf að geta farið í frí.

Færeyingar hafa ekkert nema fiskimiðin sér til framfærslu og hafa þarafleiðandi víst ekkert vit á þessu að dómi íslensku gáfumannaelítunnar.  

Árni Gunnarsson, 3.7.2014 kl. 09:59

2 Smámynd: Jón Kristjánsson

Fiskistofa er svar Íslendinga við Stasi, að mínu mati.

Jón Kristjánsson, 3.7.2014 kl. 11:50

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Árni, það er akkúrat þetta sem Jón fiskur hefur verið að harpa á. Hversvegna veiðum við svona lítið? Hvar er gmali jafnstöðuaflinn upp á 400þús tonn af þorski? Öll ráðgjöfin sem farið hefur í að komast að því sem þú lýsir.

Jón minn vinur og sundfélagi, það er eins með þig og mig, við erum bara þaggaðir. Þú með þorskinn og ég með innflytjendurna og Schengen.

Það snýst llt um að veita starfsfólkinu áfallahjálp. Hvað er það eiginlega? Töflur eða mixtúra? Var ekki til þegar ég var lítill frekar en nýja veikin sem Mangi skipper spurði pabba minn um hvort hann hefði heyrt um? Þetta var í stríðinu sem hann sigldi allt saman. Mangi spurði um þennan nýja sjúkdóm sem hann hafðði heyrt um. Þeir kalla það sjokk Nonni? Hvað skyldi það vera? Mangi þessi tók farmannapróf seint á ævinni og skilaði stystu ritgerð í sögu sjámannaskólans. Efnið var:Af hverju gerðistu sjómaður? Mangi skrifaði á prófblaðið :Af því ég þurfti að vinna fyrir mér. Og skilaði svo á nýju Íslandsmeti.

Halldór Jónsson, 3.7.2014 kl. 15:30

4 Smámynd: Ingvi Rúnar Einarsson

Það er rétt hjá Árna að Fiskistofa er eftirlitlöggæsla.auk þess að dómsvald um fjársektir og veiðileyfissviptingu.

Stór hluti starfsfólk er á flakki um landið,til að hremma sjómenn,sem lendi í því,að koma með nokkur kílo meir en leyfilegt er.Leggja fram kæru.Einnig eru þeir með njósnir um hvort lögg.vigtarmenn í höfnum fari að settum lögum,og valdi ábyrgð sinni.

Starfsfólk höfuðstöðvarinnar eru flest í stöðum endurskoðendur,þar sem þeir fara yfir útreikninga vigtarmanna.-Einnig hópur manna,sem fara yfir veiðiskýrslur sjómanna,í þeirri von að geta fundið skekkjur,sem valda því að skipið missir veiðileyfið.

Ingvi Rúnar Einarsson, 3.7.2014 kl. 18:20

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Ingvi

veistu hvernig þetta apparat varð til? Er það að gera eitthvað sem er ekki hægt að gera öðruvísi? Veiðieftirlitsmenn? Alls kyns titlar sem fólkið ber.

Halldór Jónsson, 3.7.2014 kl. 18:56

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Er það kannski hinn duldi tilgangur ríkisstjórnarinnar á bak við þessa ákvörðun að fækka starfsfólki við iðjuna sem er orðið heldur margt?

Halldór Jónsson, 3.7.2014 kl. 18:58

7 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ef hinn duldi tilgangur ríkisstjórnarinnar er bara að' fækka aðeins ríkisstarfsmönnum, þá styð ég þau heilshugar í því.

Ég hef ekkert efni á þessu fólki.

Ásgrímur Hartmannsson, 3.7.2014 kl. 19:51

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Fiskistofa er orðin hálfgert ríki í ríkinu og glórulaust að halda þessu bákni við. Landhelgisgæslan ætti að mínu mati að sinna þessu eftirlitshlutverki. Þegar stofnaðar eru eftirlitsstofnanir til hafa eftirlit með eftirlitinu sem hefur eftirlit með eftirlitinu, eru menn komnir út í skurð og úr verður skrímsli, sem erfitt getur reynst að eiga við, fyrir nú utan allan kostnaðinn sem þessu fylgir.

Halldór Egill Guðnason, 3.7.2014 kl. 22:36

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Bravó nafni Egill

Halldór Jónsson, 4.7.2014 kl. 14:42

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Ásgrímur, þú ert með þetta

Halldór Jónsson, 4.7.2014 kl. 14:42

11 Smámynd: Þorkell Guðnason

En Dóri... það eru hópar fólks að sótbölva framsókn og sjávarútvegsráðherranum út af þessum Fiskistofu flutningi. Er þá ráðherrann bara ókei og hvorki með horn né hala? Eruð þið líka að segja að framsóknarmenn séu ekki alveg óalandi, óferjandi og alverstir allra?

Mmmmmar bara skilur þetta ekki!! Er virkilega ekki allt rétt sem tuddarnir bölva á bloggsíðunum?

Þorkell Guðnason, 5.7.2014 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband