20.8.2014 | 10:07
Hvað ef Óli Björn væri alvöru?
þingmaður en ekki vara? Þyldi þjóðfélagið enn beinskeyttari skrif um vandamálin? Óli Björn er eiginlega atkvæðamesti þingmaðurinn sem skrifar um þjóðfélagsmeinið sem er allt stór ríkisböllur eins og foringinn okkar í Sundlaugunm í Laugardal hann Björgvin af Vaðnesi orðaði það.
Óli Björn skrifar í dag:(bloggari feitletrar)
"Rekstur ríkisins og kostnaður vegna skulda nam alls 2.911 þúsund milljónum króna á fimm árum - frá 2009 til 2013 - eða að meðaltali 48,5 þúsund milljónum í hverjum mánuði. Þetta þýðir að frá falli fjármálakerfisins hafa útgjöld ríkissjóðs jafngilt 35,7 milljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu.
Þegar rýnt er í ríkisreikninga síðustu ára verður með engu móti hægt að halda því fram að forgangsröðun hafi ráðið för þegar útgjöld (fjárlög) ríkisins hafa verið ákveðin á hverju ári. Á sama tíma og vegakerfið - lífæð atvinnu- og mannlífs um land allt - molnar niður í bókstaflegri merkingu hafa milljarðar runnið úr ríkissjóði í pólitísk gæluverkefni. Um leið og stjórnmálamenn tóku ákvörðun um að skera niður í heilbrigðiskerfinu var haldið áfram með ríkisrekið velferðarkerfi valinna atvinnugreina. Það er nöturlegt að hugsa til þess að frá hruni hefur velferðarkerfi hinna fullfrísku verið varið betur en heilbrigðisþjónustan og samhjálpin við þá sem þurfa á raunverulegum stuðningi að halda. Og ríkisrekstur stjórnmálaflokkanna lifir góðu lífi.
»Blóðpeningar«
Það er kaldhæðnisleg staðreynd að liðlega ein króna af hverjum tíu sem renna úr ríkissjóði skuli fara í að standa undir fjármagnskostnaði. Á umræddum fimm árum hefur ríkissjóður greitt alls 368 þúsund milljónir króna í vexti en fyrir þá fjárhæð væri hægt að reka Landspítalann í níu ár. Fjármagnskostnaður ríkisins hefði dugað til að byggja fjóra nýja Landspítala og endurnýja húsnæði og tæki.
Að meðaltali greiddu íslenskir skattgreiðendur liðlega sex þúsund milljónir króna í vexti í hverjum einasta mánuði. Hægt er að reka Sjúkrahúsið á Akureyri í heilt ár og þremur mánuðum betur fyrir svipaða fjárhæð. Mánaðarlegur fjármagnskostnaður er svipuð fjárhæð og ríkissjóður lagði samtals á síðasta ári til Menntaskólans í Reykjavík, Menntaskólans á Akureyri, Menntaskólans að Laugarvatni, Menntaskólans við Hamrahlíð, Menntaskólans við Sund, Menntaskólans á Ísafirði, Menntaskólans á Egilsstöðum, Menntaskólans í Kópavogi, Kvennaskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri.
Við getum sett »blóðpeningana« í annað samhengi:
Frá 2009 til 2013 nam fjármagnskostnaður ríkisins liðlega 4,5 milljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Ríkissjóður hefur þurft að leggja »blóðskatta« á einstaklinga og fyrirtæki til að standa undir kostnaði vegna skulda sem jafngildir liðlega 75 þúsund krónum í mánuði á hverja fjölskyldu, eða um 904 þúsund krónum á ári.
Að óbreyttu verður »blóðskatturinn« innheimtur á komandi árum í formi hærri skatta og lakari þjónustu og innviða. Kostnaður vegna gríðarlegra skulda ríkisins er því þungur baggi.
Villigötur fjárlaga
Í október síðastliðnum hélt ég því fram á þessum stað að við hefðum ratað á villigötur þegar teknar væru ákvarðanir um ráðstöfun opinberra fjármuna. Samkvæmt fjárlögum ársins 2013 samþykkti Alþingi að setja nær 136 þúsund milljónir króna í annað en það sem telst frumskylda ríkisins og voru vaxtagreiðslur þá ótaldar. Á sama tíma var skorið niður í heilbrigðismálum, löggæslu og samgöngumálum, þjónusta við eldri borgara var látin sitja á hakanum og menntakerfið var skorið inn að beini. Í stað þess að aðstoða þá sem standa verst að vígi við að lifa mannsæmandi lífi var annað sett í forgang.
Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks rétti kúrsinn nokkuð af við afgreiðslu fjárlaga fyrir yfirstandandi ár, en það er mikið verk óunnið. Enn fara tæplega fjórar krónur af hverjum tíu úr ríkiskassanum í annað en það sem skiptir mestu og enn er sóun innan stjórnkerfisins, sem er of stórt og óhagkvæmt.
Markmið um hallalaus fjárlög er gott en nægir ekki eitt og sér til þess að lækka fjármagnskostnað ríkisins annars vegar og tryggja hins vegar raunverulega forgangsröðun útgjalda. Það þarf að gjörbreyta vinnubrögðum við fjárlagagerðina, sem á fyrst og fremst að taka mið af grunnskyldum ríkisins og hefja umfangsmikla sölu ríkiseigna.
Í viðtali við Morgunblaðið síðastliðinn laugardag hélt Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar, því fram að yfirsýnin við fjárlagavinnuna væri ekki nógu góð. »Ég fullyrði að menn eru almennt ekki meðvitaðir um þróunina í ríkisfjármálum,« fullyrti þingmaðurinn. Undir þessi orð skal tekið.
Tvær flugur
Í samantekt Guðlaugs Þórs um þróun ríkisútgjalda frá 2007 til 2012 kemur vel fram hve mjög hallaði á heilbrigðisþjónustuna. Upplýsingar um liðlega sjö þúsund milljóna króna útgjöld til rannsóknanefnda Alþingis, umboðsmanns skuldara, stjórnlagaráðs, þjóðfundar, landsdóms og ESB-umsóknar frá hruni bankakerfisins sýnir betur en flest annað hve forgangurinn er orðinn brenglaður.
Þingmenn gætu slegið tvær flugur í einu höggi þegar þing kemur saman í september. Þeir gætu tekið lítið skref í átt að því að draga úr ríkisumsvifum og um leið forgangsraðað af skynsemi. Þeir gætu afnumið lög um fjármál stjórnmálasamtaka - hætt ríkisrekstri stjórnmálaflokkanna. Einhverjir gætu haldið fram að það væri táknrænt að »einkavæða« pólitíska starfsemi enda samrýmist ríkisrekstur stjórnmálanna illa hugmyndum um opið og frjálst þjóðfélag. "
Þarna er gripið á mörgum kýlum. Í stað þess að greiða svona svimandi upphæðir í fjármagnskostnað gæti ríkið sótt peningana sína í lífeyrissjóðina. Taka hreinleg nægilegar þúsundir milljarða úr sjóðunum gegn kvittun upp að þeir hafi þarmeð greitt skatta af útgreiðslum úr sjóðunum sem þeir megi framvísa þegar þar að kemur. Einfalt, en skilvirkt.
Ríkisrekstur á stjórnmálaflokkunum er önnur vitleysan sem Sjálfstæðismenn létu litlu ljótu kommaflokkana þvæla sér út í. Í stað þess að fjármál stjórnmálaflokka komi engum við, hvorki skattstofum né öðrum meðan ekki er um annað að ræða en frjáls félagasamtök sem eru eingöngu kostuð af almennum félagsmönnum eins og saumaklúbbar, þá er allt stjórnmálastarf á opinberu framfæri. Þetta skipulag kallar á það að heilmargar hugsjónir verða útlægar og menn verða of latir til að nenna að berjast og of feitir til að flýja.
Svo lítill eldmóður er yfirleitt í litlu ljótu sérvitringaflokkunum að þeir geta fáu frá sér komið nema að fá að sjúga ríkisspenann. Fjöldasamtökum eins og Sjáflstæðisflokknum er ekki vorkunn að krefjast starfa af sínum flokksmönnum. Þá mun líka gerð þeirra sem veljast til forystu breytast almennt frá því að verða puntudúkkur og dekurrófur til þess að verða alvöru stjórnmálamenn sem okkur vantar svo sárlega í stað fyrir þetta venjulega þinglið okkar sem á svo oftlega uppruna sinn í opinbera geiranum með verðtryggðu réttindin. Og verður þannig sjálfkrafa að varðhundum kerfisins. Okkur vantar fólk sem verður að sanna sig í baráttunni í grasrótinni áður en það fær þingsæti fyrirhafnarlaust jafnvel með tilstyrk óskyldra þrýstihópa. Þetta myndi fækka flokkum og koma meiri festu á stjórnmálin en nú er.
Það verður gaman þegar Óli Björn verður alvöru þingmáður og getur farið að beita sér sem slíkur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:10 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Kæri Halldór ! Þetta et grein hjá Óla Birni - eins og má segja að þær hafi allar verið sem frá honum hafa komið um tíðina. Hann er glöögur og skynsamur og talar jafnan af miklu innsæi og viti.
Það mætti senda nokkra þingmenn í fríið langa kæmist Óli Björn inn sem aðalmaður á Alþingi.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 20.8.2014 kl. 12:27
Vonandi áttu ekki of marga skoðanabræður Halldór. Því ef svo er mun ekki þurfa sérstakan flokk að fá fólk til að flytja til Noregs.
Ágúst Marinósson, 20.8.2014 kl. 21:07
Kannski brestur mig minni en ekki man ég til þess að þessi glöggi maður Óli Björn hafi haft uppi einhver varnaðarorð í hrunadansinum mikla.
Þórir Kjartansson, 20.8.2014 kl. 22:13
Þórir Kjartansson - þú manst það kannski að Davið Oddsson varaði oft við á þeim tíma - en þú og þínir líkar, eins og Guðmundur hagfræðingur og kaffihúsaspekingur hlóguð dátt að þeirri vitleysu í forsætisráðherranum þá og síðan einnig að seðlabankastjóranunm. Þvílíkl vitleysa í manninum möntruðuð þið
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 20.8.2014 kl. 23:07
Þekkir þú mig Hr. Predikari? Yfirleitt nenni ég ekki að eiga orðaskipti við menn sem ekki þora að koma fram undir nafni. En það skaltu vita að ég sá í hvað stefndi löngu fyrir hrun og benti á bæði í ræðu og riti. Hafi Davíð Oddson séð það líka, hefði hann átt að hafa manna besta aðstöðu til að stoppa vitleysuna. En þeir sem kveikja eldana slökkva þá nú sjaldnast.
Þórir Kjartansson, 21.8.2014 kl. 08:11
Þórir.
Nei ég þekki þig ekki, en nafn þitt er mér jafn framandi og höfundarnafn mitt er þér. Þess vegna er ég ekki meðvitaður um þau skrif sem þú vísar í - en tók þennan pól í hæðina vegna orða þinna þar um hér. Biðst velvirðingar á því þar sem ég þekki ekki til þín og hef þá haft þig fyrir rangri sök þar um.
En í umræðu sem þessari þá skiptir það sem sagt er meira máli en það hver flytur tíðindin og haf þökk fyrir svarið.
Þegar Toys r'us opnaði sumarið 2007 kvað Davíð nokkuð fast að orði, þá sem seðlabankastjóri og það varð til þess um haustið að Guðmundur kaffihúsaspekingur gaf viðtal í DV til að slá af „bjargbrúnarkenningu seðlabankastjórans“ eins og lesa má :
.
https://www.dv.is/frettir/2007/11/17/bjargbrunarkenning-sedlabankastjora-slegin-af/
.
Geir Haarde talaði samt á svipaðan veg í fjölmiðlum og Davíð í desember 2007 í viðtali. Davíð hafði oft áður sem forsætisráðherra talað eins einarðlega og hægt var sem forsætisráðherra án þess að ganga of langt í orðavali en var hrópaður niður af andstæðingum sínum á Alþingi sem í fjölmiðlum ekki hvað síst og var reynt að koma því inn hjá þjóðinni að hann hefði horn í síðu útrásarsnillinganna - sér í lagi Baugsböðlanna. Menn hlustuðu ekki á varnaðarorðin því miður.
En varðandi það sem eignað er Davíð í öllum sköpuðum hlutum, þá held ég að verði að taka undir það sem Stormskerið sagði í bloggi sínu sem og í Morgunblaðsgrein : „Auðvitað hefur Dabbi gert einhver mistök í gegnum tíðina, enda mannlegur einsog við hin, en við ættum eingöngu að kenna honum um það sem raunverulega er honum að kenna, einsog t.d. morðið á Kennedy og heimsstyrjöldina síðari, - en ekki ALLT.“
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 21.8.2014 kl. 10:11
Már láðist í síðasta innleggi að minnast á að í í orðum Davíðs sjálfs sem og í rannsóknarskýrslu Alþingis kemur kemur berlega í ljós að Seðlabankastjórar áttu fund í febrúar 2008 með ríkisstjórninni þar sem forsætis- og utanríkisráðherra sátu að minnsta kosti. Þar var varað við því að bankahrun yrði á næstu mánuðum, aldrei síðar en í október 2008.
Ríkisstjórnn kallaði á alla viðskiptabankana á sinn fund strax í kjölfarið. Þeir mættu með endurskoðendur sína og hlógu góðlátega að seðlabankastjórunum og sýndu „endurskoðað“ bókhaldið því til sönnunar að ekkert væri að óttast. Því gerði ríkisstjórnin ekki neinar ráðstafanir.
Þegar það kom í ljós að ríkisstjórnin myndi ekki bregðast við, setti Davíð á fót yfir 40 manna starfshóp sérfræðinga innan Seðlabankans til að undirbúa hrunið sem bankinn hafði varað við. Hefði Davíð ekki gert þetta þá hefðu íslensk fyrirtæki eða ríkisstjórn eftir 8. október ekki getað fengið greitt fyrir vörur sem seldar voru til erlendra birgja frá ÍSlandi, né heldur fengið innflutt eldsneyti, lyf né nokkuð annað frá útlöndum, sérstaklega ekki eftir að bretar settu Ísland á lista alþjóðlegra hryðjuverkasamtaka.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 21.8.2014 kl. 10:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.