Leita í fréttum mbl.is

Þá borgum við Icesave

með því að Landsbankinn greiðir 400 milljarða í gjaldeyri til forgangskröfuhafa Landsbankans með sérstöku leyfi Seðlabankastjóra?

Ekki skyldu þetta vera erlendar skuldir óreiðumannanna sem hann Davíð talaði um?

Af hverju vill Heiðar Már gera Glitni gjaldþrota? Kom það ekki til álita með Landsbankann til að borga ekki Icesave skuldirnar í gjaldeyri? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgari

Ríkissjóður ("við") er ekki að greiða Icesave þó að hann eigi stærstan partinn í nýja Landsbankanum í félagi við starfsfólk sem fékk 10 milljarða að gjöf fyrir innheimtustörf.

Nýi borgar þrotabúi gamla Landsbanka sem borgar forgangskröfur (Icesave) og um leið eru hreðjartökin sem Steingrímur samþykkti losuð á gjaldeyrisstreymi landsisn.

Guðs blessun og margt fleira forðaði því að við borguðum ekki hundruðir milljarða fyrir Icesave skuldir óreiðumanna og arfa vitlaust ráðabrugg valdhafa.

Borgari, 4.12.2014 kl. 23:07

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hvimleitt að þú skulir enn hjakka í þessum Icesave-fullyrðingum þínum, Halldór. Ég hef þegar svarað þeim og hafna þessu hjá þér.

http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1509906/#comment3543789

 

http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1493775/#comment3541790

http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1509906/#comment3543789

Jón Valur Jensson, 5.12.2014 kl. 00:55

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Halldór.

Ef þú hefur verið með hlutabréf í gamla LBI eða í viðskiptum sem varð til þess að þú tapaðir einhvejum fjárhæðum, þá er það rétt að þú ert að borga fyrir IceSave. Ef ekki, þá ert þú ekki að borga neitt.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 5.12.2014 kl. 15:50

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Jóhann, ég keypti haug í Landsbankanum af því að mér fannst þetta Icesave vera gargandi snilld , wá mar sk´fla inn peningum í útlöndum. Svo fóru bréfin að lækka og ´se ætlaði að bíða betri tíma með þau, auðvitað gat Landsbankinn minn ekki farið bara á hausinn. Ég tapaði hverjum eyri. En ég var svikinn um gjaldþrot samkvæmt íslenskum lögum þannig að það átti aldrei að fara króna í erlendri mynt úr landi með þessu skítabixi Steingríms að búa þetta fyrirbrigði til NIB og Gamli . Þjóðin þarf ekki þennan banka og það er bara verið að borga Icesave hvað sem Jón Valur segir um það.

Halldór Jónsson, 5.12.2014 kl. 17:09

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, Halldór, nýi Landsbankinn er einfaldlega að borga skuldir sínar við gamla Landsbankann. Sú skuld er bara bankanna á milli og ekki eyrnamerkt Icesave, jafnvel þótt Steingrímur Jicesave hafi komið að málinu og trúlega með vitlausum hætti eins og honum er lagið.

En Halldór hlýtur að skilja það, að þegar bankastofnun tekur við innistæðum eins og fasteignaveðbréfum á Íslandi frá annarri bankastofnun, þá fær sú fyrrnefnda þau veðbréf ekki ókeypis. Landsbankinn nýi innheimtir fasteignaveðlán gamla bankans með drjúgum vöxtum og verðtryggingu árlega um mörg ókomin ár, og það mun fara langt með að borga þessa skuld nýja bankans við hinn gamla.

Jón Valur Jensson, 5.12.2014 kl. 19:39

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þá ert þú að borga fyrir IceSave Halldór minn. Samhryggist þér.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 6.12.2014 kl. 00:41

7 Smámynd: Halldór Jónsson

"Stærsti forgangskröfuhafi LBI er breski innistæðutryggingarsjóðurinn vegna Icesave-sparnaðarreikninganna. Áður en veitt var undanþága fyrir greiðslum til forgangskröfuhafa í fyrradag átti sjóðurinn eftir að fá greidda um 400 milljarða úr búinu. Að undanförnu hafa bresk stjórnvöld þrýst mjög á að undanþágur fyrir greiðslum til forgangskröfuhafa yrðu samþykktar sem fyrst. Seðlabanki Hollands, sem var áður næststærsti kröfuhafi búsins og átti eftir að fá greidda um 130 milljarða, seldi hins vegar sl. haust kröfur sínar til Deutsche Bank. Raunverulegir kaupendur voru sjóðir sem eru almennir kröfuhafar í bú LBI, Kaupþings og Glitnis. Forgangskröfuhafar hafa nú fengið greidda 1.115 milljarða, eða 85% af höfuðstóli krafna sinna."

Svo segir Moggi um greiðslurnar á 400 milljörðunum Jón Valur.

Halldór Jónsson, 6.12.2014 kl. 16:32

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, ekki rengi ég það, heldur hitt, sem sumir ímynda sér, að nýi Landsbankinn sé ábyrgur fyrir Icesave og sé að borga beint fyrir Icesave. Gamli Landsbankinn er að borga fyrir sínar skuldir, en nýi bankinn að borga fyrir sínar.

Jón Valur Jensson, 6.12.2014 kl. 18:56

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Vinur Jón Valur

við skiljum þetta báðir. Það sem skilur okkur að er að ég er líklega samviskulausari en þú og á minna af kærleika í mínu hjarta. Ég vil því láta Breta snýta rauðu fyrir misgerðir Gordons Brown gegn Íslandi. Mér finnst því algerlega Bí bí  að senda þeim 400 milljarða í engelskum pundum. F...Y.. er svarið sem ég vil nota við brska rukkara.

Halldór Jónsson, 6.12.2014 kl. 19:38

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gott og vel. Ég fæ líka engan veginn skilið, að Steingrími J. hafi verið það heimilt að binda greiðslu 300 milljarðanna frá íslenzkum nýjum Landsbanka til hins gamla, íslenzka Landsbanka við það að verða í erlendum gjaldeyri. Þar í eru sennilega afglöp hans verst og skaðlegust í þessu skuldabréfsmáli –– og athæfið trúlega ólögmætt, auk þess að vera óforþjent, því að vitaskuld áttum við frekar að fá skaðabætur frá Bretum en að hygla þeim.

Jón Valur Jensson, 8.12.2014 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband